Star Wars: Leyndin aldrei meiri fyrir frumsýningu

Vanga­veltur um sögu­þráð nýju Star Wars mynd­ar­innar „The Force Awakens“ hafa tröll­riðið ýmsum net­miðlum und­an­farna daga og vikur. Enda hefur lík­lega aldrei í sög­unni verið jafn­þéttur leynd­ar­hjúpur um efni nokk­urrar stór­myndar. Allir sem komu að gerð mynd­ar­innar þurftu að skrifa undir dýra þagn­að­areiða, jafn­vel mán­uðum áður en vinna þeirra hófst. Sumir af leik­urum mynd­ar­innar hafa ekki séð hana ennþá og fram­leið­end­urnir ákváðu að sleppa hefð­und­inni for­sýn­ingu fyrir blaða­menn. Í lok slíkra for­sýn­inga hefur við­stöddum blaða­mönnum einatt gef­ist tæki­færi til að ræða við helstu stjörn­u­rnar. Ekki núna og engin af þeim leik­urum sem fram koma í mynd­inni hafa feng­ist til að ræða um hvað ger­ist í mynd­inni, hugs­an­lega er Harrison Ford und­an­tekn­ing á því.

Enginn vissi neitt

Í umfjöllun á Reuters kemur m.a. fram að leyndin hafi verið svo mikil að þegar leik­konan Lupita Nyong´o mætti í fyrsta sinn á töku­stað vissu fáir þar hvað hún vildi upp á dekk. „Ég var í tökum á atriðum þar sem sam­leik­arar mínir höfðu enga umhug­mynd um hver ég væri eða hvaða hlut­verk ég væri að leika,“ segir Nyong´o en hún fer með hlut­verk píratans Maz Kanata.

Nýliðinn , Daisy Ridley, sem leikur lyk­il­hlut­verkið í mynd­inni sem skransal­inn Rey, var látin und­ir­rita þagn­að­areið um þremur mán­uðum áður en hún fékk hlut­verkið. Síðan hefur hún ekki einu sinni svarað ein­földum spurn­ingum um hlut­verk sitt og hvort hún bregði ljósasverði eða ekki í mynd­inni. „Við verðum bara að bíða og sjá til,“ segir leik­konan. Leik­ar­inn Adam Driver sem fer með hlut­verk Kylo Ren, ein­hver útgáfa af Svart­höfða, sagði nýlega að hann myndi ekki eftir því hvort per­sóna hans í mynd­inni hefði sér­stakt tón­list­ar­stef eða ekki. Leik­stjór­inn J.J. Abrams stað­festi síðar að svo væri raunin.

Hvar er Logi geimgengill?

Það sem nokkurn veg­inn er vitað um sögu­þráð „The Force Awakens“ er að myndin ger­ist um 30 árum eftir að fyrsta myndin Star Wars kom fyrir augu áhorf­enda. Til staðar eru þrjár helstu per­sónur fyrstu mynd­ar­innar að sögn fram­leið­enda, þau Logi geim­geng­ill (leik­inn af Mark Hamill), Leia prinsessa (leikin af Carrie Fisher) og ólík­inda­tólið Han Solo (leik­inn af Harrison Ford).

Vanga­veltur á net­miðlum hafa að hluta til snú­ist um spurn­ing­una hvar Logi Geim­geng­ill sé og hvað hann muni gera í mynd­inni. Bent hefur verið á að Mark Hamill hefur hvergi verið að finna í þeim sýn­is­hornum sem birt hafa verið úr mynd­inni. Né er and­lit hans að finna á öllum þeim vegg­spjöldum sem gefin hafa verið út í tengslum við kom­andi frum­sýn­ingu. Þetta hefur vakið upp þær spurn­ingar hvort Logi geim­geng­ill muni deyja í mynd­inni eða það sem verra er heill­ast af skugga­hlið „krafts­ins“ eins og faðir hans. Harrison Ford var spurður um þessa „fjar­veru“ Loga geim­geng­ils og lét Ford hafa það eftir sér að „rétt­mæt ástæða“ lægi þar að baki. Þetta túlka sumir sem svo að Logi muni feta í fót­spor föð­urs síns.

Ævintýri skransalans

Annað sem vitað er um sögu­þráð­inn er að stormsveit­ar­mað­ur­inn Finn, leik­inn af John Boyega, hittir skransal­ann Rey á plánetu hennar Jukku. Þau tvö, ásamt vél­menn­inu BB-B halda, síðan á vit ævin­týr­anna. Eitt sem vakið hefur vanga­veltur er að Rey hefur, hingað til, ekk­ert eft­ir­nafn. Þetta þykir sönnum Star Wars aðdá­endum vera merki um eitt af tvennu, annað hvort er hún barn Loga geim­geng­ils eða dóttir þeirra Leiu prinsessu og Han Solo. Boyega hefur svarað spurn­ingum blaða­manna um hlut­verk sitt og mynd­ina í heild á þann hátt að áhorf­endur muni verða glaðir þegar upp er staðið að vita ekki meir en orðið er um sögu­þráð mynd­ar­innar. „Ég vil ekki spilla neinu fyrir áhorf­endur,“ segir Bouega. „Þeir munu þakka mér síðar.“ Leik­stjór­inn Abrams tekur í sama streng og leik­ar­inn og segir að aðstand­endur mynd­ar­innar vilji að upp­lifun áhrorf­enda á mynd­inni komi þeim á óvart.

Ný dauðastjarna?

Á sam­fé­lagsvefnum You Tube má finna mikið af „Star Wars sér­fræð­ingum“ sem hafa farið í saumana á þeim sýn­is­hornum sem gefin ghafa verið út. Ein pæl­ingin er sú að þau Rey og Finn ásamt gamla þrí­eyk­inu þurfi að glíma við ein­hvers­konar nýja útgáfu af dauða­stjörn­unni. Í einu mynd­brot­anna sést Kylo Ren nefni­lega fylgj­ast með ein­hverjum rauðum, að því er virð­ist, dauða­geisla.

En allar þessar vanga­veltur munu heyra sög­unni til þann 14. des­em­ber þegar Star Wars: The Force Awakens verður frum­sýnd ytra. Hér heima verður myndin frum­sýnd þann 17. des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár