FME sektaði Kviku vegna hagsmunaárekstra Ármanns sem fram koma í Pandóruskjölunum

Ármann Þor­valds­son, aðstoð­ar­for­stjóri Kviku, átti að minnsta kosti tvö félög í skatta­skjólum sem koma fram í Pand­óru­skjöl­unum. Gögnin sýna einnig við­skipti bresks félags sem hann stofn­aði sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sektað Kviku fyrir að stunda við­skipti við. Kvika stað­festir að sektin hafi verið út af hags­muna­á­rekstrum tengdum Ármanni og breska félag­inu.

FME sektaði Kviku vegna hagsmunaárekstra Ármanns sem fram koma í Pandóruskjölunum

Ármann Þor­valds­son, aðstoð­ar­for­stjóri Kviku banka, átti að minnsta kosti tvö aflands­fé­lög í skatta­skjólum. Annað var á Tortólu og heitir Addis Partners S.A. og átti Ármann það einn á meðan hitt heitir Waltina Assets og er í Panama. Fleiri hlut­hafar voru að Panama­fé­lag­inu. Ármann stofn­aði fyrr­nefnda félagið á Tortólu árið 2012 en eign­að­ist hitt félagið árið 2015. Þetta kemur fram í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu. 

Ármann, sem er þekkt­astur fyrir að vera fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþing Singer og Fried­lander í London á árunum fyrir hrun, segir í svörum við spurn­ingum Stund­ar­innar að hann hafi stofnað bæði félögin „um og eftir 2010“. Hann seg­ist ekki hafa átt neina hluti í félög­unum þegar hann hóf störf hjá Kviku: „Þessi félög sem þú nefnir voru stofnuð um og eftir 2010 þegar ég var búsettur í Bret­landi og vann einkum í ráð­gjaf­ar­verk­efnum og eigin fjár­fest­ingum. Af þessum félögum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár