Valdbeiting og misnotkun í tilfinningasamböndum

Verkið talar beint inn í sam­tíma okkar og er áleitið inn­legg í umræðu vorra tíma um vald­beit­ingu og mis­notkun í til­finn­inga­sam­böndum. En Marius von Mayen­burg tekst að lyfta efn­inu upp á hærra plan, skrifar leik­hús­fræð­ing­ur­inn og rýn­ir­inn Jakob Jónsson.

Valdbeiting og misnotkun í tilfinningasamböndum
Leikhús

Ellen B.

Höfundur Marius von Mayenburg
Þjóðleikhúsið
Gefðu umsögn

Ellen B. er fyrsti hluti þrí­leiks Mariusar von Mayen­burg sem Þjóð­leik­húsið frum­sýnir fyrst leik­húsa; hinir tveir leik­irnir eru Ex og Egal (alveg sama) og verða sýndir síðar á þessu ári. Marius von Mayen­burg er eitt stór­virkasta leik­skáld Evrópu nú um mundir, verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungu­mála og leikin á helstu leik­sviðum álf­unnar.

Ellen B. er kamm­er­verk fyrir þrjá leik­ara, sett upp á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins. Leik­myndin er mínímal­ísk, upp­hækkun á miðju sviði með ljósa­fern­ingi yfir hvítum sófa. Leik­munir ein­skorð­ast við vín­flöskur, glös, bók og tusku­dúkku. Sýningin stendur og fellur með leik­ur­unum og list þeirra – og reyndar skal ekki látið hjá líða að nefna að list leik­ar­ans hér var einnig vel studd af lýs­ingu Björns Berg­steins Guð­munds­sonar, sem minnti á köflum á rann­sókn­ar­stofu, og tón­list Gísla Galdurs Þor­geirs­sonar og hljóð­mynd hans og Arons Þórs Arn­ars­sonar, sem rétt eins og leik­myndin lét lítið yfir sér, en hnykkti á þeim áherslum sem sagan býr yfir.

Þær Astrid (Unnur Ösp) og Klara (Ebba Katrín) búa saman; ald­urs­munur á milli þeirra er nokkur, enda kynnt­ust þær þegar Klara var nem­andi Astridar í skóla. Þegar leik­ur­inn hefst á Astrid von á heim­sókn skóla­stjór­ans í skól­anum þar sem hún starfar og það kemur í ljós að Klöru er mátu­lega um þá heim­sókn gefið. Þegar Úlfur (Benedikt) birt­ist fer af stað atburða­rás þar sem ásak­anir og upp­gjör ganga á víxl – Ellen B. er þar ákveð­inn mið­punktur – og eftir því sem á líður reyn­ist æ erf­ið­ara að festa hendur á hvað er satt og hverju er logið. Á end­anum eru þær stöllur einar eftir í loka­upp­gjöri sem hefur verið nán­ast upp á líf og dauða.

Hér skal engu upp ljóstrað um gang leiks­ins – en það er óhætt að segja að eng­inn verður fyrir von­brigðum með átökin, verkið talar beint inn í sam­tíma okkar og er áleitið inn­legg í umræðu vorra tíma um vald­beit­ingu og mis­notkun í til­finn­inga­sam­böndum. En Marius von Mayen­burg tekst að lyfta efn­inu upp á hærra plan, það nær á köflum mýtólógískum hæðum – varpar fram spurn­ingum, og skilur áhorf­and­ann eftir til að leita svara í eigin sál­arkimum. Þó ekki væri nema þess vegna á Ellen B. skilið að lifa lengi á fjölum leik­húss­ins.

Mér er þó satt að segja spurn af hverju þessi sýn­ing var sett upp á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins. Verkið er kamm­er­leikur og þótt upp­hækk­unin á svið­inu og ljósa­fern­ing­ur­inn fyrir ofan hana minni á hnefa­leika­hring og smækki sjálft leik­svæðið, þá eru hreyf­ingar leik­ar­anna utan upp­hækk­un­ar­innar trufl­andi. Þetta er lítil sýn­ing á of stóru sviði og stærð sviðs­ins dregur úr mætti leik­ar­anna, sem ná þó allir að fylla sal­inn og leyfa hverjum hljómi og hverju svip­brigði að ná allt á aftasta bekk. Hefðu ekki Kassinn eða jafn­vel Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn verið betra rými fyrir þessa sýn­ingu?

Það er unun að hlusta á með­ferð leik­ar­anna á tungu­mál­inu. Hver ein­asta replikka hljómar eðli­lega, sprottin úr aðstæðum og sam­spili per­són­anna – eina und­an­tekn­ingin á þessu er upp­hafs­at­riðið, þar sem er hel­stil mikið óða­got á þeim Unni Ösp og Ebbu Katrínu; það hefði farið betur á að leyfa báðum karakt­erum að hvíla í aðstæðum, leyfa áhorf­endum að kynn­ast þeim betur og átta sig á sam­bandi þeirra. Eins og hér var gert fór for­görðum sú lík­am­lega nánd, sem telja má eðli­legt að enn lifi á milli þeirra.

Að öðrum ólöst­uðum er Benedikt Erlings­son meist­ari hins tal­aða orðs. Hann hefur þennan sjald­gæfa hæfi­leika að geta breytt um hugsun og stefnu í miðju orði, þannig að hann á einu and­ar­taki skapar heilt úní­vers af margræðum hug­renn­inga­tengslum. Það er unun að hlýða á slíka með­ferð á texta.


Þýðing: Bjarni Jónsson
Leik­stjórn: Benedict Andrews
Leikmynd og bún­ingar: Nina Wetzel
Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son
Tónlist: Gísli Galdur Þor­geirs­son
Hljóð­hönnun: Gísli Galdur Þor­geirs­son, Aron Þór Arn­ars­son
Leikarar: Ebba Katrín Finns­dóttir, Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, Benedikt Erlings­son
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár