Stjórnendum ríkisins verða greidd frammistöðulaun

Í nýrri stjórn­enda­stefnu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að inn­leiða eigi frammi­stöðu­mat fyrir alla stjórn­endur rík­is­ins sem mun hafa áhrif á launa­setn­ingu þeirra.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur gefið út stjórn­enda­stefnu rík­is­ins sem er fyrsta heild­stæða stefnan um starfs­um­hverfi for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana, ráðu­neyt­is­stjóra og ann­ara sem hafa stjórnun að meg­in­starfi hjá rík­inu. Í stefn­unni segir að búa þurfi stjórn­endum umhverfi þar sem eft­ir­sókn­ar­vert er að starfa og tæki­færi gefst til að efl­ast og þró­ast í starfi. Stefn­unni fylgir aðgerða­á­ætlun til næstu þriggja ára en sam­kvæmt henni er áætlað að inn­leiða frammi­stöðu­mat fyrir alla stjórn­endur rík­is­ins sem mun hafa áhrif á launa­setn­ingu þeirra.

Eftirsóknarvert starfsumhverfi fyrir stjórnendur

Í jan­úar á þessu ári tók gildi breytt launa­fyr­ir­komu­lag for­stöðu­manna rík­is­ins sem hluti af nýju starfs­um­hverfi stjórn­enda. Nú bygg­ist launa­röðun starfa for­stöðu­manna rík­is­ins á sam­ræmdu mats­kerfi þar sem störf þeirra eru metin með sam­bæri­legum hætti. Grunnmat starfa skipt­ist í fjóra þætti út frá hlut­verki og eðli stofn­unar, færni, ábyrgð, stjórnun og umfang.

Þetta breytta launa­fyr­ir­komu­lag er hluti af nýrri stjórn­enda­stefnu rík­is­ins sem miðar að því að bæta færni stjórn­enda og gera ríkið að eft­ir­sókn­ar­verðum vinnu­stað. Í stjórn­enda­stefn­unni sem birt var í gær, segir að liður í því að bæta stjórn­enda­færni hjá rík­inu er að skil­greina hæfn­is­kröfur sem gerðar eru til stjórn­enda.

Í stefn­unni eru þær hæfn­is­kröfur skil­greindar í kjör­mynd stjórn­enda en sam­kvæmt stefn­unni má nota kjör­mynd­ina á ýmsa vegu, til dæmis við skil­grein­ingu á hæfn­is­þáttum við ráðn­ingar og leið­bein­ingar fyrir nýja stjórn­endur. Kjör­myndin á einnig að nýt­ast við mat á frammi­stöðu og ákvörðun um frek­ari starfs­þróun stjórn­enda hjá rík­inu.

Frammistöðulaunin verða greidd samkvæmt reglum um viðbótarlaun

Í stefn­unni er lögð áhersla á mik­il­vægi þess að ríkið bjóði stjórn­endum upp á sam­keppn­is­hæft starfs­um­hverfi. Það felist meðal ann­ars í því að laun þró­ist í sam­ræmi við hæfni og frammi­stöðu. Auk þess segir í stefn­unni að laun og almenn starfs­kjör stjórn­enda rík­is­ins skuli byggj­ast á hlut­lægum mæli­kvörðum og end­ur­metin í takt við almenna þróun. [adspot]

Með stefn­unni fylgir jafn­framt aðgerða­á­ætlun fyrir árin 2019 til 2021. Fram­kvæmd aðgerða­á­ætl­unar er á ábyrgð fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins en um hverja aðgerð er stofn­aður vinnu­hópur með þátt­töku ráðu­neyta, for­stöðu­manna og ann­arra fag­að­ila eftir því sem við á.

Á meðal aðgerða í áætl­un­inni er að leggja á mat á launa­kerfi for­stöðu­manna fyrir árið 2022 og inn­leiða frammi­stöðu­mat fyrir alla stjórn­endur rík­is­ins sem mun hafa áhrif á launa­setn­ingu. Frammi­stöðu­matið verður byggt á kjör­mynd stjórn­enda­stefn­unnar og þeim hæfn­is­kröfum sem þar koma fram, sam­kvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Nánari útfærsla frammi­stöðu­mats­ins verður hins vegar verk­efni eins aðgerða­hóps sem vinna mun í sam­ræmi við aðgerða­á­ætl­un­ina sem fylgir stefn­unni. Sá hópur hefur störf í ágúst.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur jafn­framt fram að frammi­stöðu­launin verða greidd sam­kvæmt reglum um greiðslu við­bót­ar­launa for­stöðu­manna rík­is­ins. Í svar­inu segir þó að núna sé ekki hægt að segja til um hversu mikil heild­ar­á­hrif frammi­stöðu­matið muni hafa á launa­setn­ingu stjórn­enda en í regl­unum um við­bót­ar­laun segir að: „Fjárhæð við­bót­ar­launa skal rúm­ast innan fjár­veit­ingar við­kom­andi stofn­unar og byggja á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og vera í takt við til­efni og í sam­ræmi við aðstæður.“

Fjöldi forstjóra ríkisfyrirtækja hækkuðu í launum í fyrra

[links]Í lok árs 2016 sam­þykkti Alþingi að færa ákvörð­un­ar­vald yfir launum rík­is­for­stjóra undan kjara­ráði og til stjórna rík­is­fyr­ir­tækj­anna. Sú breyt­ing tók gildi í júlí 2017. Bene­dikt Jóhann­es­son, sem þá var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sendi bréf til stjórna allra fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu í aðdrag­anda breyt­ing­anna og bað stjórnir að stilla öllum launa­hækk­unum for­stjóra í hóf. Í bréf­inu stendur að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­­­­­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­­­­­leika á vinn­u­­­­­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­­­­­bandi. Æski­­­­­legt er að launa­á­kvarð­­­­­anir séu var­kár­­­­ar, að forð­­­­­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­­­­­þró­un.“

Í febr­úar á þessu ári vakti það hins vegar mikla athygli þegar greint var frá því að laun banka­stjóra Lands­bank­ans hefðu hækkað um 82 pró­sent frá því starfið færð­ist undan kjara­ráði árið 2017. Lands­bank­inn er í 98,2 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins. Auk þess greindu fjöl­miðlar frá því að banka­stjóri Íslands­banka væri með 4,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun, en laun hennar voru lækkuð um 14,1 pró­sent í nóv­em­ber 2018 eftir að hún fór fram á það við stjórn bank­ans, sem varð við því. Launin fóru úr um 4,8 millj­ónum á mán­uði, niður í 4,2 millj­ón­ir. Laun banka­stjóra Íslands­banka voru hins vegar enn um 400 þús­und krónum hærri en hjá banka­stjóra Lands­bank­ans. Íslenska ríkið er eig­andi Íslands­banka,

Í kjöl­farið sendi Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, bréf til Banka­sýslu rík­is­ins þar sem hann óskaði þess að hún komi því með afdrátt­ar­lausum hætti á fram­færi við stjórnir rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans að „ráðu­neytið telji að bregð­ast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með taf­ar­lausri end­ur­skoðun launa­á­kvarð­ana og und­ir­bún­ingi að breyt­ingum á starfs­kjara­stefn­um, sem lagðar verði fram á kom­andi aðal­fundum bank­anna.“ Í bréf­inu sagði enn­fremur að það væri mat ráðu­neyt­is­ins að bank­arnir hefðu með launa­á­kvörð­unum fyrir æðstu stjórn­endur ekki virt þau til­mæli sem beint var til þeirra í upp­hafi árs 2017.

Bjarni sendi jafn­framt bréf til stjórna fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu í febr­úar þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um ­launa­á­kvarð­anir og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra. Í svörum við bréf­ ráð­herra kom meðal ann­ars fram að laun for­stjóra Íslands­pósts höfðu hækkað um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar ákvörðun um laun hans var færð frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­pósts. Auk þess hækk­uðu heild­ar­laun for­­­stjóra Isa­via um 43,3 pró­­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði og laun for­stjóra Lands­nets hækk­uðu um 37,2 pró­sent frá árinu áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár