Fjölmiðlaveldi fæðist: Leið Björns Inga til áhrifa

Björn Ingi Hrafns­son tap­aði öllu „og meira en það“ í hrun­inu, en stóð fljót­lega uppi sem einn helsti fjöl­miðla­barón lands­ins. Stundin fjallar um braskið, blaða­mennsk­una, auð­menn­ina og vin­skap­inn við Sigmund Davíð. Frama­brautin er skrykkj­ótt og fer­ill­inn verður æ skraut­legri.

Fjölmiðlaveldi fæðist: Leið Björns Inga til áhrifa

Björn Ingi Hrafns­son er á skömmum tíma orð­inn einn áhrifa­mesti fjöl­miðla­maður Íslands. Undir hann heyra miðl­arnir DV, Pressan, Eyjan og Bleikt.is. Þá er hann umsjón­ar­maður viku­legs sjón­varps­þáttar í opinni dag­skrá á Stöð 2 sem einnig er sýndur á Vísi.is. Áhrifa­vald Björns Inga hefur farið stig­vax­andi und­an­farin ár og ítök hans á fjöl­miðla­mark­aði hafa aldrei verið meiri. Þau náðu hámarki með yfir­tök­unni á DV í fyrra, en um hana er enn ótal spurn­ingum ósvarað.

Uppfært: 25. júlí, eftir að greinin var skrifuð, var til­kynnt að Björn Ingi og Vef­pressan hefðu keypt 12 blöð til við­bótar. Þar á meðal eru: Akureyri Vikublað, Reykja­vík Vikublað, Bæj­ar­blaðið Kópa­vogur, Bæj­ar­blaðið Hafn­ar­fjörður/Garðabær, Reykja­nes­blaðið, Sel­foss­blaðið, Vest­ur­lands­blaðið, Aust­ur­land og Vest­firðir.

Björn Ingi hefur komið víða við og trekk í trekk þurft að reiða sig á vin­skap og tengsl við fjár­sterka menn. Félagar hans lýsa honum sem vini vina sinna og stórum manni með stórt hjarta. Hann er fjöl­miðla­kóngur, athafna­maður, fjöl­skyldu­faðir og klækja­refur. Saga hans er skraut­leg og verður skraut­legri með hverju árinu sem líður. En hver er mað­ur­inn og hvernig varð hann svona áhrifa­mik­ill?

Maður á uppleið

Björn Ingi kom í heim­inn þann 5. ágúst árið 1973 og ólst upp í Hvera­gerði og á Flateyri. Blaða­mennsku­á­hug­inn vakn­aði snemma. Ellefu ára að aldri fékk hann að kíkja í heim­sókn á rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins og sagð­ist þá ákveð­inn í að verða blaða­maður. Þetta átti eftir að ræt­ast rúm­lega ára­tugi seinna.

Á þessum tíma bjó fjöl­skyldan í hús­inu Sól­völlum á Flateyri. Stórhuga faðir hans, Hrafn Björns­son, kom sér upp báta­smiðju í lýsistanki gam­allar hval­verk­smiðju í bænum. Rekst­ur­inn gekk hins vegar ekki sem skyldi og athygli vakti þegar fjöl­skyldan hvarf snögg­lega frá Flateyri og flutti suður á bóg­inn.

Björn Ingi varði fram­halds­skóla­ár­unum í Reykja­vík sem nem­andi við Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð. Þaðan lá leiðin í háskól­ann þar sem Björn Ingi lagði stund á BA-nám í sagn­fræði og stjórn­mála­fræði, án þess þó að ljúka gráðu. Hann tók virkan þátt í félags­störfum sem for­maður félags sagn­fræði­nema og gjald­keri Röskvu og byggði upp öfl­ugt tengsla­net. „Hann klæddi sig vel og virt­ist mjög upp­tek­inn af því að líta út fyrir að vera maður á upp­leið, maður með völd og áhrif,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar sem þekkti Björn Inga á þessum árum. „Hann mont­aði sig af því að hann léti þvo og strauja skyrt­urnar sínar á þvotta­húsi.“

Varla tími til að borða

Á þrí­tugs­aldri starf­aði hann sem upp­lýs­inga­full­trúi Sam­bíó­anna og blaða­maður á Morg­un­blað­inu. Þótti hann standa sig með mik­illi prýði og af 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár