Stefnuleysi í fyrirrúmi

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jónsson brá sér í leik­hús og rýndi í Makbeð í Borg­ar­leik­hús­inu.

Stefnuleysi í fyrirrúmi
Leikhús

Makbeð

Höfundur William Shakespeare
Leikstjórn Uršulė Barto
Leikarar Hjörtur Jóhann Jónsson, Sólveig Arnarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Björn Stefánsson, Haraldur Ari Stefánsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Árni Þór Lárusson, Bergur Þór Ingólfsson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Esther Talía Casey, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Sölvi Dýrfjörð

Þýðing Kristján Þórður Hrafnsson

Leikmynd Milla Clarke

Búningar og leikgervi Liucija Kvašytė

Tónlist Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson

Lýsing og myndbandshönnun Pálmi Jónsson

Dramatúrg Andrea Elín Vilhjálmsdóttir

Hljóðmynd Þorbjörn Steingrímsson

Borgarleikhúsið
Gefðu umsögn

Makbeð, jarl af Glamis, snýr ásamt Bankó aftur úr stríði þar sem hann hefur brotið aftur upp­reisn jarls­ins af Kafdor gegn Dunkan Skota­kon­ungi. Á leið­inni úr stríð­inu mætir hann þremur nornum sem spá honum frek­ari frama – hann verði jarl af Kafdor og síðar kon­ungur Skota. Bankó segja norn­irnar muni verða ætt­faðir kónga en aldrei kóngur sjálfur. Makbeð fer að gæla við til­hugs­un­ina um kon­ungs­tign og styrk­ist af því að Dunkan kon­ungur launar honum tryggð­ina með því að gera hann að jarli af Kafdor. Makbeð segir konu sinni, lafði Makbeð, af spá­dómi norn­anna og hún fyllist metn­aði fyrir hönd manns síns og sjálfrar sín og hvetur karl sinn til dáða; þau myrða Dunkan kon­ung, skella skuld­inni á þjón­ana sem áttu að gæta öryggis kon­ungs, Makbeð myrðir þá og er útnefndur kon­ungur.

En fram­inn er dýru verði keyptur – sál­ar­heill Makbeðs bíður skaða af og hann fer að efast um gjörðir sínar. Lafði Makbeð glímir einnig við sam­visku­kvalir og ljóst er að fengnum frama fylgir ekki nauð­syn­lega ham­ingja. Bankó fer að gruna að ekki sé allt með felldu og Makbeð lætur koma honum fyrir katt­ar­nef. Malkolm, sonur Dunkans, ákveður að hefna föð­ur­morðs­ins og svo fer að bæði lafði Makbeð og Makbeð eru drepin og Malkolm verður að lokum kon­ungur Skotlands.

Sögu­þráð­ur­inn er sæmi­lega þekktur enda er Makbeð – Skoska leik­ritið einnig kallað vegna þrá­látrar hjá­trúar innan leik­húss­heims­ins – með þekkt­ari harm­leikjum Shakespe­ares. Makbeð var frum­sýndur í upp­hafi sautj­ándu aldar að því er talið er og kom fyrst út á prenti 1623, þótt grunur leiki á að sú útgáfa hafi verið nokkuð stýfð miðað við upp­haf­lega gerð frá höf­und­ar­ins hendi. Hvað sem því líður ber Makbeð öll ein­kenni klass­ísks harm­leiks eins og við þekkjum harm­leik­inn frá tímum Grikkja – ein­stak­ling­ur­inn brýtur gegn hags­munum heild­ar­innar (ætt­ar­veld­is­ins?) í eig­in­hags­muna­skyni og hlýtur slík mála­gjöld að við, áhorf­endur, skiljum að svona hegðun er óæski­leg og okkur sé nær að hlíta því guð­lega skipu­lagi, sem sam­fé­lagið felur í sér. Innsæi af því tagi nefndu Grikkir katharsis, sem merkir nokk­urs konar hreinsun (af sam­fé­lags­fjand­sam­legum hugs­unum) og við­snún­ing að sam­fé­lags­sátt guð­unum þókn­an­leg.

Leik­stjór­inn, Uršulė Barto, ákveður í sönnum póst­módernískum anda, að snúa við ákveðnum atriðum í upp­haf­legri sögu Shakespe­ares (eins „upp­haf­leg“ og hún kann að vera) og því er Dunkan kon­ungur hér leik­inn af konu, Sólveigu Guð­munds­dóttur, Lafði Makbeð er kasól­étt og sitt­hvað fleira er breytt og sem Shakespe­are hefði tæp­lega kann­ast við en kannski fund­ist fyndið.

Leik­ritið um Makbeð er skrifað á umbrota­tímum. Í Englandi var hið aldagamla sveita­sam­fé­lag að líða undir lok og iðn­að­ar­sam­fé­lagið að taka á sig mynd. Borg­ar­sam­fé­lög efld­ust, verk­smiðjur litu dags­ins ljós og fram­leiðslu­hættir tóku afger­andi breyt­ingum. Í Makbeð má skynja þessar breyt­ingar í því að í harm­leiknum um Makbeð eru per­són­urnar sýndar ekki aðeins sem retórískar tákn­myndir ákveð­inna afla, full­trúar þeirra strauma sem guð­irnir stjórna, heldur einnig sem ein­stak­lingar, sem geta efast um eigin gjörðir og jafn­vel iðr­ast þeirra. Það er nálgun í átt að sál­fræði­dramanu og um það má því segja að leik­rit Shakespe­ares hafi verið álíka „póst­módern­istískt“ fyrir sinn tíma og sýn­ing Uršulė Barto er á okkar tímum og má því jafn­vel skoða sýn­ingu hennar sem athygl­is­verða til­raun til að láta tíma ríma við tíma, for­tíð við nútíð. Þessi nálgun er studd með þeim leikstíl sem Hjörtur Jóhann beitir á Makbeð – hann er fullur efa­semda um voða­verk sín, að hafa brugð­ist trausti kon­ungs og síðan myrt hann. Þetta er svipuð nálgun og enski leik­ar­inn David Garrick er sagður hafa beitt árið 1744 þegar var í fyrsta sinn stuðst við frum­texta Shakespe­ares, en sú túlkun naut víst þá lít­illar hylli.

Hér hverfur hin sál­ræna túlkun Hjartar Jóhanns þó fyrir lítið í skugg­ann af póst­módernískri umgjörð sýn­ingar Uršulė Barto; bold­angs­leik­mynd í anda þýsks eft­ir­stríðsex­pressjón­isma og alls kyns útúr­dúra­hug­dettur eins og ólétta lafði Makbeð sem fyrr er nefnd, hlaup sjón­varps­frétta­manna á meðal per­sóna verks­ins svo ekki sé minnst á norn­irnar, sem eru eins konar afkára­legar sæberpönk fígúrur eru vissu­lega til­raunir til eins konar póst­módernískrar afbygg­ingar, en þær dreifa athygli áhorf­and­ans og rugla hann í rím­inu – þetta eru ekki sam­stæð tákn og sýn­ingin verður því að eins konar gjörn­ingi og eftir því sem á líður verður æ óljós­ara hvaða sögu er eig­in­lega verið að segja og að hvaða nið­ur­stöðu er stefnt. Það verður ekki betur séð en það sé í hróp­legri and­stöðu við upp­haf­lega narra­tívu Shakespe­ares. Til ein­hvers var það verk þó valið og varla til að koma því fyrir katt­ar­nef – eða?

Það má segja um öll ein­stök atriði sýn­ing­ar­innar – leik, leik­mynd, gervi, lýs­ingu, tón­list og hljóð­mynd – að þau fylgja stefnu, eða öllu heldur stefnu­leysi leik­stjór­ans vel eftir. Allt er tækni­lega vel gert og vandað, sýn­ingin er í sjálfu sér ósköp glæsi­leg og allir vilja aug­ljós­lega gera sitt besta, en það er eins og eng­inn viti hvaða sögu er verið að segja. Upp­haf­legum texta Shakespe­ares er aug­ljós­lega ekki treyst til að bera sög­una frá upp­hafi til enda – og má reyndar við bæta að texta­flutn­ingi er á löngum köflum veru­lega ábóta­vant. Það hjálp­ast þannig allt að til að neita áhorf­endum um þann munað að fá að trúa á per­sónur sög­unnar, þær verða boð­berar óljósrar stefnu og ómark­vissra við­horfa leik­stjór­ans og áhorf­endur litlu nær fyrir vikið.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár