Þýskir bílaframleiðendur að kaupa kortahugbúnað Nokia

Þýskir bíla­fram­leið­endur, þar á meðal Audi, BMW og Mercedes (Daimler), eru að ganga frá kaupum korta­hug­búnað frá Nokia fyrir 2,8 millj­arða evra, eða sem nemur ríf­lega 400 millj­örðum króna. Dieter Zeitsche, stjórn­ar­for­maður Daimler, segir að góðar staf­rænar korta­lausnir verði lyk­il­at­riði þegar kemur að sam­keppn­is­hæfni í bílum fram­tíð­ar­innar, að því er fram kemur á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Bún­að­ur­inn, sem heitir Here, þykir hent­ugur til fram­þró­unar fyrir fram­tíð­ar­á­skor­anir í bíla­heim­inum. Margt bendir til þess að næstu tíu ár verði tími mestu breyt­inga sem bíla­iðn­að­ur­inn hefur gengið í gegnum und­an­farin 50 ár og munar þar mest um þróun á sjálfa­kandi bílum. Í þeim verður áreið­an­legur korta­hug­bún­aður afar mik­il­vægur. Hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Google hefur kostað til miklum fjár­hæðum til þró­unar á sjálfa­kandi raf­magns­bílum og eru tveir pruf­bílar á vegum fyr­ir­tæk­is­ins nú akandi um í almennri umferð í Kali­forníu.


Nokia sells Here maps unit to Audi, BMW, and Mercedes for $3 billion http://t.co/CPFqz7CbV2 pic.twitter.com/j3fAnydPxg


— The Verge (@verge) August 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár