Þrír af hverjum fjórum ánægðir með evruna

Í nýrri könnun Eurobarometer kemur fram að 76 pró­sent Evr­ópu­búa telji að sam­eig­in­legur gjald­mið­ill sé heilla­drjúgur fyrir Evr­ópu­sam­bandið og lönd evru­svæð­is­ins. Hlut­fallið hefur aldrei mælst hærra en evran fagnar 20 ára afmæli sínu í ár.

Rúmlega þrír af hverjum fjórum íbúum Evr­ópu­sam­bands­ins telja að sam­eig­in­legur gjald­mið­ill sé Evr­ópu­sam­band­inu til góðs. Enn fremur telur meiri­hluti íbúa að evran sé heilla­væn­leg fyrir þeirra eigið land. Aldrei áður hefur stuðn­ingur við evr­una mælst hærri í skoð­ana­könnun Eurobarometer, rann­sókn­ar­stofnun á vegum ESB.

Evran 20 ára

Evran á tutt­ugu ára afmæli í ár en hún var kynnt til leiks 1. jan­úar 1999. Seðlar og mynd komu hins vegar ekki í umferð fyrr en í jan­úar 2002. Í dag nota alls 340 millj­ónir Evr­ópu­búa í 19 af 28 aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins evr­una. Enn fremur eru gjald­miðlar 60 landa bundnir við evr­una með einum eða öðrum hætti.

Í nýrri könnun Eurobarometer kemur fram að met­fjöldi Evr­ópu­búa telji evr­una til góðs fyrir Evr­ópu­sam­bandið eða alls 76 pró­sent íbúa. Það er tveggja pró­sentu­stiga hækkun frá fyrra ári sem og hæsta hlut­fall í könnun stofn­un­ar­innar frá 2002.

Jafn­framt telur meiri­hluti íbúa evru­svæð­is­ins eða 65 pró­sent að evran sé heilla­væn­leg fyrir þeirra eigið land og það hlut­fall hefur heldur aldrei mælst hærra. Þá kom jafn­framt fram í könn­un­inni að 80 pró­sent svar­enda eru sam­mála því að evran hefur gert milli­ríkja við­skipti auð­veld­ara. Auk þess hafi evran gert ferða­lög innan álf­unnar ódýr­ari og auð­veld­ara.

Þörf á meiri samhæfingu í efnahagstefnum

Enn fremur kemur fram í könn­un­inni að meiri­hluti Evr­ópu­búa eða alls 69 pró­sent töldu þörf á meiri sam­hæf­ingu í efna­hags­stefnu á evru­svæð­inu. Auk þess studdi meiri­hluti svar­enda aukna umbót í efna­hags­málum innan sam­bands­ins til að bæta afkomu efna­hag þjóð­ar­bú­anna sjálfra.

„Evran, nú 20 ára „ung“ hefur orðið tákn um ein­ingu, full­veldi og stöð­ug­leika. Við höfum unnið hörðum höndum und­an­farin fimm ár til að snúa við krepp­unni í Evrópu, tryggja að ávinn­ingur af störfum, hag­vexti og fjár­fest­ingu nái til allra Evr­ópu­búa og geri Efnahags- og mynt­banda­lag Evrópu sterk­ari en nokkru sinni fyrr. Evran og ég erum einu eft­ir­lif­endur Maastricht-sátt­mál­ans og ég er feg­inn að sjá þennan mik­inn stuðn­ing við sam­eig­in­lega gjald­mið­il­inn okkar síð­ustu daga mína í emb­ætti for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Evran hefur verið bar­áttu­mál lífs okkar og er hún ein­hver besta eign Evrópu fyrir fram­tíð­inni. Við skulum sjá til þess að hún haldi áfram að skila vel­megun og vernd til íbúa okkar,“ er haft Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins um nið­ur­stöður könn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár