Sönn leikgleði ræður för!

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jónsson brá sér í leik­hús og rýndi Mátulega.

Sönn leikgleði ræður för!
Leikhús

Mátu­legir

Höfundur Thomas Vinterberg og Claus Flygare
Borgarleikhúsið
Gefðu umsögn

Norskur sál­fræð­ingur, Finn Skårderud að nafni, skrif­aði eitt sinn inn­gangs­orð að norskri þýð­ingu á bók eftir nítj­ándu aldar fræði­mann­inn Edmondo de Amicis. Bók de Amicis fjallar um sál­fræði­leg áhrif áfengis og í inn­gang­inum að norsku útgáf­unni lét Skårderud að því liggja að þegar vínið hafi áhrif, hrapi maður að þeirri nið­ur­stöðu að mað­ur­inn sé í raun skap­aður með hálfu pró­milli of lítið af áfengi í blóð­inu. Þegar þetta hálfa pró­mill sé komið, þá njóti mað­ur­inn krafta sinna og hug­arafls til fulls, allt virð­ist „rétt“ – hvað sem það svo kann að merkja – og allt gengur upp. Maðurinn nálg­ast kannski það sem sál­fræði­pró­fess­or­inn Mihaly Csikszentmihalyi kall­aði „flow“, sem er sú til­finn­ing þegar mað­ur­inn er upp­tendr­aður, glaður, fullur sköp­un­ar­krafts og ham­ingju­samur – sú upp­lifun hámörk­unar sem við öll þráum.

Rétt er að taka það fram að Finn Skårderud var hrapal­lega mis­skil­inn. Hann hélt í raun­inni aldrei fram í alvöru að mann­inn skorti hálft pró­mill af áfengi í blóðið – hann benti á þetta sem fjar­stæðu, enda var hann sam­mála de Amici, að mann­inum tæk­ist aldrei að halda sér á lín­unni, hann færi offari og hneigð­ist að ofdrykkju og í versta falli alkó­hól­isma og þá er auð­vitað voð­inn vís. Og má sosum til sanns vegar færa.

„Mátu­legir“ verður þar með sagan um guðs­gjöf­ina sem snýst í and­hverfu sína og veldur á end­anum óham­ingju og tor­tím­ingu.

„Mátu­legir“ er leik­sviðs­út­gáfa af kvik­mynd Thomasar Vinter­bergs, „Druk“, frá 2020 og hefur verið til­nefnd til og hlotið fleiri verð­laun en hollt væri að telja upp. Myndin er skrambi góð, enda skreytir hún stór­kanónum á borð við Mads Mikk­el­sen, Thomas Bo Larsen, Magnus Millang og Lars Ranthe í aðal­hlut­verk­unum fjórum. Í sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins eru þessi fjögur hlut­verk hinna firrtu og lífs­leiðu mennta­skóla­kenn­ara leikin af Hilmi Snæ Guðn­a­syni, Halldóri Gylfa­syni, Jörundi Ragn­ars­syni og Þor­steini Bachmann.

Und­ir­rit­uðum þykir sagan fara betur á leik­sviði en í kvik­mynd. Hand­ritið hefur verið stýft, auka­per­sónur sem koma fyrir í kvik­mynd­inni eru skornar burt eða breytt í raddir af seg­ul­bandi í sím­tölum og er það til ein­föld­unar; hér eru fjór­menn­ing­arnir einir á svið­inu allan tím­ann og bera sög­una uppi. Sál­fræð­ing­ur­inn Nikolaj er öðrum fremur sögu­maður og talar beint til áhorf­enda; þegar aðrar sögu­per­sónur snúa sér til áhorf­enda þjóna þeir því hlut­verki að vera nem­endur í hinum ýmsu kennslu­stundum – hjá íþrótta­kenn­ar­anum Tommy, sögu­kenn­ar­anum Martin eða tón­list­ar­kenn­ar­anum Peter. Þetta er allt saman hag­an­lega útfært og skýr­lega gert og vel stutt hag­an­legri leik­mynd og mynd­böndum Heimis Sverr­is­sonar og lýs­ingu Þórðar Orra Pét­urs­sonar. Leik­myndin er að stofni til leik­fimi­s­alur og önnur sögu­svið búin þar til eftir þörfum. Þessi lausn styður við sögu Tommy, íþrótta­kenn­ar­ans sem er hrak­falla­bálkur þess­arar sögu; hann fer verst út úr þeirri til­raun, sem félag­arnir fjórir leggja af stað með, að halda sér rall­hálfum – með hálfa pró­millið í blóð­inu! – og endar á að missa allt í bók­staf­legum skiln­ingi. Sú harm­saga á skilið að vera í brennid­epli og Halldór Gylfason skilar íþrótta­kenn­ar­anum Tommy á svo gríp­andi hátt að unun er á að horfa. Hver handa­hreyf­ing, hvert svip­brigði, hver augn­gota byggir upp karakter sem ekki er annað hægt en láta sér þykja vænt um. Hið sama gildir um sam­leik­ara hans, þá Hilmi Snæ, Jörund og Þorstein – þeir brill­era allir í hlut­verkum sínum, hér er val­inn maður í hverju rúmi og sönn leik­gleði ræður för! Þökk einnig leik­stjór­anum, Bryn­hildi Guð­jóns­dóttur!

Tveir list­rænir kraftar skulu nefndir, sem eru óðum að hasla sér völl í íslensku leik­hús­lífi sem er vel. Anna Kolfinna Kuran ann­ast sviðs­hreyf­ingar og Guðlaug Ólafs­dóttir radd­þjálfun. Hvort tveggja skil­aði sér í afar áferð­ar­fal­legri sýn­ingu – hreyf­ingar leik­ar­anna ýttu undir áherslur sög­unnar, og raddir þeirra urðu ásamt tón­list og hljóð­mynd Ísidórs Jökuls Bjarna­sonar að hljóm­fag­urri sin­fóníu – von­leys­is­ins í upp­hafi, hinnar upp­höfnu gleði þegar á leið, hins óum­flýj­an­lega ósig­urs og að end­ingu sátt­ar­innar í lokin – rétt eins og vera ber í öllum góðum sögum.


Þýðing: Þórdís Gísla­dóttir
Leik­stjórn: Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir
Leikmynd og mynd­bands­hönnun: Heimir Sverr­is­son
Búningar: Filippía Elís­dóttir
Tónlist og hljóð­mynd: Ísidór Jökull Bjarna­son
Lýsing: Þórður Orri Pét­urs­son
Sviðs­hreyf­ingar: Anna Kolfinna Kuran
Leik­gervi: Elín S. Gísla­dóttir
Radd­þjálfun: Guðlaug Ólafs­dóttir
Leikarar: Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragn­ars­son, Þor­steinn Bachmann
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár