Um heimsenda og hlátur

Í Hómerskviðum finn­ast víst engin dæmi um að heil­brigt fólk hlæi, þar hlær eng­inn nema fávitar, geð­sjúkir og þeir sem skugga­verur hafa hel­tekið, en hefur þú komið til Feneyja?

Um heimsenda og hlátur

„Skarp­héð­inn stóð með reidda öxina og glotti við.“

– Brennu-Njáls saga, 120. kafli.

*

Mér hefur verið sagt að í Hómerskviðum finn­ist engin dæmi um að heil­brigt fólk hlæi. Í þeim bókum hlæja víst ein­ungis fávitar og þeir sem eru bil­aðir á geði – nú eða þá þeir sem skugga­verur hafa hel­tekið. Engir hlæja nema þeir.

Þennan fróð­leiksmola hef ég frá vin­konu minni. Hún er fróð um marga hluti. Við höfðum verið að ræða eðli hlát­urs. Hlátur er ekki ein­leik­inn. Þaðan barst talið að hinum síglott­andi Skarp­héðni Njáls­syni frá Berg­þórs­hvoli og sen­unni við Lögberg þar sem reynt er til þrautar að ná sættum vegna vígs Hösk­uldar Hvíta­ness­goða. Það vildi nefni­lega þannig til að við vorum bæði nýbúin að end­ur­lesa Njálu. Í slíku spjalli er síðan auð­vitað ekki nema spöl­korn sem skilur að höf­und Njálu og höf­und­inn Hómer, enda eru þeir líkir náungar um margt. Þessi vin­kona mín hefur hins vegar þann furðu­lega kæk að gjarnan þegar umræður eru komnar á rek­spöl – inn á áhuga­verðar slóðir, jafn­vel farið að glitta í ein­róma nið­ur­stöðu – þá grípur hún orðið ófor­var­endis og beinir til manns hnit­mið­ari spurn­ingu um eitt­hvað allt annað og alls­endis ótengt. Þetta veit ég og það hefði því ekki átt að koma mér á óvart að rétt eftir að hún hafði sleppt orð­inu um skugga­ver­urnar sem valda hlátri sam­kvæmt Hómer, þá spurði hún, án þess að hafa einu sinni „en“ að for­mála: „Hefurðu komið til Feneyja? Og ef svo, hvers minn­ist þú þaðan? Feneyjar?“

Þessari vin­konu minni leið­ast nið­ur­stöður. Hún forð­ast þær eins og brennt barn eld­inn. Mig grunar að það teng­ist því að nið­ur­stöður eru enda­stöðvar. Líklega er það þess vegna sem hún grípur gjarnan til þessa bragðs. Og í þetta skiptið, svona til að taka af allan vafa, end­ur­tók hún orðið: „Feneyjar?“ 

*

„Reiði hvers manns er í galli en líf í hjarta,

minni í heila, metnaður í lungum, hlátur í milti.“

 – Fóst­bræðra­saga, (Úr Flat­eyj­ar­bók), 21. kafli.

*

Nú vill svo til að ég hef komið til Feneyja. Og reyndar oftar en einu sinni. Og fyrst minnst er á minn­ingar þá hefur mér oft einmitt fund­ist að Feneyjar séu nálægt því að að vera eins og minja­safn fyrir frum­myndir skynj­unar. Þegar skynj­anir storkna, gjarnan í örlítið afmynd­uðu formi, þá verður jú til minn­ing. Feneyjar eru ein­hvern veg­inn raun­veru­legri en raun­veru­leik­inn, eins og frum­mynd­irnar í kenn­ingum Platóns eru skarp­ari en skuggar þeirra sem dansa fyrir augum okkar hvers­dags­lega. Feneyjar kalla þannig fram næm­ari skynjun en flestar aðrar borgir, hefur mér fund­ist. Ég hef á til­finn­ing­unni að ástæða þess sé ekki síst hin sér­stæða hljóð­vist sem þar er. Slík borg, þar sem engir bílar eða öku­tæki finn­ast, verður fyrir sveita­manni af norð­ur­hjara furðu­lega þögul, eig­in­lega svo að loki maður aug­unum, þá hljómar hún helst eins og maður sé inn­an­húss frekar en utandyra – þótt maður standi úti á miðri götu.

Strætin eru þröng, lík­ari gangi eða for­dyri í húsi. Þau eru líka skjól­góð, þessi völ­und­ar­hús sem göt­urnar teikna, þannig að í ofaná­lag er í Feneyjum nær alltaf logn. Á Íslandi er aldrei logn nema inn­an­dyra. Öll skynjun manns ber því keim þess að vera í skjóli, undir þaki, ekki úti undir berum himni.

Hljóðin eru samt þarna. Þau læð­ast út um opna glugga eða gegnum rifur á glugga­hlerum. Hlát­ur­roka berst eins og gára á vatni eftir stígnum á móti manni. Og aldrei finnst mér það bregð­ast að í Feneyjum, að kvöldi til, heyri ég ein­hvern and­lits­lausan mann eða konu spila á píanó í fjarska. Oftast er þar leikið af færni en þó ekki lýta­laust – örlítið hik­andi á stöku stað – til að taka af öll tví­mæli um að þar er spilað í alvöru, ekki af plötu. Oftast hljómar það í mínum eyrum sem leikið sé eftir nótna­bókum eftir Chopin en þar kann mér að skjátl­ast. Kannski er það Schumann, kannski Liszt, ég er eng­inn sér­fræð­ingur í þess­ari gerð tón­listar. Ég nota „Chopin“ lík­lega sem ein­hvers konar regn­hlíf­ar­hug­tak yfir tón­list á strætum Feneyja. En það er ekki alltaf heldur gott að segja nákvæm­lega hvert lagið er því það eru sveiflur í tón­hæð­inni, hún hækkar og lækkar, hún fellur að og frá, ekki ólíkt öldum við strönd.

Þar sem strætin í Feneyjum eru svona hálf­vegis inn­an­húss, þá ber­ast manni hljóðin heldur ekki beint til eyrna því á leið sinni að hljóð­himn­unni spegl­ast þau á ótal veggjum, yfir­borði skipa­skurða, götu­steinum, fram­stæðum búð­ar­skiltum og glugga­gleri … Maður heyrir berg­mál af tón­list. Raunar mætti segja að maður heyri berg­mál af berg­máli, svo renn­blautir eru tón­arnir þegar þeir finna eyru manns á end­anum. Hljóðin draga því bók­staf­lega upp hljóð­mynd – mjög marg­brotna – af þessu borg­ar­rými, bygg­ing­unum, göt­unum, öllu sem þar er. Maður er því í raun að hlusta á mynd af borg­inni. Einhvers staðar, nær eða fjær, það er engin leið að vita, er ein­hver við opinn glugga að leika nocturnu eftir Chopin á píanó með aðstoð hund­rað hús­veggja. Í lokin slær hann eða hún feil­nótu og bjargar sér með því að henda í eitt sígilt salt­kjöt-og-baunir-túkall í lokin og slá svo fast á grunn­bassa­nót­una á eftir. Áheyr­andi hans klappar og hlær inni­lega. Nema nátt­úr­lega það hafi verið píanó­leik­ar­inn sjálfur sem þarna skellti uppúr, glettnis- eða grall­arahlátri, til að fela vand­ræða­gang­inn yfir mis­tök­unum. Það er engin leið að segja hver þar hló.

*

„Eigi ætla eg hlátur hennar jafn­góðan

sem þú, segir Ósvífur.“

–  Brennu-Njáls saga, 11. kafli.

*

Ég hef komið mér upp þeim vana að sækja heim Mynd­list­artví­ær­ing­inn yfir síð­ustu sýn­ing­ar­helg­ina. Það er ákjós­an­legur tími, fáir túristar á ferli, engin skemmti­ferða­skip, gist­ing á við­ráð­an­legu verði. Önnur ástæða fyrir því að vera þarna loka­dag­ana er sú að verkin eru farin að láta á sjá. Það er búið að horfa svo mikið á þau: Máln­ingin er byrjuð að flagna í horn­inu í loft­inu vegna rakans, mynd­varp­arnir farnir að flökta – og það tekur því ekki að dytta að þessu úr þessu, sýn­ing­unni er alveg að ljúka. Skál­arnir sem um vorið voru óað­finn­an­legir, blá­hvítir, eru sumir orðnir næsta óhrjá­legir. Næstum eins og litlir minea­túr minja­gripir, um svip­aða til­finn­ingu og þá sem heltók Byron þegar hann kleif rústir Kolos­eums í fyrsta Evr­óput­úrnum. Ég held að for­gengi­leik­inn hljóti að eiga sína heima­leiki í Feneyjum. 

Síðast sótti ég Feneyjar heim fyrir rúmu ári, í nóv­em­ber 2019. Strætin voru renn­vot þegar ég og ferða­fé­lagi minn gengum upp frá báta­strætó­stoppi­stöð­inni að hót­el­inu. Bleytan stakk í stúf við ský­lausan him­in­inn. Þegar við komum á hót­elið sögðum við til nafns, sögð­umst eiga pantað. Luca í receptioninni spurði á lélegri ensku:

„Já, herra, er það svo?“

Ég varð heldur hvumsa og svar­aði:

„Já, það er svo, finn­urðu ekki pönt­un­ina í tölv­unni?“

„Nei,“ ans­aði hann „tölv­urnar okkar voru hér undir desk­inum en þær stóðu í hné­djúpu vatni í flóð­inu í nótt. Hér á jarð­hæð­inni virka engin raf­magns­tæki.“

Nið­ur­staðan varð sú að Luca bað okkur að greina frá pönt­un­unum eftir minni og til­taka lengd dvalar og hve mikið við hefðum sam­þykkt að greiða fyrir. Þetta skrif­aði hann niður á bleðil og svo hand­söl­uðum við samn­ing­inn.

Dagana á undan, í nóv­em­ber 2019, hafði gert mestu flóð sem dunið höfðu á Feneyjum um ára­tuga­skeið. Feney­ingar kalla það aqua alta, hátt vatn, þegar flóð fer meira en metra upp fyrir það sem venju­legt má kall­ast.

Daginn áður hafði háflæði farið nærri tveimur metrum. Luca sagði okkur að nærri 90% borg­ar­innar hefðu farið undir vatn þá um nótt­ina. „Áður var þetta und­an­tekn­ing, sjald­gæft eins og snjó­koma í Róm! Gerðist með ára­tuga­bili. En nú er þetta að verða dag­legt brauð, eins og snjó­koma á Íslandi kannski!“ sagði hann og hló grall­ara­lega um leið og hann rétti aðstoð­ar­manni sínum vasa­ljós. Sá hvarf síðan inn í myrkvað bak­her­bergi. Líklega að reyna að koma raf­magn­inu aftur á. Við­eig­andi að maður að nafni Luca færi öðrum manni ljós, hugs­aði ég.

Morg­un­inn eftir komumst við ekki út af hót­el­inu, reyndar komumst við ekki niður í mat­sal­inn. Það var sjór yfir öllu á jarð­hæð­inni. Luca sendi her­berg­is­þjón­ust­una upp með skín­andi svört gúmmí­stíg­vél og veif­aði og hló til okkar þegar við óðum sjó­inn og út um dyr hót­els­ins.

*

„Þá tekur hann úr geirnaglann úr spjót­inu

 og skaut til hans með hlátri miklum.“

 – Fljótsdæla saga, 16. kafli.

*

Hvílík upp­finn­ing: Stígvél. Ég minn­ist þess að hafa heyrt af útvarps­við­tali við gamla konu. Það var tekið í til­efni af stóraf­mæli, gott ef hún var ekki orðin ald­ar­gömul. Í ljósi þess að hún hefði lifað mestu breyt­ing­ar­tíma Íslands­sög­unnar, séð tvær heims­styrj­aldir, heims­far­aldra, frosta­vetur, orðið vitni að raf­magn­s­væð­ing­unni, til­komu útvarps og sjón­varps, sím­ans, tölv­unnar, nefndu það! … þá spurði spyrill­inn hvað stæði nú upp úr þegar hún liti til baka, hvað hefði nú verið stærsta breyt­ingin, mesta bylt­ingin sem hún hefði lifað. Það stóð ekki á svar­inu: Það voru gúmmí­stíg­vélin. Í þús­und ár hafði þjóðin verið blaut í fæt­urna, svo einn dag­inn komu stíg­vélin. Það vita allir ung­lingar sem af tísku­þrjósku hafa vaðið slabb í striga­skóm að það er fátt glat­aðra en að vera blautur í fæt­urna. Samt hafði ég aldrei hugsað út í þetta fyrr.

Þarna sem ég gösl­að­ist áfram um Fen­eyja­strætin á spá­nýjum vað­stíg­vélum hugs­aði ég hvers vegna hvergi sæist stytta af mann­inum eða kon­unni sem fann upp gúmmí­stíg­vélin? Svo missti ég mig aðeins og fór að hugsa um hina sem ættu skilið styttu en lægju eilíf­lega óbættir hjá garði: Gaurinn sem fann upp lyk­il­inn undir mott­unni, hvað með hann? Og sá eða sú sem fyrst fann upp á því að bræða ost? Ímyndaðu þér lífið án bráð­ins osts, ímynd­aðu þér lífið án vað­stíg­véla …

„Stígvél“. Þetta orð hefur vaf­ist fyrir mér frá því ég var strákur. Það meikar akkúrat helm­ings sens. Hálf­vegis skilj­an­legt. Og það er ein­hvern veg­inn verra en ef það væri 100% merk­ing­ar­laus vit­leysa. „Stíg“ er aug­ljós­lega dregið af sögn­inni að stíga. Það er skilj­an­legt svo sem, þetta er nú einu sinni bún­aður til að ganga í. En „vél“? Það er full­kom­lega óvið­eig­andi. Skór er ekki vél. Vélar hafa innri hreyfi­afl eða -getu; þær knýja, eru ekki knúnar. Og það vita allir sem gengið hafa í stíg­vélum að þrátt fyrir alla þeirra kosti þá þarf maður ennþá að ganga í þeim. Það gera þau ekki fyrir mann.

Í þessum þönkum geng ég fram­hjá röð af götu­sölum. Hin frjálsi mark­aður er fljótur að sjá tæki­færi í nátt­úru­ham­förum, eins og öfga­flóðum. Mang­ar­arnir sem áður seldu regn­hlífar og minja­gripi eru auð­vitað farnir að selja stíg­vél! Og nema hvað, skiltin yfir bás­unum þeirra upp­lýsa í einni svipan þessa ráð­gátu æsku minnar: „Stivale! Stivale! Stivale!“

Það hefur ekki þurft neitt staf­setn­ing­ar­séní til að leið­rétta merk­ing­una utan á pappa­kass­anum sem geymdi þessa nýju gerð af ítölskum skóm þegar þeir röt­uðu fyrst í hill­una í kaup­fé­lag­inu. Með ein­faldri og inn­byggðri merk­ing­ar­leit og til­vilj­un­ar­hljóð­varpsum­myndun verður „stivale“ að „stíg­vélum“.

Það var svo full­nægj­andi að leysa þessa gömul orða­gátu, sem svo lengi hafði angrað mig, að ég hét mér því að bera þessa nýfundnu lausn ekki undir nokkurn mér fróð­ari mann. Þetta var svo góð til­finn­ing að ég vildi ekki taka neina áhættu með þessa nið­ur­stöðu. 

*

„Allir horfðu á og hlæja að honum.

Hann fer ekki að því. “–

 Finnboga saga ramma, 5. kafli.

* 

Annan dag­inn okkar hafði vatnið sjatnað nokkuð. Strætin voru nú á þurru landi á ný. Við skund­uðum út á sýn­ing­ar­svæðið snemma morg­uns í striga­skóm.

Síðdegis tókum við, ég og ferða­fé­lagi minn, stefn­una á litáíska skál­ann en komum að luktum dyrum. Verkið sem hann hýsti, Sea and Sun, og fjall­aði reyndar um yfir­vof­andi nátt­úruvá, hafði eyði­lagst í einu flóð­inu fyrr í vik­unni. Því yrði ekki bjargað úr þessu, sagði vin­gjarn­legur dyra­vörður, sem baðst afsök­unar á því að við hefðum farið fýlu­ferð. Við end­uðum í lokap­ar­tíi í off-venue-skála ein­hverra efn­aðra furðu­fugla frá Rúss­landi. Við gættum ekki að okkur og meðan við gúff­uðum í okkur snittur og drukkum freyði­vín flæddi að. Hús Rússanna var orðið að eyju og við að skip­brots­mönnum á striga­skóm. Við ákváðum að bíða eftir að það byrj­aði að falla frá, þáðum annað glas og fylgd­umst með listapés­unum sniffa kampa­vín og dansa af því að það átti að dansa, hlæja af hálf­volgum tryll­ingi og hvetja áfram plötu­snúð­inn sem aug­ljós­lega hafði verið fluttur inn frá hinum dreifð­ari byggðum Rúss­lands til að spila Sovét-popp fyrir fólkið í Feneyjum. Plötu­snúð­ur­inn virt­ist ekki vera „in on the joke“. Það kemur fyrir, býst ég við. Á end­anum gáf­umst við upp á að bíða eftir sjáv­ar­föll­unum, fórum úr skónum, hnýttum skóreimarnar saman og hengdum skóna yfir háls­inn, brettum upp buxna­skálm­arnar, þökk­uðum fyrir okkur og gengum út.

Vatnið var dýpra en dag­inn áður. Stígvél hefðu varla dugað, sögðum við okkur til að afsaka klúðrið. Og samt átti vatnið enn að hækka dag­inn eftir, sagði Luca. Sjórinn var ekki eins kaldur og ég hafði búist við. Kannski er það vegna þess að ég er íslenskur, en mér virð­ist sjór alltaf vera kald­ari en hann reyn­ist síðan í raun og veru. Þetta er eflaust lært gena­við­bragð, praktískur ótti.

Það var gaman að ganga svona um þessa sjáv­ar­slóða, við hlógum tístandi og eflaust galsa­fullum hlátri; not­uðum sím­ana sem vasa­ljós. Með þá að vopni kunnum við fótum okkar for­ráð, sáum til botns, í götustein­ana. Við vorum tækni­lega að vaða sík­is­vatnið. Það virk­aði nú ekki alltof hreint í skurð­unum. Ég við­ur­kenni það að ég velti því fyrir mér hvernig klóak- og skolp­hreinsi­málum væri háttað í Feneyjum. Ég þvoði fæt­urna nokkuð vand­lega þegar ég kom upp á hótel.

*

„Skarp­héð­inn hló að og spurði

hví hún abbaðist upp á arfasátuna.“

– Brennu-Njáls saga, 124. kafli.

*

Síðasta dag­inn okkar vökn­uðum við snemma. Það var enn að falla að og þótt strætin væru þurr höfðum við lært okkar lexíu. Fórum í stíg­vélum í þetta skiptið.

Að kvöldi dags, klukkan sex, skelltu dyra­verð­irnir á hátíð­ar­svæð­inu í lás. Kvöld­flóðið var byrjað að láta á sér kræla. Við ferða­fé­lag­arnir urðum að gæta að hvar við stigum niður fæti, velja leiðir sem lágu hærra því sumar gangstéttirnar lágu svo lágt, voru undir svo miklu vatni, að það hefði flætt yfir og ofan í stígvélin ef maður hefði stolist til að fara stystu leið­ina milli tveggja punkta. Ungur Amer­ík­ani hafði leyst vand­ann með því að fara í stutt­buxur og vera skó­laus. Honum voru allir vegir færir. Vina­hóp­ur­inn hvatti hann áfram. Hann gekk beint af augum, óð hné­djúpan sjó­inn en leit ekki niður. Fljót­lega gerð­ist hið óum­flýj­an­lega: hann steig útaf bakk­anum og fór á bólakaf í síkið. Þetta minnti á glæfra­bragð í kvik­mynd eftir Buster Keaton. Óvænt og full­kom­lega fram­kvæmt.

*

„Þor­steinn skellti upp, hló og þá mælti Þórólfur:

Til ills höfum vér þig upp dregið er þú hlærð að óförum vorum.“

– Svarfdæla saga, 2. kafli.

* 

Nærri Mark­ús­ar­torg­inu áðum við og horfðum út yfir kanal­inn í átt að heilögum Georgi. Þetta var í ljósa­skipt­unum og him­inn­inn var til­komu­mik­ill: Sólin var að setj­ast, á sinn sér-feneyska, föl­bleika og rykuga hátt, rétt eins og hún er búin að vera að gera á mál­verkum end­ur­reisn­ar­mál­ar­anna í nærri sex hund­ruð ár. Himn­arnir á þeim mál­verkum eru ekk­ert úr lausu lofti gripnir. Þeir eru ekki einu sinni frum­legir. Þeir hanga yfir Feneyjum enn þann dag í dag.

Á stöpli við bakk­ann, milli okkar og sól­set­urs­ins, stendur skugga­mynd af götu­spil­ara og leikur á ten­ór­sax­ó­fón. Kvöld­kulið hefur keim af nið­ur­stöðu. Sax­ó­fónist­inn blæs af lífs og sálar kröftum í háspenntan lúð­ur­inn. Hann spilar tit­il­lagið úr kvik­mynd­inni Títanik á meðan sólin sest á vest­ræna menn­ingu.

*

„Og er Illugi vissi að þeir ætluðu

að höggva hann þá hló hann

og mælti svo: Nú réðuð þér það

af er mér var nær skapi.“

– Grettis saga, 82. kafli.

*

Það var enn að falla að, en Mark­ús­ar­torgið var á þurru. Flóðið átti ekki að ná hámarki fyrr en um mið­næt­ur­bil. Við komum okkur fyrir á Caffè Florian, skál­uðum skyldu­skál fyrir gamla fastakúnn­anum þar, fyrstu bar­flug­unni, flag­ar­anum Casanova. Caffè Florian hefur verið starf­rækt frá  1720. Það er eins og margt í vest­rænni menn­ingu, löngu orðið að klisju. Og samt kem ég jafnan þar við, þrátt fyrir útbelgda prís­ana, því rétt eins og Elvis, Bach og hug­mynd um klisju þá er Caffè Florian klisja vegna þess að það er ekki sem verst.

Það eru furðu­lega fáir á ferli eftir sól­setur í Feneyjum. Það kom mér því í opna skjöldu þegar gömul vin­kona gengur allt í einu hjá. Hún hefur um ára­bil búið í Banda­ríkj­unum og því orðið langt síðan við sáumst en einu sinni, reyndar fyrir langa­löngu þegar hún var ung­lingur, gætti hún barn­anna minna. Hún kom meira að segja út til Frakk­lands sem ein­hvers konar au-pair eitt sum­arið sem við bjuggum þar. Þar lærði hún að drekka ljóst ósætt rósa­vín með klökum og því miður líka að reykja sígar­ettur, grunar mig, þótt hún hafi nú sem betur fer aldrei neytt þess­ara hluta í óhófi eftir því sem ég best veit. Óvæntir fagn­að­ar­fundir. Og við gátum ekki annað en skellt uppúr í for­undran yfir feg­urð hend­ing­anna þarna á ver­önd­inni hjá Florian á meðan kvöld­flóðið sótti í sig veðrið og vatnið mjak­aði sér inn eftir torg­inu.

Við ákváðum að gera okkur glaðan dag og gengum borg­ina á enda til að finna veit­inga­stað sem kunn­ingi hafði bent okkur á. Sá bjó eitt sinn í Feneyjum, heima­vanur og sagði þetta sinn eft­ir­lætis veit­inga­stað. Þar sátum við þrjú því fram eftir kvöldi í vað­stíg­vél­unum okkar á meðan vatnið sleikti sess­urnar á stól­unum. Þjón­arnir voru á grænum klof­stíg­vélum, yfir­þjónn­inn í gulum vöðlum. En allir voru þeir hinir hress­ustu og hlógu stór­kalla­lega þegar þeir gösl­uð­ust um sal­inn með sjáv­ar­rétt­ina á stórum plöttum. Mikið gaman, mikið grín. Nafn stað­ar­ins var enda þannig að ekk­ert var hægt að gera annað en að hlæja að því, aftur og aftur, eig­in­lega við­stöðu­laust: Il para­d­iso per­dutto.

*

„Glúmur veik heim og setti að honum hlátur og brá honum svo við að hann gerði fölvan í and­liti og hrutu úr augum honum tár þau er því voru lík sem hagl það er stórt er.“

– Víga-Glúms saga, 28. kafli.

*

Á leið­inni heim á hótel, áður en leiðir skildu, bar okkur aftur að Mark­ús­ar­torg­inu. Þar var ekki sála á ferli, löngu búið að stóla upp á Caffè Florian, loftið alveg kyrrt eins og í kvik­mynda­veri, gusurnar í vað­stíg­vél­unum berg­má­landi milli hús­veggj­anna. Og þar sem við óðum yfir mann­laust torgið kveða við þung högg, stórar klukkur, kirkju­bjöll­urnar slá tólf á mið­nætti.

Við litum hvert á annað: gamla barnapían, ferða­fé­lagi minn og ég. Við stað­næmd­ust öll. Ljósa­sería sem strengd er eftir hús­unum kringum torgið spegl­að­ist í kyrru svörtu vatn­inu og minnti mig svo ekki varð um villst á lokamín­út­urnar í kvik­mynd­inni Títanik. Eitt and­ar­tak leið okkur eins og við værum leik­arar í ein­hverri illa hugs­aðri og þvingaðri senu í afar til­gerð­ar­legri kvik­mynd. Skyndi­lega fann ég síðan fyrir léttum takt­föstum krampa í þind­inni. Það hefur verið kippur af sama meiði og hinn síglott­andi Skarp­héð­inn Njálsson fann fyrir þegar þeir feðgar gengu af þing­inu um árið, full­vissir um það báðir að 129. kafl­inn væri þegar skrif­aður og að Berg­þórs­hvoli yrði úr því vart bjargað frá eldi. Kipp­irnir ágerð­ust, og smit­uð­ust okkar í milli. Áður en varði stóðum við öll þarna þrjú í okkar svörtu stíg­vélum, í síhækk­andi svörtu vatni, á Mark­ús­ar­torgi, á mið­nætti og skelli­hlógum. Þessi hlátur var þó óneit­an­lega dálítið kyn­legur enda dró hann dám af ákveð­inni teg­und af tauga­veiklun, því er ekki að leyna. Kannski skyldur því þegar við­mæl­andi reynir í örvænt­ingu að beina tal­inu að ein­hverju öðru þegar nið­ur­staðan blasir við.

Og samt hljóm­aði hann líka ögrandi eða þrjósku­fullur; eins og ótíma­bær yfir­lýs­ing um síend­ur­tekna og þó ævin­lega tíma­bundna frestun heim­sendis.

*

„Skarp­héð­inn stóð hjá og þagði og glotti við.“

– Brennu-Njáls­saga, 128. kafli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár