Hvað er hamingjan fyrir þér?

Vellíð­un­ar­til­finn­ing, að vera í góðu sam­bandi við raun­veru­leik­ann, ástand sem við sköpum sjálf. Svona er mis­jafnt hvernig fólk skil­greinir ham­ingj­una.

Bryndís Har­alds­dóttir alþing­is­maður

Hamingja er vellíð­un­ar­til­finn­ing. Til­finn­ing sem bæði gefur hlýju og ró en líka svona smá fiðr­ildi í mag­ann. Það góða við til­finn­ingar er að maður getur sjálfur haft svo mikið með þær að gera.

Þannig getur maður hjálpað til og aukið á ham­ingju­til­finn­ingu með því að næra sjálfið sitt.

Ég geri það með úti­veru og hreyf­ingu og sam­vistum við mína nán­ustu. Það skiptir máli að kom­ast út í fal­lega nátt­úru og njóta hennar en á sama tíma að muna að vera þakk­lát fyrir að geta notið.

Þetta er aðferð sem nýt­ist mér og virkar svona eins og sprinklerkerfi sem dreifir ham­ingju­horm­óni um lík­amann. 

Daði Guð­björns­son list­mál­ari

Að vera í góðu sam­bandi við raun­veru­leik­ann er upp­spretta ham­ingj­unnar að mínu áliti. Þetta hljómar kannski ekki spenn­andi en elt­ing­ar­leik­ur­inn við draum­óra og mikil ver­ald­leg gæði getur valdið streitu og von­brigðum.

Núið er vett­vangur ham­ingj­unnar; for­tíðin er liðin og ekk­ert hægt að lag­færa hana og fram­tíðin kemur í ljós, það er ágætt að gera skyn­sam­leg fram­tíð­arplön en heim­ur­inn mun ekki far­ast þó að við séum stundum örlítið afslapp­aðri.

Það er örugg­lega betra að geta hlegið að sínum eigin göllum og mis­tökum en að vera sífellt að rann­saka flís­ina í auga náung­ans; ef maður er full­kom­inn er maður senni­lega ekki alveg í lagi. 

Guðrún Kristín Krist­ins­dóttir háskóla­nemi

Hamingja er ástand sem við sköpum okkur sjálf. Lífið gefur okkur verk­færin til þess og er það undir okkur komið að nota þau til að byggja upp lífið sem okkur langar að lifa. Vissir atburðir geta veitt okkur ham­ingju hverju sinni, að ganga vel í prófi, bæta tím­ann sinn í hlaupi, gleðja ást­vin eða sjá ein­hvern sem maður elskar brosa og líða vel. Það veitir okkur ham­ingju þegar maður er dug­legur og sér árangur sem maður von­að­ist eftir, því hvað er lífið annað en sam­an­safn af verk­efnum? Verkfæri til ham­ingj­unnar eru allt í kringum okkur, við þurfum bara að sjá þau og nota þau.   

Sólveig Svala Hann­es­dóttir nemi

Hamingja er til­finn­ing sem ég finn fyrir þegar ég er bæði sátt við sjálfa mig og þau hlut­verk sem ég tek mér fyrir hendur. Hamingja er samt að mínu mati einnig ákvörðun. Maður þarf að taka alls konar ákvarð­anir á hverjum degi sem hefur áhrif á ham­ingju manns. Ég reyni að ákveða dag­lega að hafa gott við­horf gagn­vart verk­efnum mínum. Ég ákveð að umgang­ast fólk sem veitir mér ham­ingju. Ég ákveð að vera góð við sjálfa mig og fólkið í kringum mig. Ég ákveð að hugsa dag­lega um þrjá hluti sem ég er þakk­lát fyrir. Allar þessar litlu ákvarð­anir hafa áhrif á ham­ingju mína og við­horf mitt til lífs­ins. Mik­il­vægt finnst mér að við­halda ham­ingju með því að gleðj­ast með vinum mínum og fjöl­skyldu. 

Aron Freyr Stef­áns­son nemi

Þegar ég hugsa um ham­ingj­una þá er það fyrsta sem mér dettur í hug góðu stund­irnar með fjöl­skyld­unni minni og góðum vinum. Að skapa minn­ingar, og þær bestu eru þegar ég geng á fjöll og næ mark­miði mínu eftir erf­iða göngu og stend á toppnum og nýt þess sem ég sé. Stundum er ekki mikið útsýni en það skiptir ekki öllu því toppnum er náð. Að vera úti í nátt­úr­unni og njóta með góðum göngu­fé­lögum. Náttúran gefur mér svo mikla ham­ingju og sér­stak­lega þegar ég er með góðu, traustu og skemmti­legu fólki þar sem aldur, kyn og starf skiptir engu máli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár