Lífeyrisjóður verzlunarmanna lækkar óverðtryggða vexti

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur lækkað fasta vexti á óverð­tryggðum lánum úr 6,12 pró­sentum í 5,14 pró­sent. Í kjöl­far breyt­ing­ar­innar eru þetta lægstu föstu vextir óverð­tryggðra lána sem í boði eru.

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna hefur ákveðið að lækka fasta vexti óverð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga, frá og með 15. júlí 2019, úr 6,12 pró­sentum í 5,14 pró­sent. Í til­kynn­ingu frá sjóðnum segir að breyt­ingin á við um ný lán sem veitt eru frá og með þessum degi.

Þessir vextir sjóðs­ins eru nú hag­stæð­ustu slíku vext­irnir sem standa íbúa­kaup­endum á Íslandi til boða. Í kjöl­far breyt­ing­anna er nú hag­stæð­ara fyrir við­skipta­vini Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að velja fasta óverð­tryggða vexta en breyti­lega verð­tryggða, þar sem verð­bólga mælist nú 3,3 pró­sent. [adspot]

Ólga í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna

[links]Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna til­kynnti í maí síð­ast­liðnum að sjóð­ur­inn myndi hækka breyti­lega vexti verð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga, frá og með 1. ágúst næst­kom­andi, úr 2,06 pró­sentum í 2,26 pró­sent.

Stjórn VR gagn­rýndi þá ákvörðun sjóðs­ins harð­lega og lýsti stjórnin yfir trún­­­að­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­ar­­­mönnum félags­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­legra vaxta verð­­­tryggðra sjóð­­­fé­laga­lána sem stjórnin sagði að gengu í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­lækk­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­samn­ing­i.

Í kjöl­farið var síðan sam­þykkt, á fundi full­­­trú­a­ráðs VR í Líf­eyr­is­­­sjóði verzl­un­­­ar­­­manna þann 20. júní síð­ast­lið­inn, að aft­­­ur­­­kalla umboð stjórn­­­­­ar­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­sjóðs verzl­un­­­ar­­­manna og var að auki sam­­­þykkt til­­­laga um nýja stjórn­­­­­ar­­­menn til bráða­birgða.

Stjórn Líf­eyr­is­­sjóðs verzl­un­­ar­­manna hefur sagt ákvörð­unin um að breyt­a breyt­i­­legum vöxtum verð­tryggða lána sjóðs­ins hafa verið vegna þess að vext­irnir hefðu verið „orðnir óeðli­­leg­ir“.

Frá því að til­kynnt var um ákvörðun LIVE hefur Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn lækkað sína breyti­legu vexti á verð­tryggðum lánum niður í 1,84 pró­sent. Þá býður Birta líf­eyrri­sjóður upp á 1,97 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti, Stapi 2,08 pró­sent og Frjálsi 2,15 pró­sent.

Birta lífeyrissjóður lækkaði vexti í byrjun júlí

Birta líf­eyr­is­sjóður ákvað að lækka bæði breyti­lega óverð­tryggða og verð­tryggða vexti sjóð­fé­laga­lána þann 1. júlí síð­ast­lið­inn. Óverð­tryggðir vextir lækk­uðu úr 5,1 pró­sent í 4,85 pró­sent en verð­tryggðir breyti­legir vextir lækk­uðu úr 2,31 pró­sent í 1,97 pró­sent. Birta er fjórði stærsti líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á Ísland­i ef miðað er við hreina eign til greiðslu líf­eyr­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár