959. spurningaþraut: Bíos og graphikós?

959. spurningaþraut: Bíos og graphikós?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­að­ist sú stóra sprengju­flug­vél úr seinni heims­styrj­öld sem hér sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Blackpool heitir borg ein á Bret­landi og stendur við Írlands­haf. Nafnið þýðir vita­skuld svartur pollur. En í 215 kíló­metra fjar­lægð í beinni loft­línu frá Blackpool er önnur borg og nafn hennar þýðir líka svartur (eða dökkur) pollur, en að sönnu á öðru tungu­máli en ensku. Undir hvaða nafni þekkjum við þennan seinni Svart­poll?

2.  Olof Scholz gegnir um þessar mundir ábyrgð­ar­miklu starfi. Hann er sem sé ... hvað?

3.  Raf­fa­ello Sanzio da Urbino var ítalskur lista­maður sem uppi var um 1500 og er oft­ast ein­fald­lega kall­aður Rafael. Við hvaða list­grein fékkst Rafael?

4.  Dona­tella Versace er líka frægur Ítali en við hvað fæst hún?

5.  Hver skrif­aði það sem við köllum jóla­guð­spjallið?

6.  Hver var for­sæt­is­ráð­herra Íslands í tæpt ár, frá apríl 2016 til jan­úar 2017?

7.  Hver tók þá við?

8.  Íslenska orðið bíó er komið frá danska orð­inu biograf­tea­ter. Orðið biograf er á dönsku notað bæði yfir kvik­mynda­hús og ævi­sögur (biografie), en það er sam­sett úr tveim grískum orðum — bíos og grap­hikós. Hvað þýða þessi tvö orð?  

9.  Upp á hvað var haldið á Íslandi árið 1930?

10.  Á hvaða svæði er jóga upp­runnið? Er það í Banda­ríkj­unum — á Indlandi — í Japan — í Kína — í Persíu — í Tíbet?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessir kátu félagar voru í hljóm­sveit sem þeir nefndu ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Dublin.

2.  Kanslari Þýska­lands.

3.  Mál­ara­list.

4.  Tísku.

5.  Lúkas.

6.  Sigurður Ingi.

7.  Bjarni Bene­dikts­son.

8.  Bíos þýðir líf og grap­hikós þýðir eitt­hvað sem er teiknað eða lýst — má segja. Merking beggja orða — biograf sem kvik­mynda­hús og biografie sem ævi­saga — er því í raun hin sama: Lýsing á lífi.

9.  Þúsund ára afmæli Alþingis.

10.  Á Indlandi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Flug­vélin var nefnd Fljúg­andi virki, á ensku Flying Fortress. En líka fæst stig fyrir Boeing B-17.

Hljóm­sveitin á neðri mynd­inni var Sex Pistols.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár