Barokkbandið Brák og Herdís Anna

„Mikið væri nú gaman að fara að fá heila barokk­óp­eru setta upp hér á landi, svo sann­ar­lega vantar ekki mann­skap­inn til þess.“ Tón­list­ar­gagn­rýn­and­inn Arndís Björk Ásgeirs­dóttir skellti sér í Norð­ur­ljósa­sal­inn í Hörpu og hlýddi á Herdísi Önnu Jón­as­dóttur sópran með barokk­band­inu Brák.

Barokkbandið Brák og Herdís Anna
Herdís Anna og Brák. Ljósmynd: Arndís B. Ásgeirs­dóttir.
Tónleikar

Brák og Anna

Niðurstaða:

Sígildir sunnudagar – Furie Terribili, Harpa Norðurljós 5. nóvemeber 2023, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Barokkbandið Brák.

Gefðu umsögn

Barokk­bandið Brák er tæp­lega tíu ára gam­all tón­list­ar­hópur, sem frá upp­hafi hefur haft það að leið­ar­ljósi að glæða lífi í barokktón­list á Íslandi og flytja hana á upp­runa­hljóð­færi, enda hafa með­limir Brákar allir sér­hæft sig í flutn­ingi á upp­runa­hljóð­færi. Leiðari hóps­ins er Elfa Rún Krist­ins­dóttir fiðlu­leik­ari, sem veit nú sitt­hvað um flutn­ing á barokktón­list en eins og margir muna þá bar hún sigur úr býtum í alþjóð­legu Bach-keppn­inni í Leipzig árið 2006.

Það má sann­ar­lega segja að band­inu hafi tek­ist ætl­un­ar­verk sitt því Brák hefur haldið marga eft­ir­minni­lega tón­leika með spenn­andi efn­is­skrám. Það er í stóra sam­heng­inu ekki langur tími sem lið­inn er frá því að hlust­endur voru van­ari því að heyra barokk og end­ur­reisn­ar­tón­list flutta á nútíma hljóð­færi og þó það vissu­lega hafi tekið sinn tíma að venj­ast því er nú svo komið að flestir kjósa það yfir hitt með örfáum und­an­tekn­ingum þó. Í bland við barokkið hefur Brák svo ein­beitt sér að flutn­ingi nýrra íslenskra verka og hafa þó nokkur verk verið sér­stak­lega skrifuð fyrir hóp­inn.

Frábært vald Herdísar Önnu

Efn­is­skrá tón­leik­anna í Norð­ur­ljósum 5. nóv­em­ber sl. var því mjög í anda barokk­bands­ins því þar mátti finna kafla úr svítum og sónötum eftir barokktón­skáld í bland við fjórar glæsi­ar­íur úr óperum eftir Georg Friedrich Händel og verk eftir Báru Gísla­dóttur. Tón­leik­arnir hófust á Forleik að svítu í B dúr eftir Georg Philipp Telemann og var flutn­ingur hennar alveg prýði­legur, hend­inga­mótun skýr og flæðið fal­legt. Herdís Anna Jón­as­dóttir hóf því næst upp raust sína í fyrstu aríu efn­is­skrár­innar, aríu Ginevru, Volate, amore úr óper­unni Ariod­ante, sem byggð er á ljóð­inu Orlando Furioso (brjál­æði Orlandos) eftir Ludovico Ariosto.

Herdís Anna hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra söng­kvenna og sýndi með flutn­ingi sínum á þess­ari aríu að það er hreint engin til­viljun. Fyrir utan radd­hæð­ina hefur hún frá­bært vald á þeirri tækni sem þarf til að syngja þessa tón­list, með öllu sínu flúri, skreyt­ingum, löngu frösum sem enda með því að gefið er í og þá er nú eins gott að hafa góðan þind­ar­stuðn­ing. Tveir kaflar úr tríó­sónötu eftir Johannes Schenk hljóm­uðu fal­lega eins og milli­spil fyrir næstu aríu Piangero, la sorte mia úr óper­unni Giulio Cesare, einnig eftir Händel, þar sem Kleópatra drottn­ing harmar hlut­skipti sitt þar sem bróðir hennar hefur látið fang­elsa hana og hún lætur sig dreyma um það hvernig hún muni ásækja hann ef hún deyr. Það var unun að hlýða á flutn­ing þess­arar aríu sem Herdís Anna og Brák fluttu af mik­illi næmni. 

Uppbrot um miðja tónleika

Verk Báru Gísla­dóttur, Split thee, soul, to Splendid Bits (attn.: no eternal life/light this time around) kom eins og upp­brot um miðja tón­leik­ana. Verkið var skrifað að beiðni tón­list­ar­hóps­ins Nordic Affect árið 2018, sem líkt og Brák sér­hæfir sig í upp­runa­flutn­ingi og flutn­ingi á nýjum verkum. Verkið skipt­ist í fimm kafla auk prelúdíu og milli­spils án hlés og er hver kafli til­eink­aður per­sónu eða atburði sem sett eru í eins konar trú­ar­legan rús­sí­bana fyrir trú­leys­ingja, eða svo segir Bára um verk sitt. Þessar upp­lýs­ingar komu ekki fram í tón­leika­skrá en tón­leika­gestir fengu ein­göngu blað með titlum verk­anna á efn­is­skránni. Ég veit ekki hvort það hefði bætt ein­hverju við upp­lifun­ina að hafa þessar upp­lýs­ingar fyrir fram en verkið kom ræki­lega á óvart, sér­stak­lega þó með­höndlun semb­als­ins, en á hann var ekki slegin ein ein­asta nóta að mér sýnd­ist, heldur lék Halldór Bjarki Arnarson á strengi hans, strauk þá með fingrum eða renndi strengjum eftir strengjum svo útkoman var langur syngj­andi tónn, ólíkur þeim hljómi sem semb­alinn gefur venju­lega frá sér. Hann var í raun not­aður sem fjórða strengja­hljóð­færið. Hin strengja­hljóð­færin, fiðla, víóla og selló, tók­ust á við alls kyns flautu­tóna, gliss og sarg (ekki illa meint) og and­rúms­loftið var órætt.

Ég get ímyndað mér að það sé flókið að leika þetta verk eftir að hafa skoðað nótur af því sem ég fann á net­inu en flutn­ingur Brákar var mjög sann­fær­andi og eft­ir­minni­legur. Sónatan í c-moll eftir Johann Georg Pisendel (sam­tíma­mann Bachs) hljóm­aði á sama hátt en þó allt annan, sann­fær­andi með dún­mjúkum strengjum og fal­legri dýnamík. 

Væri gaman að fá heila barokkóperu

Aftur tókst flytj­endum að koma tón­leika­gestum á óvart, því næsta verk á efn­is­skránni, arían Furie terri­bili úr óper­unni Rinaldo eftir Händel, þangað sem tón­leik­arnir sóttu titil sinn, hófst með háværum þrumum frá upp­hengdri járn­plötu sem komið hafði verið fyrir fyrir aftan tón­leika­gesti. Þetta slag­verks­hljóð­færi er vel þekkt og einmitt helst notað þegar þarf að búa til þrumu­veður eins og í þess­ari aríu þar sem galdra­kvendið Armida kemur af himni og kallar refsi­norn­irnar til liðs við sig. Flutn­ingur arí­unnar lit­að­ist því miður of mikið af þessum þrumum sem héldu áfram út verkið en það gerði það að verkum að tón­listin fór eig­in­lega fyrir ofan garð og neðan þar sem járn­platan var höfð allt of nálægt tón­leika­gestum og virk­aði því frekar eins og háværar bygg­inga­fram­kvæmdir. Betur hefði farið á að stilla því upp bak við skil­rúm fjær tón­leika­gestum eða jafn­vel bak­sviðs.

Sónata Händels í B dúr HWV 288, sem leikin var þvínæst var geysi­lega fal­lega flutt og átti Elfa Rún ekki síst þátt­inn í því með stór­kost­legum virtúósískum ein­leikskafla í loka­þætt­inum.

Lokaar­ían var Da tempeste, úr Giulio Cesare, þar sem sópran­inn fær heldur betur efni að moða úr og stóð Herdís Anna sann­ar­lega undir öllum þeim kröfum sem gerðar eru til ein­söngv­ar­ans og var það afar glæsi­legur endir á þessum fínu tón­leikum. Mikið væri nú gaman að fara að fá heila barokk­óp­eru setta upp hér á landi, svo sann­ar­lega vantar ekki mann­skap­inn til þess og ég veit að margir myndu fagna því fram­taki.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár