Verðmiðinn á Siggi's skyr var að lágmarki 40 milljarðar

Fyr­ir­tækið The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem var stofnað af Sigurði Kjartani Hilm­ars­syni árið 2006, var selt til franska mjólk­ur­ris­ans Lactalis í byrjun síð­asta árs, fyrir að lág­marki 40 millj­arða króna.

Sigurður Kjartan Hilmarsson, stofnandi The Icelandic Milk and Skyr Corporation.
Sigurður Kjartan Hilm­ars­son, stofn­andi The Icelandic Milk and Skyr Corporation. Mynd: Elísabet Davíðsdóttir

Fyr­ir­tækið The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem stofnað var af Sigurði Kjartani Hilm­ars­syni árið 2006, var selt til franska mjólk­ur­ris­ans Lactalis í byrjun síð­asta árs. Fyr­ir­tækið var í um 75 pró­senta eigu Sigurðar, ætt­ingja hans og vina. Kaup­verðið var ekki gefið upp á þeim tíma vegna trún­aðar á milli kaup­anda og selj­anda. Í Mark­aðnum í dag er greint frá því að kaup­verðið hafi verið að lág­marki 370 millj­ónir dala eða um 40 millj­arðar króna miðað við þáver­andi gengi.

Milljarðaviðskipti

Sigurður Kjartan Hilm­ars­son stofn­aði fyr­ir­tækið árið 2006 og byggði upp fyr­ir­tækið frá fyrstu skyr­blöndu. Áhuga á fyr­ir­tæk­inu óx mjög á síð­ustu árum og fór svo að lokum að Lactalis keypti. Lactalis er alþjóð­legur risi með árlegar tekjur upp á tæp­lega 17 millj­arða evra, eða sem nemur rúm­lega 2.100 millj­örðum króna. Banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn JP Morgan leiddi sölu­ferlið og kom fram í umfjöllun CNBC í aðdrag­anda söl­unnar, í októ­ber, að gert væri ráð fyrir að sölu­tekjur vegna Siggi’s Skyr yrðu um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala árið 2018 eða sem nemur um 22 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­sölu­tekjur MS - vegna allra vara fyr­ir­tæk­is­ins - á árinu 2016, námu 28 millj­örðum króna.

Hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins, sem ber nafnið The Icelandic Milk and Skyr Corporation, voru fyrir söl­una að mestu Siggi sjálfur og vinir hans og vanda­menn. Sviss­neski mjólk­ur­vöru­fram­leið­and­inn Emni Group átti 22 pró­sent hlut en hann kom fyrst inn í hlut­hafa­hóp­inn um mitt ár 2012. Nákvæm hlut­föll voru ekki verið gefin upp við söl­una.

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að í upp­gjöri Emmi Group fyrir fyrri helm­ing síð­asta árs kemur fram að fram­leið­and­inn hafi bók­fært hjá sér hagnað upp á 80,9 millj­ónir dala við sölu á öllum 22 pró­senta hlut sínum í skyr­fyr­ir­tæk­inu. Eftir skatta nam sölu­hagn­að­ur­inn 58,9 millj­ónum dala. Emmi Group fór með líkt greint er frá hér fyrir ofan með 22 pró­senta hlut í skyr­fyr­ir­tæk­inu fyrir söl­una til Lactalis og var þá eini fag­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópnum. Ekki liggur fyrir hvert virði eign­ar­hlut­ar­ins var í bókum Emmi Group fyrir söl­una til Lactalis.

Margfölduðu fjárfestinguna

Ingi­mundur Sveins­son arki­tekt og fjöl­skylda voru á meðal stærstu hlut­hafa The Icelandic Milk and Skyr Corporation með um fimmt­ungs­hlut, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins, og fengu þau því um það bil átta millj­arða króna í sinn hlut við söl­una. Félag í eigu fjöl­skyld­unnar, Eld­hrímnir, setti fjár­muni í skyr­fyr­ir­tækið á árunum 2006, 2008 og 2013 og var hlutur félags­ins met­inn á kostn­að­ar­verði, 51 milljón króna, í bókum þess í lok árs 2017.

Að því gefnu að umrædd fjár­hæð, 51 milljón króna, hafi verið eina hluta­fjár­fram­lag fjöl­skyld­unnar til skyr­fyr­ir­tæk­is­ins nam innri ávöxtun fjár­fest­ingar hennar hátt í 80 pró­sentum á ári á árunum 2006 til 2017, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins.

Sonur Ingi­mundar, Sveinn Ingi­mund­ar­son, var meðal hlut­hafa og hefur verið með Sigga í verk­efn­inu, með einum eða öðrum hætti, frá upp­hafi. Í við­tali við Kjarnann í kjöl­far söl­unnar til Lactalis byrjun árs 2018 sagði Sigurður Kjartan að umbúð­irnar hafi verið „x factorinn“ sem skipti miklu máli fyrir fram­gang og þróun Siggi's Skyr. Þær voru hann­aðar af Sveini.

Eign­ar­hlutur Sigurðar Kjartans nam, eftir því sem Mark­að­ur­inn kemst næst, um 25 pró­sentum. Ljóst er að þeir sem lögðu fyr­ir­tæki Sigurðar til fé, líkt og Emmi, marg­föld­uðu fjár­fest­ingu sína, jafn­vel þannig að þeir fengu hana meira en hund­rað­falt til baka.

Skyrveldið varð til í eldhúsinu hjá Sigga

[links]Vöxtur Siggi's skyr hefur verið hraður á und­an­förnum árum og núna fæst skyrið í um 25 þús­und versl­unum í Banda­ríkj­unum. Í upp­hafi leit þó ekki út fyrir að mikið veldi væri í upp­sigl­ingu en Sigurður Kjartan sagði frá skyræv­in­týr­inu, sem hófst í New York fyrir meir en ára­tug, í við­tali við Kjarnann í byrjun árs 2018.

Sigurður Kjartan lauk MBA námi við Columbia háskóla í New York árið 2004, hóf störf hjá Deloitte í borg­inni í kjöl­farið en sagði upp þegar skyrá­hug­inn kvikn­aði. Hann byrj­aði á að kynna skyrið sitt á litlu borði með skilti á mark­aði í New York. Sigurður fór í fjölda ferða á sölu­ráð­stefnur og fundi til að koma vör­unni á fram­færi og sann­færa við­skipta­vini um ágætið. Aðspurður um hvaða fyr­ir­tæki það hafi verið, sem hafi skipt miklu fyrir vör­unar segir Siggi að versl­un­ar­keðjan Whole Foods hafi þar verið mik­il­væg. Að lokum opn­uðu stærstu versl­un­ar­keðjur heims­ins opn­uðu dyrnar fyrir skyr­inu.

„Þetta er bara þrot­laus vinna, og það hættir aldrei.“ sagði Sigurður í við­tal­inu og sagði engan einn galdur vera við þetta verk­efni. „Það tekur tíma að byggja upp tengslin á mark­aði og traust á vörum og sölu­að­ferðum og slíku. Ekkert kemur í stað­inn fyrir það að vera á mark­aðnum á fyrstu stig­unum.“

Vöxtur í kortunum

Þrátt fyrir söl­una á fyr­ir­tæk­inu þá er Siggi’s, og vöru­merkin 30 sem undir því eru, í miklum sókn­ar­hug sam­kvæmt Sigurði. Frá árinu 2013 hefur skyrið verið sú jógúrt­teg­und sem hefur vaxið hvað hrað­ast á Banda­ríkja­mark­aði og er talið að fyr­ir­tækið sé með um það bil tveggja pró­senta mark­aðs­hlut­deild í jógúrt­sölu þar í landi.

Sigurður segir, í við­tal­inu við Kjarnann, lend­ing­una hafa verið góða, eftir tólf ára vinnu. Fjár­festar hafi fengið góða ávöxtun eftir mikla þol­in­mæði og starfs­fólkið geti nú haldið áfram vinnu sinni. Blóð, sviti og kannski ein­hver tár, verða mögu­lega hluti af vaxt­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins, eins og hingað til.

Hann segir að engin breyt­ing verði á þeirra starf­semi og fyr­ir­tækið muni halda áfram að starfa frá New York. Um 50 starfs­menn eru á skrif­stof­unni í New York, en svo eru mörg hund­ruð und­ir­verk­takar að störfum vítt og breitt, í fram­leiðslu og öðrum verk­efnum sem sinna þarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Fréttirfrumkvöðlar

Íslensk kona ein af svöl­ustu frum­kvöðl­unum undir þrí­tugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30). Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til...

Mest lesið undanfarið ár