Saga byggðar utan alfaraleiða – saga lands og þjóðar

Fáskrúðs­fjarð­ar­saga I-III. Þættir úr sögu byggðar til árs­ins 2003.

Saga byggðar utan alfaraleiða – saga lands og þjóðar
Bók

Fáskrúðs­fjarð­ar­saga I-III

Þættir úr sögu byggðar til ársins 2003
Höfundur Smári Geirsson
Bókaútgáfan Hólar
Gefðu umsögn

Á bók­ar­kápu aft­an­verðri segir sem svo (nokkuð stytt): „Fáskrúðs­fjörður er nyrstur sunn­an­verðra Aust­fjarða, sautján kíló­metrar að lengd og tign­ar­legum fjöllum girtur. Mann­lífið við fjörð­inn á sér merka sögu (...). Nú hefur saga byggð­ar­innar verið færð í letur og áhuga­menn um byggða­sögu ættu ekki að láta hjá líða að kynna sér þá umfjöllun, enda er hún mik­il­vægur þáttur í sögu Aust­ur­lands og lands­ins alls.

(...) [Í Fáskrúðs­fjarð­ar­sögu] er fjallað um fjöl­marga efn­is­þætti og má þar nefna þróun byggð­ar­innar, mál­efni hreppa, sjáv­ar­út­veg, land­búnað, verslun, starf­semi mik­il­vægra stofn­ana og félags- og menn­ing­ar­mál. Í verk­inu öllu er öll áhersla lögð á að styðj­ast við prent­aðar og skjal­legar heim­ildir en eins er byggt á end­ur­minn­inga­skrifum, dag­bókum og við­tölum við fjöl­marga ein­stak­linga.“

Það er ekki ofsagt að Fáskrúðs­fjarð­ar­saga Smára Geirs­sonar er mikið verk og vandað. Eins og fram kemur í text­anum á bók­ar­kápu er fátt látið ósagt um sögu mann­lífs í þessum fyrrum tveimur hreppum, Búða- og Stöðv­ar­hreppum, en þeir sam­ein­uð­ust árið 2003 og þótti því eðli­legt að hafa þar sögu­lokin, enda trú­lega erfitt um vik að tengja með eðli­legum hætti nútíð sagna­rit­ara sjálfs þar sem hann væri bók­staf­lega í heim­ilda­hrúg­unni miðri og hætt við að yfir­sýn yrði ekki full­nægj­andi. Þetta má því telj­ast skyn­sam­leg afmörkun efn­is­ins.

Sagan hefst með land­námi og fer eðli­lega minnst fyrir þeim hluta sög­unnar, enda heim­ildir af skorn­ari skammti en síðar verður. Þó fáum við að vita, þökk sé Landnámu, að Naddoddur vík­ingur hrekst af leið til Færeyja og kemur að landi í grennd við Fáskrúðs­fjörð. Hann gefur land­inu nafnið Snæland áður en hann og föru­neyti hans fer þaðan aftur. Nokkru síðar koma þeir Krumr og Vémundr og nema land um það bil þar sem síðar urðu Búða- og Stöðv­ar­hreppar. Að öðru leyti er stað­háttum og lands­lagi laus­lega lýst, en hér hefði hugs­an­lega einnig mátt gera grein fyrir jarð­fræði Aust­fjarða, en hún er um margt merki­leg og fróð­leg.

HöfundurSmári Geirsson skrif­aði Fáskrúðs­fjarð­ar­sögu.

Það hefði einnig verið athygl­is­vert í ljósi rann­sókn­ar­að­ferða í þjóð­fræði og mann­fræði að sjá ítar­legar fjallað um eðli nátt­úru­gæða svæð­is­ins og hvernig þau hafa hugs­an­lega mótað mann­líf og verk­lag í vinnu manna við lífs­af­kom­una. En um leið og það er sagt verður einnig að taka til­lit til þess að verkið er meira en 1700 blað­síður að stærð og það gildir um þetta eins og annað í svona útgáfu að ein­hvers staðar verður að draga skyn­sam­leg mörk.

Það hlýtur að vera baga­legt fyrir höf­und Fáskrúðs­fjarð­ar­sögu að sjá að í fornum heim­ildum er að mestu þögn um Fáskrúðs­fjörð og síðan að lesa í sókn­ar­lýs­ingu séra Ólafs Ind­riða­sonar frá 1841 að „[þ]essi þögn sýn­ist vitni þess að hvörki hafi orðið þeir atburðir eða lifað þeir menn er merkir hafi metist eða orðið þjóð­kunnir.“ Þetta má sum­part skýra með því að Fáskrúðs­fjörður hefur aldrei legið í þjóð­braut, þangað komu ekki aðrir en þeir sem áttu erindi og má að sumu leyti segja að það gildi enn um Fáskrúðs­fjörð. En aug­ljós­lega hefur þessi þögn fornra heim­ilda um Fáskrúðs­fjörð orðið til að ögra höf­undi og hugsa „ég skal víst“ og blásið honum móði í brjóst.

Það má nefni­lega finna ýmis­legt bita­stætt úr fylgsnum sög­unnar ef vel er leitað og það hefur Smári Geirsson gert. Til Fáskrúðs­fjarðar rata á sínum tíma Tyrkir, í illum til­gangi sem kunn­ugt er, Fáskrúðs­fjörður verður síðar mið­stöð fyrir Frans­menn sem leita á Íslands­mið eins og einnig Fær­ey­ingar og Norðmenn. Þegar þétt­býl­is­myndun hefst á Íslandi hefst auð­vitað einnig þétt­býl­is­myndun á Búðum og Fáskrúðs­fjörður verður vett­vangur íbúa­fjölg­unar og fram­fara eins og víðar má sjá í sam­bæri­legum sögum hinna smærri byggða í land­inu öllu. Þannig verður Fáskrúðs­fjarð­ar­saga líka eins konar Íslands­sögu­lýs­ing – það er sama saga sem ger­ist alls staðar, ýmist ívið hægar eða hraðar, en lík­indin eru það mikil að Fáskrúðr­fjarð­ar­saga á skilið les­enda­hóp langt utan hinna fornu Búða- og Stöðv­ar­hreppa. Dæmi um atriði sem tengir sögur byggða á Íslandi má til dæmis sjá í starfi Guð­mundar Hann­es­sonar, fyrrum land­læknis, sem skoðar skipu­lag byggða í upp­hafi 20. aldar og segir m.a. árið 1916 „að á Búðum í Fáskrúðs­firði hafi götur og bygg­ing­ar­reitir fremur verið gerðir af handa­hófi en fullri for­sjá.“ En Guð­mundur Hann­es­son kom eins og flestir vænt­an­lega vita að skipu­lagi byggða víða um land og er ekki eina dæmið um emb­ætt­is­mann í nýsjálf­stæðu landi sem varð einn að bera ábyrgð á verk­efnum síns sér­sviðs. Þannig dreifð­ust hug­myndir um landið allt, en það voru hug­myndir þess eina manns sem við þær fékkst á þeim tíma.

Af fram­an­sögðu má skilja að fisk­veiðar og sjó­mennska hafa vissu­lega skipað mik­il­vægan sess í lífi Fáskrúðs­firð­inga ásamt auð­vitað land­bún­aði og hvoru­tveggja eru gerð ágæt skil í Fáskrúðs­fjarð­ar­sögu. Og enn má ítreka, að saga hins sér­tæka verður saga hins almenna; hér er stofnað kaup­fé­lag eins og ann­ars staðar á land­inu, verslun og iðn­aði vex fiskur um hrygg, verka­lýðs­hreyf­ing eflist sem og fræðslu­starf­semi og menn­ing­ar­líf. Svo fátt eitt sé nefnt.

Hér gefst ekki tóm til að gera rétt­lát skil alls sem er að finna í efn­is­ríkri og afar fróð­legri Fáskrúðs­fjarð­ar­sögu. En það er við hæfi að spyrja áður en sagt er skilið við hið metn­að­ar­fulla og vand­aða verk „hvað svo“? Nú liggur saga Fáskrúðs­fjarðar fyrir. Eiga nú hin þrjú þykku bindi að safna ryki í hillum les­enda og svo ekki sög­una meir? Eða búa þau kannski yfir óþrjót­andi efni til að vinna frekar með sög­una? Getur verk Smára Geirs­sonar og Bóka­út­gáf­unnar Hóla hvatt til frek­ari dáða þannig að þeim sem málið er skylt geti unnið úr efni­viðnum sýn­ingar, frá­sagnir handa sagna­mönnum, kvik­myndir og leiknar sögur handa gestum og gang­andi – og vita­skuld heima­mönnum líka? Getur Fáskrúðs­fjarð­ar­saga orðið afl í þróun áfram­hald­andi blóm­legrar byggðar á Búðum?

Það væri vel ef svo yrði og góðum til­gangi þá náð.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár