Íslandsbanki neitar að tjá sig um frummat FME

Í árs­reikn­ingi bank­ans sagði að ljúka ætti vinnu við að setja fram skýr­ingar og sjón­ar­mið til FME varð­andi ætluð lög­brot fyrir miðjan febr­úar. Ekkert bólar á þeim skýr­ingum nú í byrjun mars­mán­aðar.

Íslandsbanki neitar að tjá sig um frummat FME
Tjá sig ekki Íslands­banki vill ekki gefa upp hvar vinna er á vegi stödd við að setja fram skýr­ingar til FME. Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri sést hér hringja Kaup­hall­ar­bjöll­unni. Mynd: Nasdaq Ísland

Íslands­banki tjáir sig ekki um hvernig vinnu bank­ans við að setja fram skýr­ingar sínar og sjón­ar­mið, vegna frum­mats fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands um ætluð lög­brot, miðar. Í árs­reikn­ingi bank­ans var boðað að þeirri vinnu yrði lokið fyrir miðjan febr­úar en svo virð­ist sem sú áætlun hafi ekki stað­ist.

Um er að ræða skýr­ingar og sjón­ar­mið bank­ans vegna þess mats Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) að lög og reglur hafi verið brotin við fram­kvæmd á sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum í mars 2022. Salan fór fram í lok­uðu útboði og fengu aðeins þeir sem skil­greindir voru sem fag­fjár­festar að taka þátt í því, alls 207 aðilar. Þar af voru átta starfs­menn bank­ans sjálfs eða makar þeirra. Með rann­sókn FME hefur komið fram að bank­inn sjálfur, sem var einn sölu­ráð­gjafa rík­is­ins við fram­kvæmd útboðs­ins, hafi skil­greint í það minnsta hluta starfs­mann­anna sem fag­fjár­festa.

Heim­ildin upp­lýsti í jan­úar að rann­sókn FME snúi einkum að þátt­töku þess­ara starfs­manna og aðilum þeim tengdum í útboð­inu. Rannsókn FME bein­ist þá meðal ann­ars að því hvort að það hafi verið rétt mat bank­ans að skil­greina starfs­menn­ina sem fag­fjár­festa og virð­ist ekki ljóst að svo hafi verið. Þannig keyptu ein­stakir starfs­menn fyrir lágar upp­hæðir það benda til að bank­inn og starfs­menn­irnir hafi ekki reiknað með að listi yfir kaup­endur yrði gerður opin­ber.

„Eins og ég nefndi að ofan þá viljum við ekki tjá okkur um þetta á meðan ferl­inu stendur“ Upp­lýs­inga­full­trúi Íslands­banka
Edda Her­manns­dóttir
upp­lýs­inga­full­trúi Íslands­banka

Þá sagði for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins í fjöl­miðlum í apríl á síð­asta ári að bank­anum hefði verið ljóst að starfs­menn hans hefðu verið þátt­tak­endur í útboð­inu. Viðlíka við­geng­ist ekki erlendis.

Bankinn birti árs­reikn­ing sinn 9. febr­úar síð­ast­lið­inn og er í honum gert ráð fyrir að bank­inn þurfi að greiða stjórn­valds­sekt vegna brot­anna. Ekki er greint frá því hvaða upp­hæð bank­inn hefur tekið til vegna þess, en sú upp­hæð hefur heldur ekki verið ákveð­inn enn sem komið er.

Í árs­reikn­ingnum er fjallað um frum­mat FME á ætl­uðum brotum bank­ans við sölu­ferlið. Þar segir að bank­inn hafi þegar sett fram hluta skýr­inga sinna og sjón­ar­miða „og mun ljúka því fyrir miðjan febr­úar og væntir við­bragða FME í kjöl­far þess.“

Heim­ildin sendi fyr­ir­spurn á Íslands­banka síð­ast­lið­inn mánu­dag og óskaði svara við því hvort bank­inn hefði lokið umræddri vinnu og sett fram skýr­ingar sínar. Sömu­leiðis var spurt hvenær það myndi verða, hefði bank­inn ekki lokið við þá vinnu. Í svari Eddu Her­manns­dóttur, sam­skipta­stjóra Íslands­banka, sagði að bank­inn myndi ekki tjá sig á meðan að á ferl­inu stæði. Þegar fyr­ir­spurnin var ítrekuð og spurt hvort lesa mætti úr svar­inu að vinnu við að setja fram sjón­ar­mið bank­ans væri ekki lokið, svar­aði Edda: „Eins og ég nefndi að ofan þá viljum við ekki tjá okkur um þetta á meðan ferl­inu stendur.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Afhverju er EKKI búið að reka Birnu-bankastjóra og 8-innherja-svindlara ? Afhverju er EKKI búið að kæra Birnu og co til lögreglu vegna meintra auðgunabrota ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár