Reynir þarf að borga fyrir endurbirtingu minningargreina - „Fullnaðarsigur“

Atli Viðar Þor­steins­son fagnar því að hafa unnið dóms­mál gegn Reyni Trausta­syni sem end­ur­birti minn­ing­ar­grein sem Atli skrif­aði um bróður sinn í Morg­un­blaðið.

Reynir þarf að borga fyrir endurbirtingu minningargreina - „Fullnaðarsigur“

Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mannlífs, og útgáfu­fé­lagið Sólartún ehf. þurfa að greiða Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, 50 þús­und krónur vegna end­ur­birt­ingar á minn­ing­ar­greinum blaðs­ins. Reynir og Sólartún þurfa sömu­leiðis að greiða bróður manns sem Mannlíf end­ur­birti minn­ing­ar­grein um úr Morg­un­blað­inu 300 þús­und krónur. 

Árvakur krafð­ist þess að fá greiddar 1,5 millj­ónir króna fyrir útgáfu- og birt­ing­ar­rétt minn­ing­ar­greina úr blað­inu, og Atli Viðar krafð­ist sömu upp­hæðar fyrir brot á höf­undar-og sæmd­ar­rétti.

Viðlíka mál, vegna end­ur­birt­ingar Mannlífs á minn­ing­ar­greinum úr Morg­un­blað­inu, hafa verið kærð til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands en nefndin hefur alltaf kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé um brot á siða­reglum félags­ins að ræða. 

Atli Viðar sagð­ist í sam­tali við RUV í fyrra að hann hafi verið að gúggla nafn bróður síns heit­ins þegar hann hafi rek­ist á brot úr minn­ing­ar­grein sem hann sjálfur skrif­aði fyrir birt­ingu í Morg­un­blað­inu en efni úr henni var notað í frétt á vef …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár