Gamli Landsbankinn búinn að borga Icesave

Slitabú Lands­bank­ans fékk í gær und­an­þágu frá Seðla­banka Íslands frá fjár­magns­höftum. Að henni feng­inni fór fram fulln­að­ar­upp­gjör eft­ir­stöðva sam­þykktra for­gangskrafna, sem að mestu eru til komnar vegna Icesave-reikn­ing­anna svo­kall­aðra, í bú bank­ans. Alls var um að ræða 210,6 millj­arða króna sem átti eftir að greiða inn á Icesave-kröf­una. Frá þessu er greint í frétt á heima­síðu slita­bús Lands­bank­ans.

For­gangs­kröfur í bú Lands­bank­ans námu alls 1.328 millj­örðum króna. Þorri þeirra var vegna Icesave-reikn­ing­anna svoköll­uðu og stærsti for­gangs­kröfu­haf­inn var breski inn­stæðu­trygg­inga­sjóð­ur­inn sem greiddi trygg­ingu til þeirra Breta sem geymdu fé á reikn­ing­unum.

Icesave-reikn­ing­arnir voru net­reikn­ingar sem bank­inn bauð upp á í Hollandi og Bret­landi sem báru mun hærri inn­láns­vexti en aðrir voru að bjóða upp á. Því flykkt­ust við­skipta­vinir til Lands­bank­ans vegna þeirra, enda ávöxtun á fé mun hærri þar en ann­ars­staðar.

Þessi mikla aðsókn leiddi til þess að Icesave-inn­láns­söfn­unin varð að risa­vax­inni alþjóða­deilu þegar ljóst var að hinn gjald­þrota Lands­banki gat ekki greitt inn­stæðu­eig­endum eignir sínar strax eftir banka­hrun. Inn­stæðu­trygg­inga­sjóðir land­anna tveggja greiddu hluta inn­stæð­anna til baka og við það eign­uð­ust þeir kröfu á Lands­bank­ann. 

Alls voru gerðir þrír Icesave-samn­ingar milli íslenskra stjórn­valda ann­ars vegar og Hol­lend­inga og Breta hins vegar. Tveir þeirra fóru í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, neit­aði að skrifa undir lögin. Ef síð­ustu samn­ing­arnir, sem kenndir voru við aðal­samn­inga­mann­inn Lee Buchheit, hefðu verið sam­þykktir hefðu heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs vegna þeirra numið alls um 67 millj­örðum króna, sam­kvæmt úttekt Hersis Sig­ur­geirs­sonar, dós­ents í fjár­málum við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Icesave-málið fór á end­anum fyrir EFTA dóm­stól­inn þar sem Ísland var sýknað af kröfum Breta og Hol­lend­inga í upp­hafi árs 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár