Hagnaður Ikea dregst saman um 46 prósent

Mikla­torg hf., eig­andi IKEA á Íslandi, hagn­að­ist um 528 millj­ónir króna á síð­asta rekst­ar­ári og dróst hagn­að­ur­inn saman um tæpar 455 millj­ónir frá fyrra ári.

Stjórn Mikla­torgs leggur til við hluta­hafa­fund að félagið greiði hlut­höfum sínum 500 millj­ónir króna í arð vegna síð­asta rekstr­ar­árs sem stóð frá 1. sept­em­ber 2017 til 31. ágúst 2018. Er það sam­svar­andi arð­greiðsla og sam­þykkt var í fyrra. Nú nemur arð­greiðslan nær öllum hagn­aði rekstr­ar­árs­ins sem nam 528 millj­ónum króna. Frá þessu greinir Við­skipta­Mogg­inn í dag.

Hagn­að­ur­inn var mun meiri á fyrra rekst­ar­ári en þá nam hann 982,5 millj­ónum króna en árið þar á undan var hann 758,9 millj­ónir.

Mikla­torg hf. er í eigu Eign­ar­halds­fé­lags­ins Hofs ehf. Það félag er í jafnri eigu Fara ehf. og Dexter Fjár­fest­ingar ehf. Fari ehf. er í eigu Jóns Pálma­sonar og Dexter Fjár­fest­ingar ehf. er í eigu Sigurðar Gísla Pálma­sonar, bróður hans.

Í frétt Við­skipta­Mogg­ans kemur fram að rekstr­ar­tekjur Mikla­torgs hafi á síð­asta ári numið 11,4 millj­örðum króna og auk­ist um ríf­lega 1,1 millj­arð króna. Rekstr­ar­gjöld hækk­uðu að sama skapi og námu 10,7 millj­örðum, sam­an­borið við 9,1 millj­arð króna á fyrra rekstr­ar­ári. Mikla­torg greiddi 337,3 millj­ónir til IKEA á liðnu ári og hækk­uðu gjöldin um 30 millj­ónir milli ára.

Kostn­að­ar­verð seldra vara nam 6,3 millj­örðum og hækk­aði um rúma 1,2 millj­arða milli ára. Laun og launa­tengd gjöld juk­ust um 3,8 pró­sent og námu 2,5 millj­örðum. Á sama tíma fjölg­aði stöðu­gildum um 24 og voru þau 341 í lok tíma­bils­ins. Jafn­gildir það 7,6 pró­sent fjölgun milli ára. Eignir Mikla­torgs í lok ágúst síð­ast­lið­ins námu 2,6 millj­örðum króna og juk­ust um 407 millj­ónir milli ára. Skuldir juk­ust einnig tals­vert og námu rúmum tveimur millj­örðum í lok tíma­bils­ins, sam­an­borið við ríf­lega 1,6 millj­arða tólf mán­uðum fyrr. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins er 21,8 pró­sent, sam­kvæmt Við­skipta­Mogg­anum.

Þórarinn Ævarsson sagði upp störfum sem fram­kvæmda­stjóri IKEA á Íslandi fyrr á árinu og tók sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Í byrjun maí síð­ast­lið­ins var Stefán Rún­ar Dags­son ráð­inn fram­kvæmda­stjóri í hans stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár