Senuþjófurinn Eleonore Niemand – esseyja

Jón Karl Helgason sá sig knú­inn til að fletta Eleonore Niemand upp eftir að hafa lesið heim­speki­lega skáld­sögu Geirs Sig­urðs­sonar: Óljós: Saga af ástum. Jón Karl vildi vera viss. Og hann ydd­aði blý­ant­inn fyrir hug­leið­ingu um bók­ina – sem bóka­út­gáfan Sæmundur gefur út, nú árið 2024.

Geir Sigurðsson rithöfundur og prófessor í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki
Geir Sig­urðs­son rit­höf­undur og pró­fessor í kín­verskum fræðum og þver­menn­ing­ar­legri heim­speki Mynd: HÍ/Kristinn Ingvarsson

Það sem telst merki­legt í sam­fé­lag­inu er það ekki á end­anum og það sem ekki telst merki­legt í sam­fé­lag­inu er alveg jafn ekki-merki­legt á end­anum. Hvort tveggja lendir í sama flokki þegar öllu er á botn­inn hvolft.“ (Eleonore Niemand)

Eleonore Niemand leikur svo­lítið auka­hlut­verk í skáld­sög­unni Óljós eftir Geir Sig­urðs­son, svo lítið raunar að ég ímynda mér að þótt nafn hennar væri strikað út gæti sögu­þráð­ur­inn staðið óhagg­aður. Og samt er hún stöðugt að skjóta upp koll­inum, allt frá til­ein­kun­inni í upp­hafi, þar sem brot úr textum eftir hana birt­ist á þýsku, til sím­tals­ins við Branko í sögu­lok (meira um hann síðar). Þar á milli er vitnað alloft til birtra og óbirtra skrifa hennar, ýmist á frum­mál­inu eða í íslenskri þýð­ingu. Þessi sýn­is­horn eru svo sann­fær­andi að þótt ég væri framan af viss um að Niemand væri skálduð per­sóna (full­kunn­ugt um að niem­and merkir engin) fann ég mig knú­inn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár