Kvennaframboð hlægileg hugmynd

Karen Kjart­ans­dóttir almanna­teng­ill telur ekki til­efni fyrir sér­stakt kvenna­fram­boð að bjóða fram í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og hafnar hug­myndum um femínískt fram­boð.

Þórður Snær Júlíusson, Karen Kjartansdóttir og Andrés Jónsson.
Þórður Snær Júl­í­us­son, Karen Kjart­ans­dóttir og Andrés Jónsson. Mynd: Hringbraut

„Mér finnst það svo hlægi­legt, ég ætla að leyfa mér að segja það. Til höf­uðs hverjum er það, Degi B. Egg­erts­syni? Svo vitum við ekk­ert hverjir eru á bak við þetta. Eins og þetta er akkurat núna þá er þetta hlægi­leg hug­mynd,“ segir Karen Kjart­ans­dóttir almanna­teng­ill um sér­stakt kvenna­fram­boð sem kynnt var síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Karen er gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans, ásamt Andrési Jónssyni almanna­tengli, sem frum­sýndur er á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Hægt er að horfa á stiklu úr þætti kvölds­ins í spil­ar­anum hér að ofan.

Andrés telur að það fari eftir því hverjir verða í fram­boði fyrir flokk­inn og hversu sterkir fram­bjóð­end­urnir verða. Hugs­an­lega komi fram ein­stak­lingar sem eiga gott með að ná athygli í umræð­unni en hann bendir jafn­framt á að sterk femínísk bylgja sé í sam­fé­lag­inu um þessar mundir. Fólk sé hugs­an­lega til­búið að kjósa ein­hvern sem fer fram með sterkar hug­myndir, sér­stak­lega ef sá aðili yrði í sama meiri­hluta og það myndi ann­ars kjósa.

Karen telur aftur á móti að femínískar áherslur teng­ist ekki alltaf kyn­inu jafn sterkt. Hægt sé að hitta konur sem séu ein­stak­lega mikið með feðra­veld­inu. „Ég finn oft fyrir því hjá sjálfri mér. Maður þarf að skoða hug sinn mjög mikið. Ég held að sterkasta röddin fyrir femín­isma í stjórn­málum und­an­farið hafi verið Þor­steinn Víglunds­son,“ segir hún. Þannig hafnar hún þessum hug­myndum um femínískt fram­boð í borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið undanfarið ár