„Þeir lugu að okkur í mánuð“

Tveimur árum eftir alræmdan Covid-túr frysti­togarans Júlíusar Geir­mundssonar ÍS glíma margir úr áhöfninni enn við afleiðingar veikindanna. Lögreglu­skýrslur, sjópróf og samtöl Stundarinnar við fjölda skipverja varpa ljósi á hvernig áhöfninni var ítrekað sagt ósatt með þeim afleiðingum að mun fleiri veiktust. Gögnin vekja líka spurningar um hvers vegna dagleg og ítarleg samskipti skip­stjórans við útgerðina voru ekki rannsökuð frekar.

Tvö ár eru síðan frysti­togarinn Júlíus Geir­mundsson kom í land á Ísafirði eftir sögulega sjóferð. Af 25 manna áhöfn reyndust allir nema þrír hafa smitast af Covid þær rúmu þrjár vikur sem skipið hafði verið á sjó.

Smám saman fóru að kvisast út frásagnir af því hvernig skip­verjar höfðu lagst veikir hver á fætur öðrum, og margir legið illa haldnir jafnvel svo dögum skipti. Á meðan hafi félagar þeirra reynt að halda vinnslunni um borð gangandi, veikir.

Allan túrinn var skip­verjum ítrekað sagt að skip­stjórinn væri í nær daglegu sambandi við lækni, sem segði enga hættu á ferðum. Veikindin væru flensa. Við skýrslu­tökur hjá lögreglu kom hins vegar fram að einu daglegu samskipti skip­stjórans í land voru við yfirmenn útgerðar skipsins, Hrað­frysti­hússins Gunnvarar í Hnífsdal. Skip­stjórinn hefði einungis einu sinni rætt við lækni sem lýsti samtalinu með allt öðrum hætti.

Frásagnir af raunum skip­verjanna vöktu hörð …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jónína Óskarsdóttir Nína skrifaði
    Baráttukveðjur til áhafnarinnar, hræðilegt að svona geti gerst í dag!
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Takk fyrir að sýna okkur hvaða augum útgerðarmenn á Íslandi líta starfsfólkið hjá sér . Það er svo margt sem maður gæti sagt eftir lestur hér .
    5
    • Jón Aron skrifaði
      Það má ekki dæma allar útgerðir út frá einni sem leggur verðmæti ofar en heilsu áhafnar, hef unnið fyrir hg, þorbjörn, hb granda, samherja og svn...hg er sennilega sú alversta utgerð sem eg hef verið hjá.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Martröðin á Júllanum

ViðtalMartröðin á Júllanum

Opnaði sig um Covid-túr og hætti í mótmæla­skyni

Sjónvarps­viðtal við Arnar Gunnar Hilmarsson, skipverja á Júlíusi Geir­mundssyni ÍS, vakti mikla athygli fyrir tveimur árum. Hann lýsti þar nöturlegri mánaðar­langri sjóferð áhafnarinnar, veikri af Covid. Arnar sagði upp störfum í mótmæla­skyni við framgöngu útgerð­ar­innar stuttu seinna. Hann segir nýjar upplýsingar styrkja sig í þeirri trú að áhöfnin hafi verið misnotuð af útgerðinni.
FréttirMartröðin á Júllanum

„Útgerðin ætlaði að gera mig ábyrga“

Súsanna Ástvalds­dóttir, yfir­læknir á Heilbrigðis­stofnun Vestfjarða, segir það hafa verið sér áfall að málsvörn skip­stjóra og útgerðar Júlíusar Geir­mundssonar ÍS hafi falist í því að gera hana ábyrga fyrir málinu. Farið hafi verið fram á að hún skrifaði undir yfir­lýsingu með HG þar sem ætlunin var að hún axlaði ábyrgð. Fyrir­tækið hafi reynt að grafa undan trausti á henni og samfélaginu fyrir vestan.

Mest lesið undanfarið ár