Mynd: Heiða Helgadóttir

Bréf til nauðgara

Fyrir hátt í 20 árum átti sér stað atburður á þjóð­há­tíð sem breytti öllu sem á eftir kom. En það var ekki fyrr en núna sem Bryn­hildur Yrsa Guð­munds­dóttir fékk loks kjarkinn til þess að gera þennan atburð upp og senda bréf á þá sem hún telur að hafi nauðgað sér, kærast­ann sem hvarf í kjöl­farið og mann­inn sem sagði henni hvað gerð­ist í raun og veru. Við birtum sam­skipti hennar við þessa menn, sem upp­lifðu atburð­inn með öðrum hætti.

Sjálf vissi hún ekki hvað gerð­ist, því hún var dregin áfeng­is­dauð inn í tjald og rank­aði við sér þar sem vinur hennar var að hafa kyn­mök við hana. Vinurinn var ekki bara hennar, heldur einnig kærastans og í sam­bandi við vin­konu hennar. Þegar hann hafði lokið sér af tók sá næsti við, en sá var í slag­togi við tví­bura­systur hennar. Þeir skildu Bryn­hildi svo eftir í fangi þriðja manns­ins, manns sem hún þekkti ekki en var úr sama bæj­ar­fé­lagi hinir og hélt ofbeld­inu áfram, án þess að hún gæti komið nokkrum vörnum við. Í svörum þeirra kemur fram að þeir upp­lifðu atvikið ekki sem nauðgun. 

Hafði hlakkað lengi til

Bryn­hildur ákvað að deila reynslu sinni í lok­uðum hópi kvenna á Facebook, Beauty tips, þegar #þöggun #kon­ur­tala bylt­ingin fór af stað. Við­brögðin voru mikil og sterk. Léttir­inn sem fylgdi í kjöl­farið var svo mik­ill að hún ákvað að senda þeim sem áttu hlut að máli bréf sem hún hefur lengi gengið með í mag­anum. Hér á eftir birtum við brot úr bréf­inu og svörin sem hún fékk: Fyrst til­greindi hún dag­setn­ingu og nákvæma tíma­setn­ingu og tók það fram að hún væri ekki í hefnd­ar­hug en henni þætti hún eiga inni afsök­un­ar­beiðni. „Ég get ekki ætl­ast til þess og gæti mín að gera ekki ráð fyrir neinu. En mér finnst ég svo sann­ar­lega eiga það skilið. Ég var búin að hlakka lengi til að fara á þessa þjóð­há­tíð, taldi dag­ana og var spenn­ing­ur­inn óbæri­legur þegar kom að stóra deg­inum.“

Líkaminn sveik mig

Í bréf­inu rakti hún svo sína hlið mála og seg­ist hafa mætt mjög drukkin á svæðið, svo drukkin að hún gat ekki einu sinni tekið þátt í því að tjalda. Hún hefur það svo eftir vin­konu sinni og systur að hún hafi lagst í grasið og svo gott sem sofnað. Þaðan hafi henni verið dröslað inn í tjald þar sem hún dó áfeng­is­dauða. Hópurinn hafi síðan ákveðið að skella sér að svið­inu, en tveir úr hópnum hafi skyndi­lega þurft að snúa við og ná í meira vín. Þeir hafi tekið fyrir það að stelp­urnar kæmu með þeim, sagst vilja fara einir og vera fljótir. „Ég get ekki sagt hvernig þetta byrj­aði en ég get sagt hvernig ég upp­lifði þetta,“ skrif­aði Bryn­hildur og sagði að hún hefði rankað við sér við hrist­ing og hama­gang, að það væri ein­hver ofan á henni og inni í henni. Þegar hún sá hver það var hafi hún orðið ringluð og ekki vitað hvernig þetta gerð­ist. Hún hafi reynt að rifja upp hvernig hún hefði endað með honum inni í tjaldi, fyrst hún átti kærasta og skildi ekk­ert. „Ég var svo ölvuð að ég gat lítið sagt eða gert, ég fraus algjör­lega. Inni í mér öskr­aði ég á hann að stoppa en það kom ekk­ert út úr mér. Þegar hann var loks­ins búinn að ljúka sér af fór hann ofan af mér og þá kom annar skyndi­lega ofan á mig og tróð honum inn. Þarna var mér ljóst að það var eitt­hvað í gangi sem ég hafði engan áhuga á og efað­ist strax um að hafa sam­þykkt þetta. Ég man að 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár