Bjórskrímsli í burðarliðnum

„Saga stærstu brugg­húsa heims­ins hefur einkum snú­ist um óslökkvandi þorsta.“ Þannig hefst grein í tíma­rit­inu The Economist fyrr í mán­uð­inum. Þar er fjallað um fyr­ir­hug­aðan risa­sam­runa brugg­hús­ana AB Inbev og SAB Miller. Verði af þessum áfornum hefur mynd­ast „bjór­skrímsli“, eins og Economist orðar það, sem myndi voma yfir helm­ingi af öllum hagn­aði af bjól­sölu í heim­inum. Þriðji hver bjór sem jarð­ar­búar drekka árlega yrði fram­leiddur á vegum þessa „bjór­skrímslis“.

Lyk­il­hlut­verkið í þessum áformum leikur fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki í Kólombíu, Santo Domingo Group. Fyrrum höfuð þess, Julio Mario Santo Domingo (1923-2011)var um tíma, eða 2005, annar rík­asti mað­ur­inn í Kólombíu. Sonur Julio sem nú stjórnar fyr­ir­tæk­inu til­kynnti í sumar um trú­lofun sína og Lady Charlotte Anne Wellesley dóttur níunda her­tog­ans af Wellington.

Í fréttum reuters í vik­unni segir að mark­aðsvirði þess­arar brugg­húsa, ef þau sam­ein­ast, yrði 275 millj­arðar doll­ara eða nær 18 föld lands­fram­leiðsla Íslands. Sam­run­inn myndi í einu höggi tryggja yfir­burða­stöðu AB Inbev í Suður Ameríku og SAB Miller í Afríku en bjór­drykkja í báðum þessum heims­álfum fer vax­andi þessa stund­ina. Bæði þessi brugg­hús eiga einnig vel­gengni að fagna á Asíu­mark­að­inum.

AB Inbev og SAB Miller ein­beita sér að fram­leiðslu á bjór. Hestu vöru­marki hins fyrr­nefnda á bjór­mark­að­inum eru m.a. Budweiser, Corona, Stella Arotis og Becks. Helstu vöru­merki hins síð­ar­nefnda eru m.a. Urquell, Miller og Grolsch.

Andrew Holland grein­andi hjá franska bank­anum Societe Genarale segir að fyrir AB Inbev sé það aðgangur að Afr­íku­mark­að­inum sem er mest heill­andi hvað sam­runan varðar. Sem stendur er bjór frá AB Inbev vart til staðar í þeirri heims­álfu. „Auk þess má finna nokkrar við­bætur í Asíu og Suður Ameríku,“ segir Holland. Fram kemur á reuters að það sé AB Inbev sem hafi haft frum­kvæðið að sam­runa­við­ræð­unum sem nú standa yfir.

Samruni á samruna ofan


Í stuttri sögu­legri upp­rifjun Economist um stærstu brugg­hús heims­ins kemur fram að árið 1989 hafi Jorge Paulo Leman, ásamt tveimur bræðrum sinna, keypt hið með­al­stóra brasil­íska brugg­hús Brahma fyrir 50 millj­ónir doll­ara. Áratug síðar sam­ein­að­ist Brahma keppi­nautnum Antartica og varð Arnbev. Árið 2004 sam­ein­að­ist þetta brugg­hús hinu belgíska Interbrew sem m.a. fram­leiddi Stella Atrois og Becks og úr varð brugg­húsið InBev. Fjórum árum síðar borg­aði InBev 52 millj­arða doll­ara fyrir banda­ríska brugg­húsið Anheuser-Busch. Ekki var látið staðar numið þar því árið 2012 borg­aði hið nýstofn­aða Anheuser-Busch InBev 20 millj­arða doll­ara fyrir brugg­húsið Groupo Mondelo í Mexíkó. Á síð­asta ári mistókst SAB Miller hins­vegar að festa kaup á Heineken sem er þriðja stærsta brugg­hús í heimi hvað bjór­fram­leiðslu varðar.

[caption id="attachment_40002" align="alignnone" width="450"] Í sumar til­kynnti Aljeandro um trú­lofun sína og Lady Charlotte Anne Wellesley. Mynd: EPA.[/caption]

 

Erfiður markaður


Þessar hrær­ingar meðal stærstu brugg­húsa heims koma á sama tíma og að heims­mark­að­ur­inn hvað björsölu varðar er jafn­daufur og flatur íslenskur pilsner.Í skýrslu sem ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey gaf út í júní s.l. kom fram að alþjóð­leg brugg­hús stæðu frami fyrir ein­hverjum mest krefj­andi aðstæðum á heims­mark­aði á und­an­förnum 50 árum. Þar spilar stórt hlut­verk mik­ill fram­gangur sjálf­stæðra lít­illa brugg­húsa og svo­kall­aðra míkró­brugg­húsa sem hafa m.a. haslað sér völl á íslenska bjór­mark­að­inum á und­an­förnum árum.

Hlutafé í SAB Miller ódýrt


Economist segir að inn í áhuga AB Inbev spili að hlutafé í SAB Miller er ódýrt í dag. Hluta­féið hefur fallið veru­lega í verði í fram­haldi af geng­is­falli rands­ins í Suður Afríku og pesóans í Kólumbíu. Lélegur hag­vöxtur í nýmark­aðs­ríkjum hefur heldur ekki hjálpað til en brugg­húsið fær um 72 pró­sent tekna sinna frá slíkum ríkjum. SABMiller er skráð á markað í Bret­landi og það þýðir að sam­kvæmt þar­lendum lögum þarf AB Inbev að leggja fram form­legt til­boð fyrir 14. októ­ber n.k.

Í fréttum reuters er enn­fremur bent á að sam­keppn­is­yf­ir­völd hefðu áreið­an­lega sitt hvað að athuga við það ef þessir tveir bruggrisar ganga saman í eina sæng. Senni­lega þarf að selja eigur á móti til að liðka fyrir sam­run­anum. Í því sam­bandi er rætt um sölu á Miller í Banda­ríkj­unum og sölu á CR Snow stærsta brugg­húsi Kína.

Fjölskyldan ræður


Þótt búist sé við að stjórn SAB Miller muni örugg­lega hafna fyrsta til­boð­inu frá AB Inbev er málið að mestu í höndum tveggja stærstu eig­enda brugg­húss­ins. Þetta eru tóbaks­ris­inn Altrie ann­ars­vegar og hins­vegar Santo Domingo fjöl­skyldan í Kolómbíu. Economist segir að ef skil­málar AB InBev séu nógu „heill­andi“ muni báðir þessir eig­endur vænt­an­lega styðja sam­run­ann.

Það var Julio Mario Santo Domingo sem stofnað fyr­ir­tækið sem nú heitir Santo Domingo Group á seinni­hluta síð­ustu aldar. Hann komst á lista Forbes yfir rík­ustu menn heims­ins og var tal­inn næst­rík­asti mað­ur­inn í Kólombíu árið 2005 en auð­æfi hans voru þá metin á um 8 millj­arða doll­ara eða réttu megin við 1.000 millj­arða kr. Julio Mario var örlátur á fé sitt og gaf mikið til ýmissa góð­gerð­ar­stofn­anna og sam­taka.

Það er Aljeandro sonur Julio Mario, frá seinna hjóna­bandi hans, sem stjórnar Santo Domingo Group í dag en hann gegnir einnig ýmsum öðrum áhrifa­stöðum. Aljeandro situr m.a. í stjórn Metropolitan lista­safns­ins í New York.

Santo Domingo fjöl­skyldan er að fara að tengj­ast enska aðlinum. Í sumar til­kynnti Aljeandro um trú­lofun sína og Lady Charlotte Anne Wellesley. Fyrir utan að vera dóttir her­tog­ans af Wellington er hún barna­barna­barn Wilhjálms II Þýska­landskeis­ara. Brúð­kaupið verður haldið á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár