OECD hvetur til fjárfestingar í menntun á Íslandi

Samkvæmt Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni ættu stjórn­völd hér á landi að ráð­ast í sam­keppn­is­efl­andi aðgerðir, auk fjár­fest­ingar í menntun, rann­sókn og þróun og aðgerðum sem miðla að grænum hag­vexti.

Angel Gurría, aðalritari OECD
Angel Gurría, aðal­rit­ari OECD Mynd: EPA

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin (OECD) hvetur til auk­innar fjár­fest­ingar í menntun, rann­sóknir og þróun og aðgerðir í þágu græns hag­vaxtar hér á landi, svo að íslenskt vinnu­afl sé betur í stakk búið til þess að vinna í nýjum atvinnu­greinum. Enn fremur bendir stofn­unin á að tíma­bundin ein­földun á fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja ætti að vera gerð ótíma­bundin svo að auð­veld­ara verði fyrir fyr­ir­tæki að ná sér á strik aftur að krepp­unni lok­inni.

Bjartsýnni en áður

Þetta kemur fram í nýrri hag­spá sam­tak­anna sem birt var á vef þeirra í gær. Spáin er á bjart­sýnni nótum en aðrar grein­ingar alþjóða­stofn­ana sem gefnar hafa verið út á síð­ustu mán­uðum, en OECD segir að bjart­ari tímar séu framundan í efna­hags­málum.

Samkvæmt sam­tök­unum hefur verstu áhrifum krepp­unnar verið afstýrt, þökk sé umfangs­miklum aðgerðum stjórn­valda. Flestir fram­leiðslu­þættir séu enn óskadd­aðir þrátt fyrir krepp­una, en það eykur lík­urnar á skjótum efna­hags­bata fyrir fólk, fyr­ir­tæki og lönd um allan heim.

Hvetja til stórra aðgerða

Samtökin búast við að hag­kerfi heims­ins verði búið að ná fyrri styrk undir lok næsta árs. Þó er varað við því að efna­hags­bat­inn gæti verið ójafn og að kreppan komi niður á þeim sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu. Í því til­liti hvetur OECD stjórn­völd til að bregð­ast við auknum ójöfn­uði og fátækt með afger­andi hætti.

Einnig hvetja sam­tökin til þess að stjórn­völd beiti efna­hags­legum björg­un­ar­pökkum óspart og styrki grunn­inn­viði sam­fé­lags­ins, auk þess sem það styrki alþjóða­sam­vinnu, þar sem sam­hæfðar aðgerðir séu nauð­syn­legar til að binda endi á yfir­stand­andi far­aldur.

Seðlabankinn ætti að vera á varðbergi

Einn kafli í grein­ing­unni er helg­aður Íslandi, en þar búast sam­tökin við 7,7 pró­senta sam­drætti í ár, sem er nokkuð bjart­sýnni en spá Seðla­bank­ans. Í kafl­anum er minnst á að krónan hafi veikst um fimmt­ung frá byrjun far­ald­urs­ins í mars og að verð­bólga og verð­bólgu­horfur fari hægt vax­andi. Samtökin bentu á að Seðla­bank­inn ætti að vera á varð­bergi svo að verð­bólgan hald­ist nálægt yfir­lýstum mark­miðum, sér­stak­lega þar sem vöru­verð sé farið að hækka aftur

Hægur bati í ferðaþjónustu og auknar ríkisskuldir

Samtökin búast við hægum bata í ferða­þjón­ust­unni, þar sem fólk muni veigra sér við að ferð­ast þangað til að bólu­sett verði fyrir veirunni á flestum stöðum heims­ins. Því sé minni útflutn­ingi spáð á næsta ári heldur en árið 2019, en gert er ráð fyrir að auk­inn kraftur verði aftur á móti settur í fjár­fest­ingu hins opin­bera.

OECD býst einnig við að opin­berir skuldir muni nema nær 100 pró­sentum af lands­fram­leiðslu innan tveggja ára, en það er hærra skulda­hlut­fall en náð­ist í kjöl­far banka­huns­ins árið 2008.

Einfaldara regluverk og fjárfestingar í menntun

Samkvæmt OECD gætu margar kerf­is­lægar breyt­ingar hjálpað til við að hraða efna­hags­bata sem þjóni öllum lands­mönnum. Sem dæmi um þetta nefna sam­tökin að breyta ætti tíma­bund­inni ein­földun á fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja í ótíma­bund­inni, svo að auð­veld­ara verði fyrir atvinnu­lífið að taka við sér þegar kreppan líður undir lok.

Einnig nefna sam­tökin að efla ætti sam­keppni í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu, líkt og þau minnt­ust á í mati sínu sem atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið birti fyrir tveimur vikum síðan. Í því mati hvöttu sam­tökin m.a. til afnáms lög­gild­ingar á bak­ara og ljós­mynd­ara.

Með öfl­ugri sam­keppni og jafn­ari stöðu inn­lendra fyr­ir­tækja gegn erlendum sam­keppn­is­að­ilum þeirra telja sam­tökin að atvinnu­lífið hér á landi gæti styrkst til muna. Samhliða því mælir OECD með fjár­fest­ingu í menntun, rann­sóknir og þróun og verk­efni sem stuðla að grænum hag­vexti. Að mati sam­tak­anna gætu slíkar fjár­fest­ingar bætt hæfni vinnu­aflsins hér á landi og gert það betur í stakk búið til að vinna í öðrum nýjum atvinnu­greinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár