Árvakur tapar 164 milljónum og fer í útvarpsrekstur

Árvakur hf., útgef­andi Morg­un­blaðs­ins og mbl.is, hefur keypt allan útvarps­rekstur Símans, það er útvarps­stöðv­arnar K100 og Retro. Þá hefur fyr­ir­tækið keypt allt hlutafé í Eddu - útgáfu, sem gefur meðal ann­ars út Andr­és­blöð og Syrpu.

Þetta var kynnt á starfs­manna­fundi hjá Árvakri í dag, og greint er frá þessu á mbl.is.

Þá var einnig greint frá tapi Árvakurs í fyrra, en það var tæp­lega 164 millj­ónir króna. „Eins og töl­urn­ar bera með sér var rekst­ur­inn mjög þung­ur í fyrra. Árið byrj­aði ágæt­lega, en þegar leið fram á vorið hóf­ust kjara­deil­ur sem höfðu mik­il áhrif á and­rúms­loftið á aug­lýs­inga­mark­aði. Aug­lý­send­ur kipptu að sér hönd­um eins og yf­ir­leitt ger­ist við slíkt óvissu­ástand og tekj­urn­ar duttu niður. Við þetta bætt­ist svo að samið var um mikl­ar hækk­an­ir í kjara­samn­ing­um og voru þær tölu­vert um­fram áætlan­ir okk­ar. Gróf­lega má segja að hvor þess­ara þátta skýri um helm­ing taps­ins,“ er haft eftir Haraldi Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, á mbl.is.

Hann segir að líkur séu á halla­rekstri í ár þó rekst­ur­inn sé mun betri það sem af er ári en síð­asta ár. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu tæpum 3,2 millj­örðum á árinu 2015 og aðrar tekjur 128 millj­ónir. Rekstr­ar­kostn­aður nam tæpum 3,3 millj­örðum og afskriftir námu tæp­lega 100 millj­ónum króna. Að með­al­tali voru 184 starfs­menn og 500 blað­berar.

Árvakur hefur einnig ákveðið að opna tvær nýjar vef­síður sem verða reknar undir hatti mbl.is. Sjáv­ar­út­vegsvef­ur­inn 200 mílur hefur þegar tekið til starfa og í síð­ari hluta mán­að­ar­ins mun fara í loftið mat­ar­vefur.

Tapið tæplega 1,5 milljarðar frá 2009

Árvakur hefur tapað umtals­verðum fjár­hæðum á und­an­förnum árum. Rekstr­­ar­tap félags­­ins var 667 millj­­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­­óna króna hagn­aði en 2014 var rekst­­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 42 millj­­ónum króna.

Tap Árvak­urs frá 2009, þegar uppi­staðan í núver­andi eig­enda­hópi eign­að­ist félag­ið, og til loka síð­asta árs nemur tæp­lega 1,5 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár