Segir ákveðinn hóp beinlínis koma sér undan því að greiða skatt

Þing­maður Vinstri grænna og for­maður fjár­laga­nefndar telur að ekki hafi verið brugð­ist nægi­lega vel við athuga­semdum Rík­is­end­ur­skoð­unar í skýrslu um inn­heimtu dóm­sekta vegna skatta­laga­brota. Hún segir að end­ur­skoða þurfi skattaum­hverfið hér á landi í stóru sam­hengi.

Segir ákveðinn hóp beinlínis koma sér undan því að greiða skatt
Vill fylgja eftir heim­sókn sem þing­flokkur VG fór í til skatt­stjóra í vetur. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Vinstri grænna og for­maður fjár­laga­nefndar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir hefur sent skrif­lega fyr­ir­spurn til Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra er varðar skatta­laga­brot. Hún vill meðal ann­ars vita hverjar upp­hæðir sekta séu fyrir skatta­laga­brot og hver lengd og teng­und afplán­unar sé. 

Hún segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hún sé að fylgja eftir spurn­ingum sem vökn­uðu við lestur stjórn­sýslu­út­tektar Rík­is­end­ur­skoð­unar um inn­heimtu dóm­sekta sem kom út í lok síð­asta árs. 

Hún sendi fyr­ir­spurn­ina upp­haf­lega á Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra en Bjarkey segir að sú fyr­ir­spurn hafi verið aft­ur­kölluð eftir ráð­legg­ingar þings­ins og send til dóms­mála­ráð­herra í stað­inn. 

Þing­mað­ur­inn spyr í fyr­ir­spurn sinni hvernig refs­ingar fyrir brot á skatta­lögum hafi verið fulln­u­staðar frá árinu 2010 fram á þennan dag og óskar hún eftir sam­an­burði á alvar­leika brota, það er þeirri fjár­hæð sem svik­ist var um að greiða, fjár­hæð dóm­sektar og lengd og teg­und afplán­unar.

Enn fremur spyr hún hvort dóms­mála­ráð­herra telji að fulln­usta refs­inga end­ur­spegli almennt alvar­leika þess­ara brota og hvort hann hygg­ist bregð­ast við lágu hlut­falli inn­heimtra dóm­sekta vegna skatta­laga­brota sem sýnt var fram á í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um inn­heimtu dóm­sekta í des­em­ber árið 2022.

„Hyggst ráð­herra bregð­ast við til­lögum Rík­is­end­ur­skoð­unar um úrbætur að því er snertir inn­heimtu dóm­sekta sem fram komu í stjórn­sýslu­út­tekt stofn­un­ar­innar? Hvað líður fram­fylgd til­lagna starfs­hóps sem skip­aður var sam­kvæmt ákvæði til bráða­birgða III í lögum nr. 15/2016, um fulln­ustu refs­inga? Hver er afstaða ráð­herra til til­lagna sem fram komu í skýrslu hóps­ins árið 2018? Þykir ráð­herra koma til álita að hækka refsilág­mark refsi­á­kvæðis skatta­laga?“ spyr hún jafn­framt í fyr­ir­spurn sinni til dóms­mála­ráð­herra. 

Víða pottur brotinn

Bjarkey rit­aði grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í gær um málið en þar talar hún um stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar um inn­heimtu dóm­sekta. Hún segir að skýrslan sýni svart á hvítu að inn­heimta sekta, meðal ann­ars vegna skatta­laga­brota á Íslandi sé langt frá því að stand­ast vænt­ingar og sé hlut­fall inn­heimtra dóms­sekta mun lægra hér á landi en tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Þetta sé engin nýlunda en stofn­unin hefur bent á þetta frá árinu 2009.

„Þetta ber að líta alvar­legum augum. Skattar eru und­ir­staða allra tekna hins opin­bera, án þeirra getum við ekki við­haldið þeim innviðum sem við svo mjög treystum á í dag­legu lífi. Inn­heimta dóms­sekta er mik­il­vægur liður í öfl­ugu skatt­kerfi en sömu­leiðis þurfum við að huga að því að skatt­kerfið í heild sinni sé þannig úr garði gert að það standi undir hlut­verki sínu sem tekju­öfl­un­ar­tæki rík­is­sjóðs. 

Þar er víða pottur brot­inn og lagði ég m.a. fram frum­varp fyrr í vetur sem ætlað er að stemma stigu við ákveðnum ann­mörkum á reikn­uðu end­ur­gjaldi, en þar beini ég sjónum mínum sér­stak­lega að ein­stak­lingum sem hafa umsjón og umsýslu með fjár­fest­ingum í eigin félögum, félögum sem talist geta óvirk í skatta­legu til­liti, að því leyti að þau greiða hvorki tekju­skatt né trygg­inga­gjald en það er mik­il­vægt að öll starf­semi standi skil af sköttum og skyldum. Þetta er jafn­framt liður í umræð­unni um ofnotkun á einka­hluta­fé­lögum, en um 18.000 slík félög eru skráð í skatta­grunn­skrá á sama tíma og rann­sóknir sýna að 71 pró­sent rekstr­ar­að­ila skilar engum tekju­skatti, um 55% rekstr­ar­að­ila greiða engin laun og um 42 pró­sent greiða hvorki tekju­skatt né trygg­inga­gjald,“ skrifar Bjarkey. 

Í hennar huga er ljóst að end­ur­skoða þurfi skattaum­hverfi hér á landi í mjög stóru sam­hengi, allt frá skattaund­anskotum, lagagloppum eða fulln­ustu refs­inga en úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar leiði í ljós að afplánun refs­inga sé ítrekað tekin út með vara­refs­ingum svo sem sam­fé­lags­þjón­ustu. „Það rýrir fæl­ing­ar­mátt refs­ing­ar­innar svo um munar að „vinna“ af sér hund­raða millj­óna skatta­brot með sam­fé­lags­þjón­ustu, ég hef því lagt fram fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráð­herra þar sem ég óska frek­ari útlistana á þessu fyr­ir­komu­lagi.“

Eftirsóknarvert að draga þessar upphæðir fram

Bjarkey segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þing­flokkur Vinstri grænna hafi farið í heim­sókn til skatt­stjóra og hans fólks í vetur. „Við fórum yfir hitt og annað og hvað væri mest að gera og áríð­andi hjá þeim. Eftir þá heim­sókn, plús að hafa verið í fjár­laga­nefnd öll þessi ár og haf­andi fjallað um það sem ekki inn­heimt­ist í þessum mála­flokki, þá ýtti það við mér að fylgja þessum málum eftir,“ segir hún. 

Eftir að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar kom út í des­em­ber þá vildi Bjarkey athuga hverjar upp­hæðir sekta væru og hvernig væri verið að afplána fyrir brot. „Mér finnst það áhuga­vert og við verðum að draga það betur fram,“ segir hún við Heim­ild­ina. 

Hún segir að fram hafi komið í sam­tali þing­flokks­ins við skatt­stjóra og hans fólk að stór hópur greiði engan skatt – bara ekk­ert. „Einka­hluta­fé­lögin verða fleiri og fleiri og skila engu. Við vitum að sann­ar­lega eru til óvirkar kenni­tölur og ein­hverjir vilja geyma þær og hafa ein­hvern tím­ann verið með sem þeir vilja ekki afskrifa. Það er eitt, en svo erum við með hóp sem við alla­vega teljum að sé bein­línis að koma sér undan því að greiða skatt.“

Bjarkey telur að skortur geti verið á eft­ir­liti varð­andi skatta­laga­brot. „Þar eru fjár­hæðir sem við teljum eft­ir­sókn­ar­vert að reyna að draga fram,“ segir hún og bætir því við að með því að senda fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráð­herra sé hún einnig „að pota í emb­ættið því und­an­farin ár hafi ekki verið brugð­ist við athuga­semdum frá rík­is­end­ur­skoð­anda. „Ég sá ástæðu til þess að það sé horft til þeirra. Ég er alla­vega þar í líf­inu.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Skattsvikarar og okrarar samtímans

    Greinilegt er að ástandið er sífellt að verða líkara því sem var fyrir hrun. Þegar fólk færði heimilishald sitt í stórum stíl inn í einkahlutafélagsformið.

    Það gætti þess að eiga sjálft engar bókfærðar eignir heldur hlutafélagið sem er yfirleitt skuldsett upp í rjáfur.

    Þetta fólkið sem urðu eins og fiskar á þurru landi við hrunið. Fólkið sem var komið með reglulega fastagesti á mottuna frá sýslumönnum samfélagsins löngu fyrir hrun.

    Fólkið sem vældi og orgaði hæst við hrunið og það gat ekki lengur spilað á samfélagið.

    Slík hlutafélög áttu þá húsnæðið sem búið var í og ásamt rekstri ýmiskonar. Íbúðin og bílar eða annað var allt í eigu hlutafélagsins og heimilisútgjöldin rekstrarkostnaður.
    Allt eyðlufé hluthafanna var úttekinn arður sem þá var greiddur 10% (Davíðsskattur) fjármagnstekjuskattur af, ekkert í lífeyrissjóði og ekkert útsvar.

    Öll útgjöld til heimilishalds var greitt með stóru bláu seðlunum og fengin fylgiseðill í matvörubúðinni.

    Í viðtalinu við Bjarkey segir m.a.
    „Einkahlutafélögin verða fleiri og fleiri og skila engu. Við vitum að sannarlega eru til óvirkar kennitölur og einhverjir vilja geyma þær og hafa einhvern tímann verið með sem þeir vilja ekki afskrifa. Það er eitt, en svo erum við með hóp sem við allavega teljum að sé beinlínis að koma sér undan því að greiða skatt.“.

    Þessi skollaleikur er um allt og ekki bara í grófum byggingariðnaði heldur einnig í hverskonar annarri atvinnustarfsemi sem hefur heimastöð á sama stað og hlutahafar.
    Húsnæðis útleigjendur eru einmitt skæðir í svona hundakúnstum og lífsmáta. Á sama tíma er það sífellt fleira fólk sem eru í hreinni ánauð leiguokraranna.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Snilldarþykjustuleikur hjá henni blessaðri. Sá ekki mikið til hennar þegar Skattrannsóknarstjóraembættið var þurrkað út í deild hjá skattinum... né stuðning við skattarannsóknir og misferli... nema auðvitað launamanna og þeirra sem eiga ekki þak yfir höfuðið eða eru í fjármálahlekkjum til æviloka.

    Milljón plús á mánuði og líkt og kollegar hennar þá er bara bullað og auðjöfrar studdir með ráðum og dáðum.

    Viltu þurrka út 80 % skattsvika í byggingariðnaði Bjarkey ? Þarft ekki einu sinni laga né reglugerðarbreytingu.... bara fá nokkra aðila til að breyta verklaginu... og þeir eru allir stálheiðalegir.. að eigin sögn. 6 til 7 aðilar væru líklega nóg til að valda keðjuverkaninni.

    En þá missir einhver vildarvinurinn líklega spón úr aski.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár