Héraðssaksóknari leggst gegn hækkun samræðisaldurs

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara telur ákveð­ins mis­skiln­ings gæta í frum­varpi Pírata um hækkun sam­ræð­is­ald­urs og telur ekki ráð­legt að gera svo stórar breyt­ingar, að hækka kyn­ferð­is­legan lág­marks­aldur, úr 15 ára í 18 ára.

Kynferðisofbeldi
Kyn­ferð­is­of­beldi Hér­aðs­sak­sókn­ari setur spurn­inga­merki við að hækka sam­ræð­is­aldur úr 15 árum í 18 ár. Í umsögn um frum­varp Pírata þess efnis segir emb­ættið að ekki sé vísað til neinna rann­sókna hvað þetta varðar og svo stór breyt­ing sem þessi þurfi að eiga sér stað að und­an­geng­inni ítar­legri skoðun. Mynd: Shutterstock

Hér­aðs­sak­sókn­ari telur ekki ráð­legt að hækka svo­kall­aðan kyn­ferð­is­legan lág­marks­aldur, eða sam­ræð­is­aldur, út 15 árum í 18 ár, líkt og þing­menn Pírata hafa lagt til með frum­varpi um breyt­ingu á almennum hegn­ing­ar­lögum. 

Ald­urs­markið var síð­ast hækkað árið 2007, út 14 árum í 15 og var þá meðal ann­ars vísað til rann­sókna sem lágu fyrir um við­horf ung­menna sjálfra. „Í frum­varp­inu nú er ekki vísað til neinna rann­sókna hvað þetta varðar og svo stór breyt­ing sem þessi þarf að eiga sér stað að und­an­geng­inni ítar­legri skoðun,“ segir í umsögn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um frum­varpið sem Kolbrún Bene­dikts­dóttir, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, und­ir­ritar. 

Vara­hér­aðs­sak­sókn­ariKolbrún Bene­dikts­dóttir und­ir­ritar umsögn hér­aðs­sak­són­ara um frum­varp Pírata til breyt­inga á almennum hegn­ing­ar­lögum þar sem lagt er til að sam­ræð­is­aldur verði hækk­aður úr 15 árum í 18. Embættið telur slíkt ekki ráð­legt á þess­ari stundu.

Frum­varp­inu var dreift á Alþingi síð­asta haust og hafa flutn­ings­menn þess meðal ann­ars fært rök fyrir því að hækkun sam­ræð­is­ald­urs í 18 ár muni veita börnum aukna vernd í kyn­ferð­is­brota­málum. 

Í umsögn hér­aðs­sak­sókn­ara segir að ákveð­ins mis­skiln­ings gæti. Í frum­varp­inu er lagt til að 200. og 201. grein almennra hegn­ing­ar­laga verði felld brott og breyt­ing gerð á 202. grein þar sem kyn­ferð­is­legur lág­marks­aldur verði hækk­aður í 18 ár. Því sé ekki lengur þörf á ákvæðum 200 og 201. 

Tvenns konar misskilningur

Mis­skiln­ing­ur­inn, að mati hér­aðs­sak­sókn­ara, felst í því að bann við sam­ræði, öðrum kyn­ferð­is­mökum eða kyn­ferð­is­legri áreitni við barn eða annan ætt­ingja (sifja­spell) er alveg óháð aldri barns­ins eða ætt­ingj­ans. „Er hátt­semin því refsi­verð þótt brota­þol­inn sé eldri en 18 ára. Hér­aðs­sak­sókn­ari getur því ekki tekið undir þessa breyt­ing­ar­til­lögu enda myndi hún rýra rétt brota­þola sifja­spella,“ segir í umsögn hér­aðs­sak­sókn­ara. 

Þá segir hér­aðs­sak­sókn­ari einnig að mis­skiln­ings sé að gæta hvað varðar breyt­ingar á 204. grein almennra hegn­ing­ar­laga um brot framin í gáleysi. Í frum­varp­inu er lagt til að greinin verði felld niður með þeim rökum að aðrar breyt­ingar á lög­unum feli í sér að ekki sé ástæða til þess að halda eftir ákvæði um gáleysi þar sem börn eigi ávallt að fá að njóta vafans. 

„Fyrir gáleys­is­brot er ein­göngu hægt að refsa ef sér­stök heim­ild er til þess í lög­unum. Ákæru­valdið ber sönn­un­ar­byrð­ina þegar kemur að því að sanna að ger­andi hafi haft ásetn­ing til brots og þarf í málum sem varða brot gegn börnum að sanna að við­kom­andi hafi vitað að brota­þoli var undir aldri á verkn­að­ar­stundu. Sú sönnun er stundum tor­veld og þá er mjög mik­il­vægt að hafa gáleys­is­á­kvæði í lög­unum að því er varðar ald­ur­inn,“ segir í umsögn hér­aðs­sak­sókn­ara.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár