Raunverð íbúða og atvinnuhúsnæðis hátt miðað við undirliggjandi þætti

Töluvert hefur dregið úr spennu á fast­eigna­mark­aði að und­an­förnu. Verð­lækkun mæld­ist í febr­úar, og seðla­bank­inn segir að raun­verð sé fremur hátt miðað við helstu mæli­kvarða í hag­kerf­inu.

Raunverð búða er fremur hátt um þessar mundir og það sama má segja um atvinnu­hús­næði, sé mið tekið af þróun helstu mæli­kvarða í hag­kerf­inu.

Þetta kemur fram í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, þar sem fjallað er horfur í hag­kerf­inu með til­liti til áhrifa á fjár­mála­stöð­ug­leika.

Með raun­verði er átt við verð­þróun með til­liti til verð­bólgu, en hún mælist nú 2,9 pró­sent.

Í rit­inu segir að það sé farið að draga úr spennu á fast­eigna­mark­aði, og nú sé fram­boð hús­næðis að aukast umtals­vert á meðan það dregur úr eft­ir­spurn, þar sem kólnað hefur í hag­kerf­inu eftir mikla upp­gangs­tíma.

Samkvæmt tölum Þjóð­skrár, sem mælir þróun á fast­eigna­verði, þá lækk­aði fast­eigna­verð um 1 pró­sent í febr­úar, miðað við sama tíma í fyrra. Útlit er fyrir að fast­eigna­verð geti lækkað nokkuð, ef það heldur fram sem horfir, ef fram­boð af hús­næði vex nokkuð á sama tíma og eft­irpurn minnkar.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika segir að verð á atvinnu­hús­næði hafi verið að þró­ast með þeim hætti, að misvægi milli verðs­ins og ann­arra áhrifa­þátta í hag­kerf­inu, sem oft stjórna verði til lengri tíma, hafi verið aukast og að verð á atvinnu­hús­næði hafi verið að hækka. Það sem hefur veru­lega áhrif á verð atvinnu­hús­næðis er leigu­verð til þeirra sem eru með starf­semi í hús­næði.

Óvissa er um það hvernig mun spil­ast úr aðstæð­unum, sem fall WOW air hefur haft á ferða­þjón­ust­una, en útlit er fyrir sam­drátt á þessu ári í ferða­þjón­ustu. Erfitt er að segja til um hversu mik­ill hann verður, og hversu lengi önnur flug­fé­lög verða að fylla skraðið sem fall WOW air skap­aði.

Sam­dráttur í ferða­þjón­ustu gefur haft umtals­verð áhrif á fast­eigna­mark­aði, en upp­gang­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur meðal ann­ars leitt til mik­ils skorts á hús­næði, ekki síst mið­svæðis í Reykja­vík, þar sem margar íbúðir hafa verið leigðar af ferða­mönnum, meðal ann­ars í gegnum Airbnb. Þegar mest var voru yfir 3 þús­und íbúðir í leigu, en margt bendir til þess að þeim fari fækk­andi, sam­hliða auknu fram­boði af hót­el­her­bergjum og síðan minni vexti - eða sam­drætti - í ferða­þjón­ust­unni.

Fast­eigna­velta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var rúmir 415 millj­arðar síð­ast­liðna 12 mán­uði, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár.

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir við sýslu­manns­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í mars 2019 var 590.

Heild­ar­velta nam 31,9 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing var 54 millj­ónir króna. Við­skipti með eignir í fjöl­býli námu 20,1 millj­arði, við­skipti með eignir í sér­býli 8,8 millj­örðum og við­skipti með aðrar eignir 3 millj­örðum króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár