Framlög Íslands til UNICEF aldrei verið meiri

Vöxtur UNICEF á Íslandi milli ára var 10,2 pró­sent og aukn­ing fram­laga frá íslenska rík­inu á milli 2017 og 2018 hefur sjaldan verið meiri eða tæp 160 pró­sent.

Framlög íslenska rík­is­ins, almenn­ings og fyr­ir­tækja á Íslandi til bar­áttu UNICEF fyrir börn hafa aldrei verið meiri en árið 2018. Vöxtur UNICEF á Íslandi milli ára var 10,2 pró­sent og aukn­ing fram­laga frá íslenska rík­inu á milli 2017 og 2018 hefur sjaldan verið meiri eða tæp 160 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt UNICEF.

Árið 2018 gaf Ísland, ríki og lands­nefnd, næst hæstu fram­lögin til UNICEF alþjóð­lega, sé miðað við höfða­tölu, í öðru sæti á eftir Noregi. Þetta var meðal þess sem kom fram á árs­fundi UNICEF á Íslandi sem hald­inn var í gær.

Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, segir þetta vera frá­bæran árangur og séu þau almenn­ingi, fyr­ir­tækjum og stjórn­völdum inni­lega þakk­lát fyrir þennan mik­il­væga stuðn­ing. „Það er auð­vitað mjög gleði­legt að sjá þessi auknu fram­lög frá rík­inu til bar­áttu UNICEF alþjóð­lega, sér­stak­lega þegar við berum okkur saman við þjóðir sem gefa mun hærri pró­sentu af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til þró­un­ar­mála en Ísland. Þessi aukn­ing gerir UNICEF kleift að ná til enn fleiri barna um allan heim.“

Á fund­inum í gær kynnti Berg­steinn helstu nið­ur­stöður árs­ins 2018. Þar bar einna hæst að söfn­un­arfé UNICEF á Íslandi var rúmar 730 millj­ónir króna árið 2018, sem er 10,2 pró­sent vöxtur milli ára. Alls kom 81 pró­sent af söfn­un­arfé frá heims­for­eldrum, mán­að­ar­legum stuðn­ings­að­ilum sem styðja bar­áttu UNICEF um allan heim.

Auk þess studdi almenn­ingur dyggi­lega við börn í Jemen á árinu, en rétt tæp­lega 30 millj­ónir söfn­uð­ust fyrir neyð­ar­hjálp UNICEF í Jemen. Metsala var síðan á sölum Sannra gjafa fyrir jólin, en lands­menn keyptu hjálp­ar­gögn á borð við bólu­efni, teppi, hlý föt og vatns­dælur fyrir rúm­lega 30 millj­ónir króna á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár