Verðbólgudraugurinn sem vomir yfir Íslandi

Ísland virðist sérstak­lega viðkvæmt fyrir verðbólgu. Hvenær hún lætur á sér kræla og hvenær hún hverfur, virðist þó mörgum hin mesta ráðgáta. Seðla­bankinn reynir sitt besta til að kveða drauginn í kút en það er bara svo margt sem við vitum ekki þegar við veljum meðölin.

Töluvert var fagnað og stjórn­málamenn klöppuðu sér jafnvel á bakið þegar nýjustu verðbólgu­mælingar Hagstofu Íslands voru birtar í júlí. Eftir langt skeið sem einkennst hafði af stöðugum hækkunum lækkaði verðbólga annan mánuðinn í röð og mældist í júní undir níu prósentum í fyrsta sinn í heilt ár. „Þó það sé vissulega of fljótt að fagna sigri eru góð teikn á lofti í barátt­unni við verð­bólguna sem nú er komin undir 9% í fyrsta sinn á síðustu 12 mánuðum. Þar skiptir máli ábyrg hagstjórn ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur þar sem ekki er vikið frá því að standa vörð um velferðina en sömuleiðis þá velsæld sem byggst hefur upp á síðustu árum,“ skrifaði Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, formaður fjár­laganefndar Alþingis, strax í kjölfar nýju verðbólgu­fréttanna. 

Björninn er ekki unninn, en allt á réttri leið. Eða hvað? „Þetta er sennilega aðeins flóknara,“ segir Þórólfur Geir Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sem líkt …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið undanfarið ár