Ragnar Þór: Samningsstaðan hefur styrkst gríðarlega

Formaður VR fagnar nýrri for­ystu í verka­lýðs­hreyf­ing­unni en Drífa Snædal var í gær kjörin for­seti ASÍ.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í sam­tali við Frétta­blaðið í dag, að staða verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í land­inu haf styrkst veru­lega að und­an­förnu, og ný for­ysta sé í kjör­stöðu til að ná fram kjara­bótum fyrir launa­fólk. „Ég held að allt launa­fólk og allir félags­menn stétt­ar­fé­laga geti andað léttar og verið bjart­sýnir. Samn­ings­staða okkar hefur styrkst alveg gríð­ar­lega með því að for­ystan er að fara óklofin til leiks. Nú mega við­semj­endur okkar fara að vara sig,“ segir Ragnar Þór í við­tali við Frétta­blaðið í dag, í til­efni af kjöri Drífu Snædal sem for­seta ASÍ.

Drífa Snæ­dal var kjörin nýr for­seti ASÍ á 43. þingi sam­bands­ins í gær fyrst kvenna. T­veir ein­stak­lingar buðu sig fram til emb­ætt­is­ins, þau Drífa Snæ­dal fram­kvæmda­stjóri SGS og Sverrir Mar Alberts­son fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður Afls.

Drífa hlaut 192 atkvæði eða 65,8 pró­sent en Sverrir Mar fékk 100 atkvæði eða 34,2 pró­sent. Atkvæði greiddu 293 og var eitt atkvæði ógilt.

Drífa er 45 ára við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands auk þess að vera með meist­ara­próf í vinnu­mark­aðs­fræðum og vinnu­rétti frá Háskól­anum í Lundi.

Hún hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands frá árinu 2012 en áður var hún fram­kvæmda­stjóri Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs og Sam­taka um Kvenna­at­hvarf. Hún­ er fyrsta konan sem er kjörin í emb­ætti for­seta ASÍ í 102 ára sögu Alþýðu­sam­bands Íslands.

Framundan eru kjara­við­ræður þar sem aðild­ar­samn­ingur SA og ASÍ rennur út um ára­mótin.

Meðal krafna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar eru 425 þús­und króna lág­marks­laun, en þau eru 300 þús­und nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár