Gömul sár ýfð upp svo gróa megi

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jónsson brá sér í leik­hús og rýndi í Góða ferð inn í gömul sár í Borg­ar­leik­hús­inu.

Gömul sár ýfð upp svo gróa megi
Upp­lif­un­ar­leik­hús Góða ferð inn í gömul sár er nýtt verk eftir Evu Rún Snorra­dóttur. Fyrri hluti sýn­ing­ar­innar er hljóð­verk sem gestir hlusta á í ein­rúmi en í síð­ari hluta er boðið á Nýja svið Borg­ar­leik­húss­ins þar sem líf­inu er fagnað um leið og leitað er leiða til að heila sárin. Mynd: Borgarleikhúsið
Leikhús

Góða ferð inn í gömul sár

Höfundur Eva Rún Snorradóttir
Leikstjórn Eva Rún Snorradóttir
Leikarar Mars Proppé, Skaði Þórðardóttir, Jakub Stachowiak, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir, Ólafur Helgi Móberg – Starína, Gabríel Briem, Lady Zadude

Leikmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir Upptaka, hljóðvinnsla og hljóðmynd: Jón Örn Eiríksson Lýsing: Hallur Ingi Pétursson Aðstoð við sviðshreyfingar: Emelía Antonsdóttir Crivello

Borgarleikhúsið
Gefðu umsögn

„Góða ferð inn í gömul sár“ er upp­lif­un­ar­verk, sem fjallar um alnæm­is­far­ald­ur­inn í Reykja­vík á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Verkið skipt­ist í þrennt. Fyrri hlut­inn er hljóðrás, sem áheyr­andi hlustar á heima við og er um klukku­stund að lengd, annar hlut­inn fer fram í for­dyri Borg­ar­leik­húss­ins, þar sem Einar Þór Jónsson, for­maður HIV Ísland, flytur eins konar per­sónu­legan for­mála, en þriðji hlut­inn á sér svo stað í sal Nýja sviðs­ins, sem hefur verið breytt í sam­komu­sal án hefð­bund­inna leik­hús­sæta; áhorf­endur ganga um og sýn­ing­ar­at­riði fara fram hér og þar í salnum þannig að úr verður býsna fjöl­breyti­leg og óhefð­bundin sam­koma og mætti jafn­vel segja gjörn­ingur. Þessi gjörn­ingur er eins konar and­stæða við fyrsta hlut­ann, sem áheyr­and­inn hlustar á í ein­rúmi – í þriðja hlut­anum er áhorf­and­inn ber­skjald­aður í marg­menn­inu og hefur meira að segja verið skreyttur með lit­ríkum fjöðrum, höttum og ýmsum öðrum ytri kenni­leitum hinsegin menn­ing­ar­innar. Orðinn …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár