Loks tókst að skipa nýjan dómara við Mannréttindadómstólinn

Ísland hefur í fyrsta sinn skipað konu, Oddnýju Mjöll Arn­ar­dóttur, í emb­ætti dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Auglýsa þurfti tvisvar eftir umsóknum í emb­ættið, en Róbert Spanó lauk störfum við dóm­stól­inn í lok októ­ber.

Loks tókst að skipa nýjan dómara við Mannréttindadómstólinn
Níu ár Dómarar sem skip­aðir eru við Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn eru skip­aðir til níu ára í senn. Mynd: Stjórnarráðið

Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir var í dag kosin dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu af þingi Evr­ópu­ráðs­ins. Hún er fyrsta konan sem er skipuð af Íslandi sem dóm­ari við dóm­stól­inn en skip­un­ar­tím­inn er til níu ára. 

Róbert Spanó var íslenski dóm­ar­inn við Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn frá árinu 2013, en skip­un­ar­tími hans rann út í októ­ber fyrra. Róbert, sem var for­seti dóm­stóls­ins frá 2020,  mátti ekki sækj­ast eftir áfram­hald­andi setu.

Embætti íslenska dóm­ar­ans var fyrst aug­lýst til umsóknar seint á árinu 2021, með það fyrir augum að íslenska ríkið gæti skipað nýjan dóm­ara til að taka við af Róberti þegar skip­un­ar­tími hans leið undir lok. Þá sóttu þrír um emb­ætt­ið. Auk Odd­nýjar voru það Jónas Þór Guð­­munds­­son, ­lög­­mað­ur og stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­un­ar, og Stefán Geir Þór­is­son, lög­mað­ur­.  

Fimm manna nefnd sem Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra skip­aði til að leggja mat á þessa þrjá umsækj­endur lauk störf­um í byrjun febr­ú­ar 2022. Nið­­ur­­staða hennar var sú að allir umsækj­end­­urnir þrír sem sótt­­ust eftir til­­­nefn­ingu teld­ust hæfir til að vera verða til­­­nefndir af hálfu Íslands. 

Í byrjun júní í fyrra tók svo nefnd ráð­gjafa á vegum Evr­ópu­ráðs­ins umsækj­end­urna í við­tal. Eftir þau við­töl drógu Jónas og Stefán Geir hins vegar umsóknir sínar til baka. Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja að nefndin hafi frestað því að skila nið­ur­stöðu sinni eftir við­tölin þar sem umsækj­enda­hóp­ur­inn í heild hafi þótt of veikur til að gegna stöð­unni. Und­an­tekn­ingin þar hafi verið Odd­ný. Þar sem reglur um skipun dóm­ara í emb­ætti hjá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum séu þannig að kjósa þurfi milli þriggja umsækj­enda var ekki annað að gera en að aug­lýsa aftur eftir umsækj­end­um. 

Því var aug­lýst aftur eftir umsækj­endum og í ágúst 2022 var greint frá því að þrír hefðu sótt um. Oddný var sú eina úr fyrri hópnum sem gerði það að nýju. Auk hennar sóttu Dóra Guð­munds­dóttir lög­fræð­ingur og Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, um emb­ættið.

Oddný hefur verið lands­rétt­ar­dóm­ari frá 2018 en áður var hún pró­fessor, bæði við Háskóla Íslands og Háskól­ann í Reykja­vík, auk þess að vera sjálf­stætt starf­andi lög­maður. Hún er með emb­ætt­is­próf frá laga­deild Háskóla Íslands og dokt­ors­próf frá laga­deild Edin­borg­ar­há­skóla.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu var stofn­aður árið 1959 á grund­velli Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og er aðsetur hans í Strass­borg í Frakk­landi. Dóm­stóll­inn fjallar um mál sem til hans er vísað af ein­stak­lingum og samn­ings­að­ilum vegna meintra brota á ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu eða samn­ings­við­aukum við hann. Alls eiga 46 dóm­arar frá aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­ráðs­ins sæti í dóm­stólnum.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár