Hár húsnæðiskostnaður og lítið um græn svæði

Samkvæmt nýrri úttekt OECD greiða Íslend­ingar hærra hlut­fall af tekjum sínum í hús­næði heldur en flest önnur aðild­ar­ríki sam­bands­ins. Einnig hefur ekk­ert annað aðild­ar­ríki jafn­lítið aðgengi að grænum svæðum í þétt­býli og Ísland.

Græn svæði vantar hér á landi í þéttbýlum, ef miðað er við önnur OECD-ríki.
Græn svæði vantar hér á landi í þétt­býlum, ef miðað er við önnur OECD-ríki. Mynd: Bára Huld Beck

Aðgengi Íslend­inga að grænum svæðum í þétt­býli er minnst allra OECD-ríkja. Einnig er hús­næð­is­kostn­að­ur­inn hér á landi hærri en í flestum aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins og hlut­fall fólks sem býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað hér­lendis yfir með­al­tali þeirra. Þetta kemur fram í minn­is­blaði OECD um hús­næð­is­mark­að­inn á Íslandi sem kom út í síð­ustu viku.

Íþyngjandi húsnæðiskostnaður, en auðvelt að kaupa

Samkvæmt OECD sker hús­næð­is­mark­að­ur­inn á Íslandi sig frá öðrum aðild­ar­ríkjum sam­tak­anna, þar sem hvergi er hærra hlut­fall íbúa með hús­næð­is­lán á bak­inu. Í flestum öðrum OECD-ríkjum er leigu­mark­að­ur­inn stærri, auk þess sem fleiri eiga hús­næði sitt skuld­laust.

Þetta háa hlut­fall gæti útskýrt hvers vegna hús­næð­is­kostn­aður Íslend­inga er svo hár, en fá önnur aðild­ar­ríki eyða eyða hærra hlut­fall af tekjum sínum í hús­næði heldur en við. Einnig flöktir hús­næð­is­verðið einna mest hér­lendis.

Þar að auki er Ísland vel yfir með­al­tali þegar kemur að hlut­fall fólks sem býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað, en rúm 40 pró­sent lág­tekju­fólks þurfa að greiða meira en 40 pró­sent af tekjum sínum í leigu. Til sam­an­burðar eru um 35 pró­sent lág­tekju­fólks í öllum OECD-ríkj­unum í sömu sporum, en ein­ungis 7 pró­sent lág­tekju­fólks í Tékk­landi.

Hins vegar eru með­al­tekj­urnar háar hér á landi miðað við hús­næð­is­verð, en safna þarf styttra til þess að eiga fyrir hús­næði á Íslandi heldur en að með­al­tali í OECD-lönd­unum

Lítið kolefnisfótspor en orkufrek og lítið grænt svæði

Vegna hreinnar orku­fram­leiðslu hér­lendis er kolefn­is­fót­spor hús­næð­is­mark­að­ar­ins minnst allra OECD-ríkja hér á landi. Hins vegar, lík­lega vegna ódýrrar orku og lágs hita­stigs hér á landi, nota íslensk heim­ili meiri orku en nokk­urt annað OECD-ríki.

Ísland er einnig í síð­asta sæti OECD-ríkj­anna þegar kemur að aðgengi heim­il­anna að grænu svæði. Einungis 3,5 pró­sent allra þétt­býl­is­svæða hér á landi voru skil­greind sem græn svæði, á meðan með­al­talið allra landa OECD nemur 17 pró­sentum. Hlut­fallið er hæst í Hollandi, þar sem 43 pró­sent þétt­býl­is­svæð­anna eru græn svæði.

Komum vel út í mælingum á húsnæðisstefnu

Stefna hins opin­bera í hús­næð­is­málum hér á landi virð­ist þó vera í sam­ræmi við til­lögur OECD. Hér séu veð­hlut­föll lág miðað við önnur ríki, en sam­kvæmt sam­tök­unum kemur þar sem veð­hlut­föll eru lág miðað við , sem sam­tökin segja að draga úr líkum á hús­næð­is­bólum. Einnig sé lítil mið­stýr­ing á leigu­verði, sem hjálpar hús­næð­is­fram­boð að hreyfast í takt við breyt­ingar í eft­ir­spurn, og hár jað­ar­skattur á hús­næði, sem eykur líkur á að heim­ili verða ódýr­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár