Boðað til íbúafundar um umdeilda mölunarverksmiðju

Þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg kynnir annan val­kost vegna bygg­ingar umdeildrar möl­un­ar­verk­smiðju í Ölfusi. Verk­smiðjan verður færð vestan við byggð­ina, til Kefla­víkur.

Boðað til íbúafundar um umdeilda mölunarverksmiðju
Val­kost­ur­inn fjær byggð tal­inn betri Í umhverf­is­mats­skýrslu Mannvits er val­kostur 2. undir verk­smiðj­una, sem er fjær byggð­inni í Þor­láks­höfn, tal­inn vera betri. Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður Heidel­berg á Íslandi, leiðir íbúa­fund­inn í kvöld en hann sést hér á fyrsta íbúa­fund­inum sem hald­inn var um verk­smiðj­una árið 2022.

Þýska fyr­ir­tækið Heidel­berg heldur íbúa­fund um fyr­ir­hug­aða möl­un­ar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn í kvöld.  Heidel­berg hefur áður  haldið sam­bæri­lega íbúa­fundi í bænum þar sem fram­kvæmdir við möl­un­ar­kverk­smiðj­una eru kynntar. 

Aðal­til­efni fund­ar­ins er að ræða Umhverf­is­mats­skýrslu frá verk­fræði­stof­unni Mannviti vegna verk­smiðj­unnar. Komið fram í máli Elliða Vign­is­sonar bæj­ar­stjóra að íbúar Ölfuss muni kjósa um bygg­ingu verk­smiðj­unnar þegar fyrir liggur hvar og hvernig hún eigi að vera. Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður Heidel­berg á Íslandi og fyrr­ver­andi ráð­herra stýrir fund­inum. 

Möl­un­ar­verk­smiðjan hefur valdið hörðum deilum í bænum og hefur bæj­ar­full­trú­inn Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir meðal ann­ars gagn­rýnt hana. Ása Berglind hefur sagt að verið sé að breyta Þor­láks­höfn í námabæ. 

Seinni valkostur fjær byggðinni talinn betri

Í skýrsl­unni er rætt um tvo val­kosti fyrir stað­setn­ingu möl­un­ar­verk­smiðj­unnar. Sá fyrri er í Skötubót, ofan í byggð­inni í Þor­láks­höfn, á meðan hinn er í Keflavík, vestan þorps­ins og nokkuð langt frá byggð­inni. Mannvit telur að seinni kost­ur­inn sé betri en sá fyrri.

Um þessa kosti segir Mannvit: „Lóðin við Skötubót er talin vera of lítil fyrir þá starf­semi sem er fyr­ir­huguð og hún er mun nær íbúa­byggð en í til­felli val­kostar 2.“ Fyrri val­kost­ur­inn hefur verið umdeildur meðal íbúa Ölfuss vegna nálægðar við byggð­ina allt frá því byrjað var að ræða um verk­smiðj­una. 

Um seinni val­kost­inn segir Mannvit: „Stærð og stað­setn­ing lóðar er betri en í til­felli val­kostar 1 og er hún talin henta vel undir fyr­ir­hug­aða starf­semi. Svæðið er skil­greint sem iðn­aðar/athafn­ar­svæði í skipu­lagi og gert er ráð fyrir starf­semi af þessu tagi á svæð­inu. Nægt rými er fyrir starf­sem­ina og þar af leið­andi hægt að hafa bygg­ingar lægri með minni ásýnd­ar­á­hrifum. Mögulegt er að byggja nýja höfn við lóð­ina og setlón sem gerir aðkomu skipa með efni úr sjó fýsi­lega. Lóðin liggur upp að lóðum þar sem land­eldi verður starf­rækt.“

Frá Skötubót til Kefla­víkurMannvit mælir með því að möl­un­ar­verk­smiðjan verði færð frá Skötubót, nær byggð­inni í Þor­láks­höfn, og vestan við byggð­ina, til Kefla­víkur. Val­kost­irnir tveir eru ljós­grænir á mynd­inni.

Tvöfalt fleiri á móti

Eins og Heim­ildin greindi frá fyrir rúmu ári síðan þá voru rúm­lega tvö­falt fleiri íbúar í Ölfusi á móti bygg­ingu möl­un­ar­verk­smiðj­unnar  á fyrri staðnum, við Skötubót, en voru fylgj­andi henni. Þetta var nið­ur­staðan úr við­horfskönnun sem Maskína gerði fyrir Heim­ild­ina meðal  íbúa í Ölfusi. 382 íbúar Ölfuss svör­uðu spurn­ing­unum í könn­un­inni en 66 neit­uðu að svara. 

Í könn­un­inni sögð­ust 44,7 pró­sent íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu vera fremur eða mjög and­vígir bygg­ingu verk­smiðj­unnar á meðan ein­ungis 19,3 pró­sent eru fremur eða mjög hlynntir bygg­ingu hennar. 36 pró­sent íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu vildu hins vegar ekki taka afstöðu með eða á móti verk­smiðj­unni í árs­byrjun í fyrra. 

Miðað við þessa nið­ur­stöðu þarf ekki að koma á óvart að í skýrslu Mannvits er val­kost­ur­inn við Keflavík kynntur sem aðal­val­kost­ur­inn við bygg­ingu verk­smiðj­unnar. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Ég hef verið að glugga í þetta umhverfismat og það vöknuðu margar spurningar.

    1. Valkostur 2, sem er hinn nýi valkostur Heidelberg Materials er 3 kílómetra fyrir vestan núverandi byggð í Þorlákshöfn. Miðað við að vaxtarsvæði bæjarins er í vestur þá mun bærinn vaxa í átt að verksmiðjunni og umhverfisáhrif verksmiðjunnar sem talin eru ásættanleg núna vegna fjarlægðar verða það ekki eftir nokkur ár en þá verður of seint að mótmæla staðsetningunni.

    2. Ekki er gerð tilraun til að fara ofan í saumana á magntölum í þessu umhverfismati. Verkefnið hefur aukizt að umfangi um 150%. Í fyrstu kynningu var bara talað um að hún myndi mala 500 þúsund tonn af móbergi sem yrði flutt til verksmiðjunnar ofan úr Þrengslum. Nú er meiningin að vinna 700 þúsund tonn úr fjöllunum og 1 milljón og 300 tonn munu koma með skipum sem munu dæla efninu upp af sjávarbotni í grennd við Ingólfshöfða og flytja til Þorlákshafnar og dæla í manngerð setlón í Keflavík. Þessir efnisflutningar munu valda miklum neikvæðum umhverfisáhrifum.

    3. Í sóknaráætlun Suðurlands, sem Þorlákshöfn er aðili að er lögð mikil áherzla á umhverfisvitund. Lagt er upp með að draga úr losun á CO^2 um 10% fyrir 2025. Með þessu verkefni eru þær áætlanir að engu orðnar og kolefnislosun mun aukast gríðarlega út af efnisflutningum til og frá verksmiðjunni.

    4. Allt frá því þetta verkefni var kynnt og æ síðan hefur verið tönnlast á því, að með því að þetta móbergsefni komi í stað sementsgjalls þá stuðli Þorlákshöfn að minni losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og sé þannig umhverfisvænt í sjálfu sér. Þessi framsetning er eingöngu til að b lekkja fólk. Hvert land er með sitt eigið loftslagsbókhald og það sem gert er í einu landi er ekki hægt að nota til að jafna kolefnisbókhaldið í öðru landi þótt það sé stundað í blekkingarskyni. Þetta verkefni hefur mjög neikvæð umhverfisáhrif fyrir íbúa Þorlákshafnar til langrar framtíðar.

    * Útblástur v/þungaumferðar hefur mjög neikvæð áhrif á loftgæði
    * Hávaði v/þungaumferðar mun hafa mjög neikvæð áhrif á hljóðvist.
    * Mengun frá losun og lestun efnis á landi verður einhver
    * Mengun vegna skipaflutninga og brennslu olíu verður mjög mikil.

    Vonandi verður Þorsteinn spurður þessara spurninga á fundinum í kvöld. Ef ekki ,þá verður Elliði að svara fyrir þetta áður en af íbúakosningunni verður.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár