Húsnæðislánavextir hækkaðir aftur og hafa verið tvöfaldaðir á einu ári

Íslands­banki til­kynnir aðra hækkun hús­næð­is­lána­vaxta. Þeir hafa tvö­fald­ast á rúmu ári og eru nú hærri en vextir bíla­lána voru síð­asta haust.

Húsnæðislánavextir hækkaðir aftur og hafa verið tvöfaldaðir á einu ári
Birna Ein­ars­dóttir Banka­stjóri Íslands­banka hringir inn í Kaup­höll­inni. Mynd: Nasdaq Ísland

Með nýrri vaxta­hækkun Íslands­banka á hús­næð­is­lánum hafa breyti­legir, óverð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána hækkað úr 4,15% í 8,25% á einu ári, eða rétt tæp­lega tvö­fald­ast. 

Vaxta­hækk­unin er gerð „í kjöl­farið af stýri­vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans“, eins og orðað er í til­kynn­ingu. Íslands­banki er fyrsti við­skipta­bank­inn til þess að hækka vexti eftir hækk­un­ina.

Þannig eru vextir á hús­næð­is­lánum nú orðnir hærri en algengir vextir bíla­lána voru í októ­ber síð­ast­liðnum. Vextir á við­bót­ar­lánum vegna kaupa á hús­næði, sem lagðir eru á lán umfram 70% veð­hlut­fall, verða eftir breyt­ing­una 9,75%.

Vextir bíla­lána eru nú 9% hjá Ergo, á vegum Íslands­banka, en verða 9,5% eftir viku. Sömu­leiðis hækka vextir um 0,5 pró­sentu­stig á óverð­tryggðum inn­láns­reikn­ingum.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir því að árs­verð­bólga, sem mælir verð­bólgu til síð­ustu 12 mán­aða á undan, mælist 9,6% í febr­úar og lækki jafnt og þétt niður að 8,2% í maí. 

Verð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána hjá Íslands­banka eru 3% í fastri mynd en 2,65% í breyti­legri útgáfu. Þrátt fyrir að raun­vextir óverð­tryggðra hús­næð­is­lána séu nei­kvæðir, miðað við verð­bólgu aftur í tím­ann, ýtir vaxta­hækk­unin enn undir til­flutn­ing yfir í verð­tryggð lán.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri var­aði við því eftir stýri­vaxta­hækkun í síð­ustu viku að erfitt gæti reynst að halda í nafn­vaxta­kerfið, það er að segja óverð­tryggð lán, ef verð­bólgan héld­ist há.

„Þessi breyt­ing þar sem fólk var að færa sig yfir í nafn­vexti breyt­ir allri umræðu um verð­bólgu. Það var ekki svona hörð umræða um verð­bólgu­þróun þegar fólk var með verð­tryggð lán. Fólk finn­ur nátt­úr­lega veru­lega fyr­ir verð­bólg­unni núna,“ sagði hann í við­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár