Tæplega 800 innsendar umsagnir um samgönguáætlun

Alls hafa borist inn 786 umsagnir um sam­göngu­á­ætlun 2019 til 2033 en það er met­fjöldi umsagna. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, bjó til síðu sem auð­veld­aði fólki að senda inn umsögn um áætl­un­ina.

Tæplega 800 umsagnir hafa verið sendar inn um sam­göngu­á­ætlun 2019 til 2033 en aldrei áður hafa jafn­margar umsagnir verið sendar inn um eitt­hvert þing­mál, sam­kvæmt skrif­stofu Alþingis. Öllum er frjálst að senda nefnd skrif­lega umsögn um þing­mál en þetta gríð­ar­lega magn umsagna má rekja til heima­síðu þar sem almenn­ing er gert auð­veld­ara fyrir að senda inn umsögn um sam­göngu­á­ætlun. Að baki heima­síð­unnar er Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata en sam­kvæmt honum fjalla rúm­lega 700 umsagnir um veggjalda­á­ætlun meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Vildi auðvelda fólki að senda inn umsögn

Á síð­unni Veggjöld? er almenn­ing boðið að senda inn umsögn til umhverfis- og sam­göngu­nefndar um stefnu­mark­andi áform meiri­hluta nefnd­ar­innar um veggjalda­fram­kvæmdir. Á síð­unni er í boði að velja á milli tveggja takka, ann­ars vegar „ég and­mæli áformum um álagn­ingu veggjalda eins og þær koma fram í for­sendum meiri hluta Umhverfis- og sam­göngu­nefndar eða „ég styð áform um álagn­ingu veggjalda eins og þær koma fram í for­sendum meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar. Með því að smella á annan hvorn takk­ann opn­ast tölvu­póstur þar sem búið er að fylla inn allar þær upp­lýs­ingar sem þarf til að senda inn umsögn um sam­göngu­á­ætlun ásamt annarri hvorri ofan­greindri setn­ingu. Aðeins þarf að bæta við nafni sendana en einnig er í boði að breyta eða bæta við text­ann.

Í sam­tali við Kjarnann segir Björn Leví að hann hafi búið til heima­síð­una með það fyrir augum að auð­velda fólki að senda inn umsögn um sam­göngu­á­ætlun 2019 til 2033. Björn segir að oft þyki fólki of flókið að senda inn umsögn en merkja þarf umsögn­ina á ákveðin máta, meðal ann­ars með núm­eri og heiti þing­máls sem fólk þykir oft rugl­andi að finna. Björn Leví bjó því síðu sem fyllir inn allar þær nauð­syn­legar upp­lýs­ingar sem þarf til að senda inn umsögn. Björn Leví segir að spurn­ingin sem fram kemur á síð­unni sé aðeins um áætl­anir meiri­hlut­ans um gjald­tökur og fólki boðið að taka afstöðu með því en hann segir að einnig standi fólki til boða að breyta text­anum og senda inn ítar­legri umsögn.

Hann vakti meðal ann­ars athygli á síð­unni á Face­book-­síðu sinni í von um að hvetja sem flesta til senda inn umsögn. Hann hvatti fólk til að senda inn umsagnir fyrir dag­inn í dag svo umsagn­irnar myndu skila sér til umhverf­is- og sam­göngu­nefndar áður en nefndin fundar um málið í næstu viku. [adspot]

Öll þingleg meðferð tillagna um vegaskatta er eftir

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis hefur fjallað um sam­göngu­á­ætl­un­ina frá því að mál­inu var vísað til nefnd­ar­innar 11. októ­ber 2018 en stefnt er að því að afgreiða sam­göngu­á­ætlun snemma á þessu ári. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar Alþing­is, sagði í Silfrinu 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn, að full sam­staða væri á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um af­greiðslu sam­göngu­áætlun­ar en sam­komu­lag var gert milli rík­is­stjórn­ar­inn­ar og stjórn­ar­and­stöð­unn­ar um að sam­göngu­áætlun verði í for­gangi þegar þing kem­ur sam­an að nýju eft­ir jóla­frí.

Þann 19. des­em­ber 2018 lagði meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar fram minn­is­blað um áherslur meiri­hlut­ans í sam­göngu­á­ætlun. Í henni er lagt til að tekið verði upp gjald­taka á vegum, með það að mark­miði að flýta fram­kvæmdum sem gert er ráð fyrir í sam­göngu­á­ætlun og skapa fjár­hags­legt rými fyrir nýjar fram­kvæmdir. Umhverfis- og sam­göngu­nefndin stefnir á að hitt­ast í næstu viku, á þeim fundi verða til­lögur meiri­hlut­ans teknar fyrir ásamt inn­sendum umsögnum um áætl­un­ina.

Formaður umhverfis- og sam­göngu­nefndar hefur verið gagn­rýndur af Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­manni Vinstri grænna, vegna stað­hæf­inga Jóns um veggjöld í fjöl­miðlum. Hún segir að Jón hafa m.a. sagt að full sátt sé um fjár­mögn­un­ar­leið­irnar en Rósa Björk, sem einnig situr í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, bendir á að þær leiðir séu alveg óræddar í þing­nefnd­inni og á Alþinig. Öll þing­leg með­ferð til­lagna um vega­skatt sé eftir og útfærsla þeirra.

Í silfr­inu 16. des­em­ber sagði Björn Leví að inn­an Pírata væri hvorki sér­stök mót­staða eða stuðn­ing­ur við veggjöld. Flokk­ur­inn hafi hins veg­ar bent á að ferlið við að koma veggjöldum inn í sam­göngu­áætlun með nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans rétt fyr­ir þing­lok hafi verið illa und­ir­búið enda um stóra ákvörðun að ræða á stutt­um tíma. Vildi flokk­ur­inn því að af­greiðslu sam­göngu­áætlun­ar yrði frestað og málið nægi­lega vel unnið.

Áform um gjaldtöku

Þær fjár­mögn­un­ar­leiðir sem koma fram í minn­is­blaði meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar eru byggðar á þrenns konar for­sendum. Í fyrsta lagi verði gjalda­taka á þremur megin stofnæðum stofnæðum, þ.e. Reykja­nes­braut að Kefla­vík­ur­flug­velli, Suð­ur­lands­vegi og Vest­ur­lands­vegi, út frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í minn­is­blað­inu segir að mark­mið gjald­töku á þessum leiðum er að flýta fram­kvæmdum en núver­andi áætl­anir gera ráð fyrir. Til að hefja fram­kvæmdir þurfi að tryggja hag­stæða lán­töku sem greidd verði með veggjöldum. Í minn­is­blað­inu segir að inn­heimtu þeirra verði hætt um leið og fram­kvæmd­irnar verða greiddar upp að fullu.

Í öðru lagi verði ákveðnar leiðir á lands­byggð­inni sem stytta vega­lengdir fjár­magn­aðar með bland­aðri fjár­mögnun, að hluta til með fjár­fram­lögum af sam­göngu­á­ætlun og að hluta til með lán­töku sem verði greidd upp með gjald­töku. Gjald­töku verði síðan hætt þegar lán verður greitt upp, segir í minn­is­blað­inu. Í þriðja lagi verði inn­heimt veg­gjald í jarð­göngum á Íslandi. Í minn­is­blað­inu segir að gjald­töku í jarð­göngum sé ætlað að standa undir þjón­ustu og rekstri jarð­ganga, og hlut í nýbygg­ingum.

Meirihluti umsagnanna andvíg veggjöldum

Björn Leví birti Facebook-færslu í dag þar sem hann birti töl­fræði sína um umsagn­irnar en hann seg­iri þetta vera met fjölda umsagna. Alls bár­ust um 786 umsagnir og þar af rúm­lega 700 um veggjalda­á­ætl­un­ina en tæpar 70 um sam­göngu­á­ætl­un­ina sjálfa, sam­kvæmt Birni. Í færsl­unni segir hann að af 633 umsögnum eru 93 pró­sent and­víg veggjalda­á­ætlun en 7 pró­sent styðj­andi.

Aðspurður segir Björn að það hafi komið honum óvart hversu stór meiri­hluti var and­vígur til­lögum meiri­hlut­ans um gjald­töku en hann bendir þó á að þeir sem sendi inn umsagnir eru yfir­leitt þeir sem hafi sterkar skoð­anir á mál­efn­inu. Hann bætir við að sumar umsagn­anna voru mjög ýtar­legar en aðrar stuttar og hnit­mið­aðar.

„Mig langar til þess að þakka þeim sem sendu umsagnir. Heild­ar­fjöldi umsagna er nú 773 umsagnir þar sem tæpar 70 bár­ust um sam­göngu­á­ætl­un­ina sjálfa og (enn sem komið er) um 700 um veggjalda­á­ætlun meiri hluta. Þetta er met í fjölda umsagna, til ham­ingju þið og takk kær­lega fyrir að sýna þessu áhuga.“ segir að lokum í Facebook-færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár