Bjarni Ben: Lengsta hagvaxtarskeið Íslands í kortunum

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, segir að Ísland hafi aldrei staðið betur í efna­hags­legu til­liti og að lengsta sam­fellda hag­vaxt­ar­skeið í sögu lands­ins sé í kort­unum. Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna á vef­síð­unni eyjan.is, en þar fer hann um víðan völl og tjáir sig meðal ann­ars um stöð­una á vinnu­mark­aði. Hann segir harðar vinnu­deilur og verk­föll sem við blasa, ef ekki næst að semja, vera eins og „óverð­ský“, en vonar að það náist að leysa úr stöð­unni með samn­ingum, áður en komið verður í óefni. Grunnatvinnu­vegir þjóð­ar­innar hafi sjaldan eða aldrei staðið betur, en ekki sé sjálf­gefið að þessar góður horfur hald­ist til fram­tíðar litið.

„Ég er þeirrar skoð­unar að í dag séu Íslend­ingar í sterk­ustu stöðu sem við höfum nokkru sinni verið í, séð frá efna­hags­legu sjón­ar­miði,“ segir Bjarni í við­tal­inu, og ítrekar síðan að hann sé ekki aðeins að tala um eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, haustið 2008, heldur alveg frá upp­hafi. „Góð­ær­is­árin fyrir hrun voru byggð á gríð­ar­lega miklum við­skipta­halla, það hlaut að þurfa að koma leið­rétt­ing út af því. Annað hvort í gegnum gengið eða með öðrum hætti, sem að það gerði. En ef við berum okkur saman við þann tíma í dag, þá erum við í fyrsta lagi með hærri lands­fram­leiðslu, meiri kaup­mátt og við erum með jöfnuð í við­skiptum við útlönd og und­ir­stöðu­at­vinnu­grein­arnar, þær standa allar betur en þær gerðu þá,“ segir Bjarni.

Hann seg­ist enn fremur sjá það fyrir sér, að ríkið muni selja um 60 pró­sent hluta­fjár í Lands­bank­anum. „Ég sé það fyrir mér að Lands­bank­inn verði um það bil í 40 pró­senta eigu rík­is­ins. Að öðru leyti verði bank­inn í dreifðu eign­ar­haldi. Bankinn verði skráður á markað og ríkið noti sölu­and­virði hluta­bréf­anna til þess að greiða niður skuldir sem meðal ann­ars var stofnað til til þess að end­ur­fjár­magna bank­ann á sínum tíma. Með því getum við á sama tíma stór­lækkað vaxta­kostnað rík­is­ins, skráð stórt og mik­il­vægt fjár­mála­fyr­ir­tæki og verið ráð­andi hlut­hafi í því áfram,“ segir Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár