Landvernd segir „stríðsyfirlýsingu“ að finna í stjórnarsáttmálanum

Stjórn Land­verndar gagn­rýnir áform rík­is­stjórn­ar­innar um breytta ramma­á­ætlun, sér­stök vind­orku­lög og flutn­ing orku­mála inn í umhverf­is­ráðu­neytið, í yfir­lýs­ingu í dag.

Guðlaugur Þór Þórðarson er nýr ráðherra umhverfis-, loftslags- og orkumála. Landvernd segir að það verði erfitt að gæta hagsmuna náttúrunnar og fara með orkumálin á sama tíma.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er nýr ráð­herra umhverfis-, lofts­lags- og orku­mála. Land­vernd segir að það verði erfitt að gæta hags­muna nátt­úr­unnar og fara með orku­málin á sama tíma. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Land­verndar gagn­rýnir ýmis­legt sem finna má í nýjum stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og segir að áform sem þar birt­ist um að „ganga gegn áliti fag­að­ila um röðun í flokka ramma­á­ætl­unar III“ séu í raun „stríðs­yf­ir­lýs­ing“. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem barst frá nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum í dag.

„Almenn sam­staða hefur verið um að ramma­á­ætlun, byggð á fag­legum for­sendum, væri for­senda víð­tæk­ari sáttar um nátt­úr­vernd og virkj­anir. Gangi rík­is­stjórnin gegn þess­ari sátt er sú sátta­við­leitni einskis virði. Í inn­gangi sátt­mál­ans er talað um sátt um auð­linda­nýt­ingu. Hún verður að byggj­ast á sam­tali og gagn­sæi og byggja á fag­legum vinnu­brögðum, nátt­úru­vernd­ar­lögum og alþjóða­sam­þykktum,“ segir í yfir­lýs­ingu Land­verndar.

Óttast samslátt umhverfis- og orkumála

Stjórn Land­verndar segir enn fremur ótt­ast þá ákvörðun að fella orku­mál og nátt­úru­vernd undir sama ráðu­neyti, en Guð­laugur Þór Þórð­ar­son mun fara með þau mál í nýrri rík­is­stjórn.

Land­vernd segir að það sé nauð­syn­legt að nátt­úru­vernd eigi sæti við rík­is­stjórn­ar­borðið og að með því að slá þessum mála­flokkum saman sé „mikil hætta á að fjár­sterkir aðilar sem sækj­ast eftir að virkja og spilla íslenskri nátt­úru fái mun meira vægi í ákvarð­ana­töku.“

„Mik­il­vægu jafn­vægi í stjórn­sýslu er raskað með þess­ari ákvörðun og hvetur Land­vernd rík­is­stjórn­ina til að end­ur­skoða þessa ákvörðun,“ segir í yfir­lýs­ingu Land­verndar. Þar segir einnig að erfitt verði „fyrir einn ráð­herra að gæta hags­muna umhverf­is­ins um leið og hann er ráð­herra orku­mála“.

Stjórn Land­verndar gagn­rýnir fleiri skipu­lags­breyt­ingar í stjórn­ar­ráð­inu og segir að það sé „mjög slæmt“ að slíta skipu­lags­mál úr sam­hengi við nátt­úru­vernd og færa þau yfir í ráðu­neyti inn­viða. Þá séu land­græðsla og skóg­rækt einnig gríð­ar­stór umhverf­is­mál sem verði að skoða heild­stætt í sam­hengi við nátt­úru­vernd og lofts­lags­mál.

Varhugaverð vindorkulög

Stjórn Land­verndar seg­ist einnig telja að það eigi að fara „mjög var­lega í upp­bygg­ingu vind­orku­vera á Íslandi og að þau eigi skil­yrð­is­laust að falla undir ramma­á­ætlun.“

[adspot]

Stjórnin telur í þvi ljósi að fyr­ir­ætl­anir um að greiða götu vind­orku­vera með sér­lögum eins og talað er um í stjórn­ar­sátt­mál­anum séu mjög var­huga­verðar, en í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir að sér­stök lög um nýt­ingu vind­orku verði sett „með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera til fram­leiðslu á grænni orku.“

Tilgreina þurfi aðgerðir, ekki bara markmið, í loftslagsmálum

Stjórnin seg­ist fagna áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 55 pró­sent árið 2030 miðað við 2005 og mark­miði um kolefn­is­hlut­leysi og full orku­skipti eigi síðar en árið 2040. Hins vegar sé það eitt að setja sér fram­sækið mark­mið og annað að til­greina nauð­syn­legar aðgerðir til að ná því mark­miði.

„Fáein ár eru til stefnu og því mik­il­vægt að upp­færa fyr­ir­liggj­andi aðgerð­ar­á­ætlun fljótt og vel og leggja fram sann­fær­andi tíma­settar aðgerðir og áfanga að þessum mark­miðum. Rík­is­stjórnin verður einnig að útskýra hvað felst í „kolefn­is­hlut­leysi“ Íslands gagn­vart land­nýt­ingu og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá landi,“ segir í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar.

Þar er það einnig sagt „fagn­að­ar­efni“ að for­sæt­is­ráðu­neytið skuli fá það hlut­verk að sam­ræma allar stjórn­valds­á­kvarð­anir sem lúta að mark­miðum um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, þar sem lofts­lag­málin snerti marga mála­flokka.

Harma „undanhald“ með hálendisþjóðgarð

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er horfið frá þeim fyr­ir­ætl­unum sem voru mót­aðar um hálend­is­þjóð­garð á síð­asta kjörtima­bili, en ekki reynd­ist sátt um málið þegar á reyndi. Þess í stað á að breyta lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð og gera þegar frið­lýst svæði á hálend­inu að hluta hans.

Stjórn Land­verndar seg­ist harma það „und­an­hald“ sem rík­is­stjórnin skipu­leggi í verndun hálend­is­ins. „Víðtæk sam­staða er um það í sam­fé­lag­inu að vernda beri hálendið fyrir virkj­unum og öðrum mann­virkjum. Þá þarf að bæta verndun ein­stakra svæða, auka fræðslu og bæta öryggi þeirra sem vilja njóta víð­erna, frelsis og nátt­úru á hálend­inu. Besta leiðin til þess er að stofna þjóð­garð,“ segir stjórn Land­verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár