Mynd: Kristinn Magnússon

Við erum eins og dýr í búri

Hann slapp úr klóm Alshabab, komst ósyndur lífs af þegar bát hans hvolfdi á Mið­jarð­ar­hafi, var synjað um hæli af Svíum og hefur nú beðið í 7 mán­uði eftir svari við því hvort hann fái að setj­ast að á Íslandi, við óvið­un­andi aðstæður. Hann hefur verið einn í leit að öryggi í þrjú löng ár.

Fyrir þremur árum var hinn fjórtán ára Muhiyo Hamud úti að leika sér í fót­bolta með vini sínum. Skyndi­lega þustu að vopn­aðir menn og námu vin­ina á brott. Menn­irnir fóru með þá í skítugt hús langt inni í skóg­inum, hús fullt af skelk­uðum börnum, eins og þeim sjálfum. Í hús­inu voru þau beitt and­legum og lík­am­legum mis­þyrm­ingum og þeim gert ljóst að þau skyldu hlýða mönn­unum í einu og öllu. Þeir voru liðs­menn Alshabab-hryðju­verka­sam­tak­anna og það áttu að verða örlög barn­anna að verða það líka. Muhiyo gat ekki hugsað sér að berj­ast fyrir Alshabab. Eftir mánuð í hús­inu tókst honum að flýja. Hann fór aftur heim til fjöl­skyldu sinnar í Jamaame. Mamma hans var him­in­lif­andi og fegin að sjá hann á lífi en þegar hún heyrði hvar hann hefði verið sagði hún honum að hann yrði að fara. Nokkrum dögum seinna lagði Muhiyo, fjórtán ára gam­all, af stað til Evrópu í leit að  öryggi. Nú, þremur árum síðar, er hann enn að leita.

Í minnihluta í miðri borgarastyrjöld

Muhiyo ber það ekki með sér við fyrstu sýn að hafa þunga byrði að bera. Hann er mynd­ar­legur ungur maður, vel til fara, með nýtísku­lega klipp­ingu. Hann er eig­in­lega bara eins og hver annar mennta­skóla­strákur. En augun segja sína sögu. Þau eru alvöru­þrungin og döpur. Lífið hefur verið honum erfitt frá fyrsta degi. Hann kemur frá borg­inni Jamaame í Sómalíu en hún hefur verið á valdi Alshabab frá því árið 2014. Þar er alþekkt að hryðju­verka­menn­irnir ýmist lokki börn til liðs við sig eða ræni þeim. Oft á tíðum velja þeir börn sem til­heyra minni­hluta­hópum og eiga sér fáa málsvara. Þannig er einmitt farið með Muhiyo. Hann til­heyrir Midgo-ætt­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár