Sagði ríkisskattstjóra ekki nenna að eltast við ólöglega gistingu

Oddvitar borg­ar­stjórn­ar­flokk­anna tók­ust á um svarta hag­kerfið sem mynd­ast hefur með fram­boð á heimagist­ingu á fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins og fleiri hags­muna­sam­taka í gær.

Líf Magneu­dóttir odd­viti Vinstri grænna segir eðli­legt að rík­is­skatt­stjóra nenni ekki að elt­ast við þá sem sinna ekki skrán­ingu á útleigu íbúða sinna til Airbnb, um smá­pen­inga sé að ræða og lík­lega sé sýslu­maður að elt­ast við stærri fiska.

Þetta kom fram á fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins, Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, Samtaka iðn­að­ar­ins og Samtaka versl­unar og þjón­ustu með odd­vitum stærstu flokk­anna í gær.

Bjarn­heiður Halls­dóttir nýkjörin for­maður SAF spurði odd­vita út í skugga­hag­kerfið tengt íbúða­gist­ingu sem hún sagði stórt í sam­an­burði við aðrar þjóðir. „Áætlað að í Reykja­vík sé fram­boð íbúða­her­bergja svipað og fram­boð hót­el­her­berja, hins vegar eru aðeins þús­und íbúðir með við­eig­andi skrán­ingu eða rekstr­ar­leyfi eins og lög gera ráð fyrir,“ sagði Bjarn­heiður og spurði odd­vit­ana hvernig þeir ætl­uðu að sporna við þessu og hvort til­efni væri til að efna til stór­átaks gegn þess­ari brota­starf­semi.

Svar Lífar virt­ist valda nokkrum kurr í salnum, en hún dró þá orð sín um að um smá­pen­inga væri að ræða til baka. „En það sem ég hef sagt og við viljum gera er að sveit­ar­fé­lögin hafi kannski sekt­ar­heim­ildir til þess að upp­ræta slíka starf­semi. Ólögleg starf­semi á slíkum mark­aði er vond,“ sagði Líf og velti því upp hvort breyta þyrfti núgild­andi reglum og minnka þann fjölda gistinótta sem heim­ilt er að leigja íbúðir, en nú eru það 90 dagar. Líf nefndi þar töl­una 70 eða 45 jafn­vel.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði að meiri­hlut­inn hefði strax gert athuga­semdir við að eft­ir­litið með þessu væri á höndum sýslu­manns og að þau hefðu haft áhyggjur af því að það væri of veikt og að Reykja­vík væri til í að fá hlut­verk í því að fylgja þessu fastar eftir. Búið sé að stofna hóp með sýslu­manni til þess að allir séu að tala saman og fylgja þessu eftir. „Og það lofar bót og betrun og það eru ein­hver mál komin en okkur hefur ekki fund­ist þetta vera að virka nægi­lega vel,“ sagði Dagur.

Eyþór Arnalds odd­viti Sjálf­stæð­is­flokk­inn sagði borg­ina hafa verið sof­andi með fram­boð á íbúð­ar­hús­næði sem valdi þrýs­ingi á heim­ilin. Fram­boðið þurfi að vera meira til að ná jafn­vægi á mark­að­inn, ann­ars væri hér alltaf svartur mark­aður.

Eyþór nefndi í þessu sam­hengi einnig bíla­leigu­bíla. „Við sjáum það að þeir leggja mjög mikið í grónum hverfum þar sem ekki eru bíla­stæða­gjöld og við sjáum að þeir eru svo­lítið að ryðja út bíl­stæðum fyrir íbúa. Ég myndi vilja sjá ein­hvers konar bíla­stæða­kort fyrir íbúa þannig að íbúar gengju fyrir í þessum málum. Það er ótrú­legur fjöldi sem er að taka bíla­leigu­bíla.“

Airbnb með þriðjung af gistinóttamarkaðnum

Í skýrslu Íslands­banka frá því í apríl kemur fram að Air­bnb er orðið næst­um­fangs­mesta gisti­þjón­usta lands­ins og þrisvar sinnum stærri en sú þriðja umfangs­mesta sem eru gisti­heim­ili. Flestar gistinætur voru þó seldar á hót­el­um, alls 4,3 millj­ónir á árinu 2017. Í gegnum Air­bnb voru 3,2 millj­ónir gistinótta seldar í fyrra.

[links]Tekjur leigu­sala í gegnum Air­bnb á Íslandi námu 19,4 millj­örðum á árinu 2017 og juk­ust um 109% frá fyrra ári. Með­al­verð fyrir sól­ar­hrings­dvöl á Air­bnb er mis­jafnt eftir því hvers eðlis gisti­rýmið er. Þegar um er að ræða leigu á öllu heim­il­inu er með­al­verðið um 21,6 þús­und krón­ur. Til sam­an­burðar er með­al­verð á hót­el­her­bergi í Reykja­vík um 19,7 þús­und. Heilt heim­ili getur hýst fleiri gesti en hót­el­her­bergi alla jafna og er því með­al­verð á hvern ein­stak­ling lægra á Air­bnb en á hót­el­um.

Tekju­hæsti leigu­sali síð­asta árs velti 230 millónum og var með 46 útleigu­rými í gegnum Air­bnb. Rýmin geta verið allt heim­il­ið, sam­eig­in­legt her­bergi eða sér­her­bergi. Þá eru eig­in­leikar á borð við gæði og fjölda gesta sem rýmið hýsir einnig ólíkir á milli rýma. Sá leigu­sali sem var á meðal þeirra tekju­hæstu og var með mestar tekjur á hvert útleigu­rými velti rúmum 12 millj­ónum á hvert rými yfir 12 mán­aða tíma­bil eða rúm­lega milljón í hverjum mán­uði á hvert rými. Á sama tíma er mán­að­ar­legt leigu­verð á hvern fer­metra á hefð­bundnum leigu­mark­aði í kringum þrjú þús­und krónur fyrir tveggja her­bergja íbúð­ir. Það gerir um 210 þús­und sé íbúðin 70 fer­metr­ar. Með­al­fer­metra­verð lækkar svo eftir því sem her­bergjum fjölgar og íbúðin stækk­ar. Það er því ljóst að leigusalar geta aflað umtals­vert meiri tekna með því að leigja erlendum ferða­mönnum í gegnum Air­bnb en með því að leigja á hefð­bundnum leigu­mark­aði. Hefur þessi hvati leitt til þess að íbúðir á hefð­bundnum leigu­mark­aði eru færri en ella sem veldur að öðru óbreyttu hækk­un­ar­þrýst­ingi á leigu­verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár