Fréttastofa RÚV biður Samherja velvirðingar

Frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hefur beðist vel­virð­ingar á því að hafa sagt að Samherji hafi greitt mútur til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta í Namibíu. Áður hafði Samherji full­yrt að stað­hæf­ingin væri refsi­verð og gæti varðað tveggja ára fang­elsi.

Fréttastofa RÚV biður Samherja velvirðingar
Rík­is­út­varpið Stjórn Rík­is­út­varps­ins taldi ekki ástæðu til að ræða bréf Samherja, enda væri um að ræða mál­efni frétta­stofu. Mynd: Kristinn Magnússon

Frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hefur tekið þá ákvörðun að leið­rétta frétt frá því í tíu­fréttum RÚV á fimmtu­dags­kvöld og biðja útgerð­ar­fé­lagið Samherja vel­virð­ingar.

Þetta kemur í kjöl­far þess að Samherji sendi lög­fræði­bréf á tólf manns, for­svars­menn Rík­is­út­varps­ins og stjórn­ar­menn í RÚV ohf, þar sem fram kom að allt að tveggja ára fang­elsi lægi við ákvörðun RÚV um að saka Samherja um mútu­greiðslur.

Í frétt RÚV um áhrif spill­ingar á þró­un­ar­að­stoð hafði komið fram að Samherji hefði aflað sér kvóta í Namibíu með mútu­greiðslum.

Lög­fræð­ingur Samherja full­yrti að setn­ingin „tókst Samherja hins vegar að afla sér kvóta í land­inu með því að múta emb­ætt­is­mönnum, eins og fjallað var um í Kveik í vetur, heima­menn nutu því ekki aðstoð­ar­innar sem veitt var“ fæli í sér brot á hegn­ing­ar­lögum og væri meið­yrði. RÚV hefur nú dregið full­yrð­ing­una til baka.

„Enginn starfs­maður Samherja hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna máls­ins. Full­yrð­ing um að heima­menn í Namibíu hafi ekki notið þró­un­ar­að­stoðar vegna meintra athafna Samherja er líka til þess fallin að verða virð­ingu Samherja til hnekkis. Báðar eru full­yrð­ing­arnar fyr­ir­vara­lausar og fela í sér refsi­verðar og bóta­skyldar aðdrótt­anir,“ sagði í lög­fræði­bréfi Samherja, sem sent var á alla stjórn­ar­menn Rúv ohf, á starf­andi útvarps­stjóra, Margréti Magn­ús­dóttur, og á Stefán Eiríks­son, verð­andi útvarps­stjóra.

Leið­rétt­ingin var birt á vef Rík­is­út­varps­ins í kvöld:

„Frétta­stofa RÚV telur rétt að leið­rétta full­yrð­ingu í frétt um þró­un­ar­að­stoð og spill­ingu sem birt­ist á fimmtu­dag þar sem sagt var að Samherji hefði aflað sér kvóta með því að múta emb­ætt­is­mönnum í Namibíu og vísað til umfjöll­unar Kveiks. Hið rétta er að Samherji hefur verið bor­inn þeim sökum.“

Frétta­stofan hefur áður greint frá því, rétt eins og frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur, að Samherji hafi greitt stjórn­mála- og emb­ætt­is­mönnum fé til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta. Hins vegar hefur orðið „mútur“ ekki verið notað af frétta­stof­unni, öðru­vísi en sem til­vitnun í orð sér­fræð­inga og starfs­manns Samherja, og svo í spurn­ingum frétta­manna.

Alls hafa tíu manns verið hand­teknir eða ákærðir í Namibíu vegna mútu­máls­ins, meðal ann­ars Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shangala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Þá var fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Fishcor, Mike Nghip­unya, hand­tek­inn fyrr í dag.

„Frétta­stofan biðst vel­virð­ingar á þeirri stað­hæf­ingu sem fram kom í frétt­inni á fimmtu­dag en ítrekar að allt sem kom fram í þætti Kveiks um Sam­herj­a­málið 12. nóv­em­ber 2019 og í öðrum fréttum um málið, stendur,“ segir í yfir­lýs­ingu frétta­stofu RÚV.

Leiðrétting fréttastofu RÚV

„Frétta­stofa RÚV telur rétt að leið­rétta full­yrð­ingu í frétt um þró­un­ar­að­stoð og spill­ingu sem birt­ist á fimmtu­dag þar sem sagt var að Samherji hefði aflað sér kvóta með því að múta emb­ætt­is­mönnum í Namibíu og vísað til umfjöll­unar Kveiks. Hið rétta er að Samherji hefur verið bor­inn þeim sökum.

Samherji birti í dag bréf þar sem afsök­un­ar­beiðni og leið­rétt­ingar var kraf­ist á meið­andi frétta­flutn­ingi.

Fréttin sner­ist um þró­un­ar­að­stoð og spill­ingu og þar var full­yrt að „Samherja hins vegar að afla sér kvóta með því að múta emb­ætt­is­mönnum, eins og fjallað var um í Kveik.“ Fréttin var aldrei birt á vef RÚV.

Í leið­rétt­ingu frétta­stofu kemur fram að Kveikur greindi frá því að Samherji hefði greitt namibískum emb­ætt­is­mönnum háar fjár­hæðir í greiðslur og þær voru að sögn fyrr­ver­andi starfs­manns Samherja mútur. Sér­fræð­ingur í spill­ing­ar­málum sem rætt var við í þætt­inum sagði sömu­leiðis að greiðsl­urnar bæru með sér að vera mútur.

Starfs­menn Samherja hafa ekki verið sak­felldir eða ákærðir fyrir slík brot en málið er enn í rann­sókn. Nokkrir namibískir emb­ætt­is­menn hafa verið ákærðir fyrir að þiggja mútur í tegn­slum við kvóta­út­hlut­anir sem tengj­ast Samherja og eru þau mál nú rekin fyrir dóm­stólum í Namibíu.

Frétta­stofan biðst vel­virð­ingar á þeirri stað­hæf­ingu sem fram kom í frétt­inni á fimmtu­dag en ítrekar að allt sem kom fram í þætti Kveiks um Sam­herj­a­málið 12. nóv­em­ber 2019 og í öðrum fréttum um málið, stendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár