Svona var almyrkvinn úr geimnum

Þessar myndir voru teknar úr margra milljón kíló­metra fjar­lægð frá jörðu.

Gervi­tungla­myndir úr margra milljón kíló­metra fjar­lægð frá jörðu sýna glögg­lega skugga tungls­ins frá sól­inni fær­ast yfir Norður-Ameríku á mánu­dag.

Earth Polychromatic Imaging Camera, eða EPIC, náði tólf lit­myndum af jörð­inni þegar tunglið gekk fyrir sólu og mynd­aði almyrkva í Norður-Ameríku 21. ágúst. EPIC er um borð í gervin­hettinnum Deep Space Climate Observatory, eða DSCOVR, þaðan sem bjarta hlið jarðar er mynduð á hverjum degi.

Mynd­bandið hér að ofan er frá Geim­ferða­stofnun Banda­ríkj­anna, NASA, sem rekur gervi­hnött­inn. Hann var sendur á spor­baug um sólu árið 2015 og á að rann­saka geim­veður og fylgj­ast með jörð­inni. Úr þess­ari fjar­lægð má greina stór verð­ur­kerfi með góðu móti, eins og glöggir les­endur hafa kannski tekið eftir.

Það var 6. júlí 2015 sem DSCOVR sendi fyrstu mynd­irnar af allri sól­ar­hlið jarð­ar­innar aftur til vís­inda­manna hjá NASA. Síðan hefur gervi­tunglið sent nokkrar myndir á hverjum degi af jörð­inni. Þær birt­ast svo allar á vefnum 12 til 36 klukku­stundum eftir að þær eru fram­kall­aðar.

Ásamt því að fylgj­ast með og taka myndir af jörð­inni er DSCOVR-gervi­hnött­ur­inn mik­il­vægt tæki fyrir vís­inda­menn til þess að rann­saka og glöggva sig betur á sól­ar­vindum og geim­veðri. Gervi­hnött­ur­inn er stað­settur á milli sólar og jarðar – í fyrsta Lagrangian-punkti svo notuð séu stjarn­fræði­leg hug­tök – og fær þess vegna fyrst veður af sól­gosum eða sól­vindum, áður en þeir lenda á jörð­inni.

Hægt er að skoða allar mynd­irnar af jörð­inni á sér­stökum und­ir­vef NASA fyrir DSCOVR-gervi­hnött­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár