Svívirt, myrt og gleymd börn í Kanada

Börn voru tekin frá for­eldrum sínum til dvalar og mennt­unar í kaþ­ólskum skólum í Kanada. Grafir þeirra og sögur eru nú að koma fram í dags­ljósið.

Svívirt, myrt og gleymd börn í Kanada
Vett­vangur lík­fundar Hér nærri Marieval Indian Res­idential School í Saskatchewan hafa fund­ist 750 ómerktar grafir. Mynd: GEOFF ROBINS / AFP

Fjölda­grafir á annað þús­und barna, sem fund­ist hafa við gamla heima­vist­ar­skóla í Kanada und­an­farnar vikur, varpa ljósi á skelfi­lega arf­leifð sem aldrei var gerð upp. Börn kanadískra frum­byggja voru tekin frá þeim með skipu­lögðum hætti og vistuð við oft hörmu­legar aðstæður þar sem menn­ing þeirra var barin úr þeim. Síðustu stofn­unum af þessu tagi var ekki lokað fyrr en 1996 og glæpir sem þar voru framdir eru enn að líta dags­ins ljós. 

Kerfið var form­lega kallað Canadian Indian Res­idential School System en í raun var um nauð­ung­ar­vistun að ræða. Því var komið á lagg­irnar undir lok 19. aldar með það að mark­miði að útrýma menn­ingu frum­byggja og aðlaga næstu kyn­slóðir þeirra að siðum hvíta manns­ins til að skapa betri sam­fé­lags­þegna. Var það meðal ann­ars gert með lík­am­legu ofbeldi og öðrum þving­unum. Þau sem töl­uðu sitt eigið tungu­mál eða reyndu að virða forn trú­ar­brögð sín voru ein­angruð og pyntuð til hlýðni. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár