Engin ástæða til að bíða eftir því að verða „einhver geirfugl á skeri“

Sigrún Dav­íðs­dóttir frétta­maður hefur nú sest í helgan stein en síð­asta fasta innslagið hennar á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 var í morgun. Hún segir að það sé skrítið að vera komin í „enda­laust frí“ en ekk­ert til að kvarta yfir.

Sigrún Davíðsdóttir
Sigrún Dav­íðs­dóttir Mynd: RÚV/Óðinn Jónsson

Sigrún Dav­íðs­dóttir frétta­maður og pistla­höf­undur seg­ist munu sakna kolleg­anna og þess að vera undir þrýst­ingi – og standa skil á hlutum – eftir að hætta störfum en hún var í síð­astu reglu­legu inn­kom­unni á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. Hún hætti á Spegl­inum síð­asta vetur en hún varð 67 ára á árinu.

„En ein­hvern tím­ann varð þetta að ger­ast og engin ástæða til að bíða eftir því að maður verði ein­hver geir­fugl á skeri,“ sagði hún í sam­tali við Björn Þór Sig­björns­son dag­skrár­gerð­ar­mann á Morg­un­vakt­inni í morgun.

Sigrún seg­ist hafa byrjað á Morg­un­blað­inu í „upp­hafi tím­ans“ á níunda ára­tugnum. „Ég flutti síðan til Kaup­manna­hafnar því ég hafði fengið danskan styrk til að skrifa bók um hand­rita­málið – bók sem kom á end­anum út á dönsku en það er mjög gleði­legt að það er verið að þýða hana núna á íslensku.“

Sigrún varð síðar frétta­rit­ari á Morg­un­blað­inu í Danmörku. „Fyrsta stór­fréttin sem ég fjall­aði um var 1992 þegar Danir felldu Maastricht-sátt­mál­anna, einn lið­inn í þróun Evr­ópu­sam­vinn­unnar en Evr­ópu­sam­vinnan hefur alltaf verið stór hluti af því sem frétta­menn fjalla um.“

„Tænke, tænke, tænke“

Á þessum tíma var Uffe Ellemann-Jensen utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur en hann var ákafur stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­vinn­unnar. Sigrún segir að það hafi verið póli­tískt áfall fyrir hann að lands­menn hans skyldu fella Maastricht-sam­komu­lagið.

Hún lýsir aðstæðum í Danmörku á þessum tíma og segir að þegar sátt­mál­inn var felldur á danska þing­inu hafi fjöl­miðla­menn beðið spenntir í þing­hús­inu eftir við­brögðum frá Ellemann. „Það fyrsta sem hann sagði þegar hann hafði stikað upp tröpp­urnar var að nú ætl­aði hann að „tænke, tænke, tænke“ – það er að segja „hugsa, hugsa, hugsa“. Og ég skrif­aði þessa frétt og þá þessa til­vitnun innan gæsalappa sam­visku­sam­lega í frétt­ina sem ég vissi að færi á for­síð­una. Þetta var auð­vitað fyrir daga nets­ins og ég sá ekki blaðið fyrr en ég fékk það í pósti nokkrum dögum seinna. Og þá var fréttin orðin þannig að utan­rík­is­ráð­herra ætl­aði að leggj­ast undir feld. Ekkert með að „hugsa, hugsa, hugsa“ heldur „leggj­ast undir feld“. Og próf­arka­les­ar­inn, eða hver sem las þetta yfir, hafði sem sagt íslenskað text­ann og sett inn hvernig maður gæti sagt þetta á íslensku; að maður ætl­aði að hugsa sig um.

Ég hef oft sagt erlendum kol­legum þessa sögu og hef iðu­lega verið spurð að því hvort ég hefði ekki orðið reið að text­anum hafi verið breytt en nei, nei, ég féll algjör­lega í stafi yfir snilld þessa les­ara sem ég veit reyndar aldrei hver var.“

Sigrún segir að hennar lexía af þessu hafi verið að þegar frétta­menn flytja fréttir frá öðrum löndum og af því sem fólk segir þá verði þeir að hugsa hvað Íslend­ingur myndi segja eða hvernig hann kæm­ist að orði. „Þannig að orð­rétt þýð­ing er iðu­lega ann­að­hvort ankanna­leg eða bara ein­fald­lega óskilj­an­leg.“

Stress getur líka verið jákvætt

Björn Þór spurði Sigrúnu hvernig væri að vera hætt að vinna, hvort hún væri fegin eða hvort þetta væri erfitt. Hún sagði að auð­vitað væru það for­rétt­indi að geta ákveðið sjálf að hætta en að það væri skrítið að hætta í vinnu sem hefði mótað líf henni til ómældrar ánægju um ára­bil án þess að það væri ein­hver eft­ir­sjá eftir vinn­unni.

„Þannig að já, það rífur alveg í hjarta­ræt­urnar. Það tekur smá tíma að venja sig af að vera með fréttir og frétta­efni svona í algjörri gjör­gæslu og ein­hvern veg­inn haga öllu líf­inu til að skilja betur það sem er að ger­ast. Ég hef alltaf sagt að frí eru frá­bært út af því að þau hafa upp­haf og endi, svo það er svo­lítið skrítið að vera komin í enda­laust frí en það er sann­ar­lega ekk­ert til að kvarta yfir en það rífur smá í hjarta­ræt­urnar.“

Björn spurði hvort hún ætti eftir að sakna ein­hvers í starf­inu. Sigrún svar­aði og sagði að henni fynd­ist það svo­lítið skondið að hún sakn­aði þess að vera upp­tekin. „Ég sakna þess að þurfa að standa skil á hlutum og vera undir þrýst­ingi. Það er alltaf talað um þetta að vinna undir þrýst­ingi sé ein­hvern veg­inn aukið stress en stress getur líka verið jákvætt. Það getur auð­vitað verið drep­andi og eyði­leggj­andi en það getur líka verið örvandi. Þannig að ég sakna þess svo­lítið og ég sakna auð­vitað sam­bands­ins við góða kollega. En ein­hvern tím­ann varð þetta að ger­ast og engin ástæða til að bíða eftir því að maður verði ein­hver geir­fugl á skeri,“ sagði hún að lokum í síð­asta innslag­inu á Morg­un­vakt­inni í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár