Íslenskir fjárfestar keyptu í Alvotech fyrir 19,5 milljarða í lokuðu útboði

Verð­mætasta félagið í Kauphöll Íslands, sem tap­aði 28 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022, hefur selt hluta­bréf í sjálfu sér til inn­lendra fjár­festa fyrir næstum 20 millj­arða króna í lok­uðu útboði.

Íslenskir fjárfestar keyptu í Alvotech fyrir 19,5 milljarða í lokuðu útboði
Ráðandi Róbert Wessman er stór eig­andi, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alvotech. Mynd: Mynd: Alvotech

Hópur inn­lendra fag­fjár­festa hafa keypt hluta­bréf í Alvotech fyrir 19,5 millj­arða króna. Hlut­irnir voru seldir í lok­uðu útboði fyrir 1.650 krónur á hlut sem er 4,3 pró­sentum undir dagsloka­gengi bréfa í félag­inu á föstu­dag. 

Bréfin voru áður í eigu Alvotech í gegnum dótt­ur­fé­lag þess, Alvotech Manco ehf. Hluta­fjár­út­boðið hófst 19. jan­úar og lauk í gær. Gert er ráð fyrir að upp­gjör við­skipt­anna og afhend­ing bréfa fari fram 10. febr­úar. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að Alvotech muni nota sölu­and­virði hluta­bréf­anna í almennan rekstur og til ann­arra þarfa félags­ins. Innherji, und­ir­vefur Vísis sem fjallar um efna­hags­mál og við­skipti, segir að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafi keypt um þriðj­ung þeirra bréfa sem seld voru. Það þýðir að þeir hafi keypt bréf fyrir yfir sex millj­arða króna. 

Mark­aðsvirði Alvotech hefur auk­ist um 218 millj­­arða króna eftir að hluta­bréf félags­­ins voru færð af First North mark­aðnum yfir á Aðal­­­markað Kaup­hallar Íslands fyrir um einum og hálfum mán­uði síðan. Í lok dags 7. des­em­ber var mark­aðsvirði Alvotech um 285 millj­­arðar króna en við lok við­­skipta á föstu­dag var það komið í 476 millj­­arða króna. Það þýðir að mark­aðsvirði Alvotech hefur auk­ist um 67 pró­sent á tíma­bil­inu. 

Það gerir Alvotech að verð­mætasta fyr­ir­tæk­inu í Kaup­höll Íslands, en á þessum dögum tók það fram úr Marel sem haldið hefur þeirri stöðu um ára­bil. Mark­aðsvirði Mar­el, sem hefur lækkað um tæp­lega 33 pró­sent á einu ári, var 408 millj­arðar króna á föstu­dag.

Alvotech var fyrst skráð á First North mark­að­inn í fyrra­sumar og hafði fallið skarpt í verði á þeim mán­uðum sem liðnir voru frá skrán­ingu. 

Alvotech er líka skráð á markað í Banda­­ríkj­unum og er eina íslenska félagið sem nokkru sinni hefur verið skráð bæði þar og hér. 

Tilkynningaflóð síðustu mánuði

Alvotech er líf­­tækn­i­­fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að þróun og fram­­leiðslu líf­­tækn­i­hlið­­stæð­u­lyfja fyrir sjúk­l­inga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leið­andi fyr­ir­tæki á sviði líf­­tækn­i­hlið­­stæð­u­lyfja.

Félagið setti í fyrra á markað sam­heita­lyfið Hukyndra sem fram­­leitt er í lyfja­verk­smiðju félags­­ins í Vatns­­­­­mýr­inni. Um er að ræða fyrsta lyf Alvotech á mark­aði. Þann 7. des­em­ber var til­­kynnt um að lyfið væri komið í sölu í 16 Evr­­ópu­löndum og í Kanada. 

Síðar í des­em­ber var greint frá því að Alvotech hefði gengið frá fjár­mögnun að fjár­hæð um 8,5 millj­arða króna, miðað við þáver­andi gengi Banda­ríkja­dals, í formi víkj­andi skulda­bréfa með breytirétti í almenn hluta­bréf í Alvotech. Eig­endur skulda­bréf­anna hafa rétt til þess að breyta upp­runa­legum höf­uð­stól auk áfall­inna vaxta og ávöxt­unar að hluta eða öllu leyti í almenn hluta­bréf í Alvotech á föstu gengi, sem er tíu Banda­ríkja­dalir á hlut. Það er lægra verð en gengi bréf­anna var í Kaup­höll­inni í New York á föstu­dag og lægra verð en þeir hlutir sem seldir voru til nýrra fjár­festa um helg­ina. Breytirétt­inn má nýta að hluta eða öllu leyti þann 31. des­em­ber 2023 eða 30. júní 2024. 

Nokkrum dögum síðar, 22. des­em­ber, var svo greint frá því að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefði lokið skoðun á umsókn um mark­aðs­leyfi fyrir AVT02, sem er líf­tækni­lyfja­hlið­stæða ­gigt­ar- og húð­sjúk­dóma­lyfs­ins Humira, og stað­fest að fram­lögð gögn sýni að kröfur um útskipti­leika séu upp­fyllt­ar. Humira er sölu­hæsta lyf heims og selst fyrir tæp­lega 2.900 millj­arða króna á ári, en um 85 pró­sent söl­unnar er í Banda­ríkj­un­um. 

Veit­ing mark­aðs­leyfis í Banda­ríkj­unum er nú háð full­nægj­andi nið­ur­stöðu kom­andi end­ur­út­tektar á fram­leiðslu­að­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík sem áætlað er að fari fram á fyrsta fjórð­ungi 2023. Umsókn­ina um mark­aðs­leyfi á að afgreiða í síð­asta lagi 13. apríl næst­kom­andi.

Þann 11. jan­úar var greint frá því að Alvotech væri byrjað að rann­saka lyfja­hvörf AVT05, fyr­ir­hug­aðri líf­tækni­lyfja­hlið­stæðu við Simponi og Simponi Aria, sem er notað til með­ferðar við þrá­látum bólgu­sjúk­dómum, svo sem liða­gigt og sóra­liða­gigt. Það var fimmta líf­tækni­hlið­stæðan sem fyr­ir­tækið hefur hafið lyfja­rann­sókn á. 

Mikið tap í fyrra en lofa hagnaði bráðum

Þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Mark Levick, for­­stjóri félags­­ins, hefði ákveðið að biðj­­ast lausnar og að Róbert Wessman, starf­andi stjórn­­­ar­­for­­maður og stofn­andi Alvotech, myndi taka við for­­stjóra­­starf­inu á nýju ári. Róbert er því bæði stjórn­­­ar­­for­­maður og for­­stjóri. 

Alvotech tap­aði 28 millj­­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022. Tekjur félags­­ins juk­ust hins vegar mik­ið, úr 291 millj­­ónum króna á sama tíma­bili 2021 í 8,7 millj­­arða króna. Róbert Wessman sagði við Frétta­vakt­ina á Hring­braut í síð­asta mán­uði að áætl­­­anir geri ráð fyrir að hagn­aður verði af rekstr­inum eftir mitt ár 2023.

Um síð­ustu ára­mót var fjár­fest­inga­fé­lagið Aztiq, sem er að stórum hluta í eigu Róberts, með rúm­lega 40 pró­senta hlut í Alvotech. Þar á eftir kom Alvogen, syst­ur­fé­lag Alvotech, með um 30 pró­sent, en Róbert á um þriðj­ung í því félagi. Þessi tvö félög voru langstærstu eig­endur Alvotech, en hægt er að sjá hlut­haf­alist­ann hér. Það mun svo koma í ljós 10. febr­úar hvaða inn­lendu fjár­festar bætt­ust við hóp­inn í útboð­inu um liðna helgi.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár