„Tvímælalaust“ skoðað að færa stoppistöð Strætó nær Leifsstöð

Það kostar næstum tvisvar sinnum meira að taka flug­rútu en Strætó frá Kefla­vík­ur­flug­velli til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Inn­við­a­ráð­herra segir að horft verði til þess að bæta almenn­ings­sam­göngur til flug­stöðv­ar­innar fyrir kom­andi sumar. Á meðal þess sem verður skoðað er að færa stoppi­stöð Strætó nær flug­stöð­inni.

„Tvímælalaust“ skoðað að færa stoppistöð Strætó nær Leifsstöð
Inn­við­a­ráð­herra Verkefni starfs­hóps, sem á að skila til­lögum að úrbótum fyrir kom­andi sumar, mun verða að greina leiðir til að bæta almenn­ings­sam­göngur milli höf­uð­borg­ar­innar og alþjóða­flug­vall­ar­ins með umhverf­is­vænum hætti og leggja fram til­lögur til úrbóta. Mynd: Eyþór Árnason

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra segir að það sé mik­il­vægt að almenn­ings­sam­göngur milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verði bættar sem fyrst. Starfs­hópur, sem hann hefur skipað um bættar og umhverf­is­vænar almenn­ings­sam­göngur milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sé að hefja störf. Í hópnum eiga sæti full­trúar ráðu­neyt­is­ins, Vega­gerð­ar­innar, Isavia, Strætó bs., Samtaka sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum og Kadeco. Nið­ur­stöður og til­lögur að úrbótum fyrir næsta sumar eiga að liggja fyrir í apríl 2023. Tillögur til lengri tíma munu liggja fyrir í sept­em­ber 2023.

Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga við fyr­ir­spurn Hildar Sverr­is­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um almenn­ings­sam­göngur til Kefla­vík­ur­flug­vallar sem birt var á vef Alþingis í dag. 

Þar segir að verk­efni starfs­hóps­ins verði að greina leiðir til að bæta almenn­ings­sam­göngur á þess­ari leið með umhverf­is­vænum hætti og leggja fram til­lögur til úrbóta. „Horft verður m.a. til leiða­kerfis, þjón­ustu­stigs, verð­skrár, stað­setn­ingar og umgjörðar bið­stöðva og kolefn­is­fótspors. Hópurinn mun setja fram …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MK
    Matthías Kristiansen skrifaði
    Nauðsynlegt er að koma upp samgöngumiðstöð við flugstöðina þar sem allir farþegar og rútur/strætóar geta athafnað sig undir þaki og eiginlega ótrúlegt að eftir 40 ára notkun skuli það ekki hafa verið gert
    0
  • EH
    Erpur Hansen skrifaði
    Á flugvallarstrætó ekki að stoppa fyrir framan BSÍ líka (svo ekki þurfi að dröslast með farangur 1-200 m yfir drullupollabílastæðið), má hann ekki fara svo til Reykjavíkurvlugvallar? Þá væri þessu skipulagsrugli í samgöngumálum loks lokið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár