Breyttar ferðavenjur eitt lykilatriðið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Aukin græn­met­is­fram­leiðsla, breyttar ferða­venjur, vist­vænir bíla­leigu­bílar og aðgerðir til að draga úr ropi búfén­aðar eru meðal þeirra aðgerða sem munu verða til þess að Ísland nái alþjóð­legum mark­miðum í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda – og gott betur.

Fram­leiðsla á íslensku græn­meti verður aukin um 25 pró­sent á þremur árum, urð­un­ar­skattur settur á og tíu millj­örðum króna veitt í hjóla- og göngu­stíga á fimmtán ára tíma­bili. Breyttar ferða­venjur, vist­vænni land­bún­aður, úrgangs­mál og sóun hvers konar eru meðal þeirra þátta sem fá aukið vægi í nýrri útgáfu aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum sem rík­is­stjórnin kynnti í dag. Í henni er að finna 48 aðgerðir – þar af fimmtán nýjar. Með þeim á Ísland að ná að draga saman losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð lands­ins um ríf­lega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við árið 2005. Sam­drátt­ur­inn yrði þá 35 pró­sent sem er tölu­vert meiri en alþjóð­legar skuld­bind­ingar segja til um.

Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum snýst um mót­væg­is­að­gerðir Íslands gegn lofts­lags­vánni. Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn gengur út á að halda hnatt­rænni hlýnun innan 2°C og eins nálægt 1,5°C og hægt er. Til að það geti gerst þarf að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eins hratt og mögu­legt er og ná hnatt­rænu kolefn­is­hlut­leysi upp úr 2050. Íslensk stjórn­völd setja hins vegar markið enn hærra og ætla sér að ná kolefn­is­hlut­hleysi tíu árum fyrr. Kolefn­is­hlut­leysi lýsir ástandi þar sem jafn­vægi hefur náðst milli los­unar og bind­ingar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og er lyk­il­mark­mið í Par­ís­ar­samn­ingnum.

Að reikna út losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og sömu­leiðis að reikna út ávinn­ing af aðgerðum til sam­dráttar er nokkuð flókið en þó mis­jafn­lega eftir því hvaðan los­unin kemur.

Í áætl­un­inni sem kynnt var í dag er aðgerð­unum 48 skipt niður í þrjá hluta eftir því hver­ing þær tengj­ast skuld­bind­ingum Íslands: Bein ábyrgð Íslands, við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ildir og land­notkun.

Árið 2005 var losun á beinni ábyrgð Íslands tæp­lega 3,2 millj­ónir tonna CO2-ígilda en miðað við sett mark­mið þarf hún að vera komin niður í 1,9 millj­ónir tonna árið 2030.

Losun sem teng­ist við­skipta­kerf­inu var 1,3 millj­ónir tonna af CO2-ígildum árið 2005 en árið 2018 var hún komin yfir þrjár millj­ónir. Ekki er innan kerf­is­ins til­greint ein­stakt mark­mið fyrir hvert ríki heldur mun heim­ildum innan þess fækka um 43 pró­sent milli áranna 2005 og 2030. Umrætt við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ildir (ETS-kerfið) er helsta stjórn­tæki Evr­ópu­sam­bands­ins til að ná fram sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þessu til við­bótar er unnið að því að koma upp nýju kerfi til að draga úr losun frá alþjóða­flugi og ber það heitið CORSIA. Í upp­hafi er um að ræða sjálf­vilj­uga þátt­töku ríkja og tekur Ísland þátt í kerf­inu frá byrjun. Kerfið verður inn­leitt í Evrópu með breyt­ingum á reglu­verki ETS-kerf­is­ins.

Dæmi um nýjar aðgerðir sem röt­uðu inn í áætl­un­ina í kjöl­far sam­ráðs eru aðgerðir til þess að auka inn­lenda græn­met­is­fram­leiðslu, fjölga vist­vænum bíla­leigu­bílum, styðja við orku­skipti í þunga­flutn­ingum, fanga kolefni frá stór­iðju, bæta fóðrun búfjár til að draga úr iðra­gerjun og draga úr losun frá bygg­ing­ar­iðn­aði.

Um 2 prósent losunar kemur frá alþjóðaflugi.
Um 2 pró­sent los­unar kemur frá alþjóða­flugi.

Vegasamgöngur: Úr 979 þúsund tonnum í 615

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vega­sam­göngum stafar af bruna jarð­efna­elds­neytis í öku­tækjum á landi og telur stærstan ein­staka hluta þeirrar los­unar sem til­heyrir beinni ábyrgð Íslands. Losunin var 776 þús­und tonn árið 2005 en var komin upp í 979 þús­und tonn 2018, fyrst og fremst vegna stór­felldrar fjölg­unar bíla­leigu­bíla. Með aðgerðum í aðgerða­á­ætlun og þróun sam­kvæmt grunn­s­viðs­mynd er áætlað að losun árið 2030 verði komin niður í 615 þús­und tonn. Það er 21 pró­sent sam­dráttur miðað við 2005 og 37 pró­sent miðað við árið 2018.

Í skýrsl­unni kemur fram að losun frá vega­sam­göngum jókst frá 1990 til 2007 og dróst svo saman í hrun­inu og árin þar á eftir. Losunin í þessum flokki var árið 2018 alls 33 pró­sent af heild­ar­losun á ábyrgð Íslands. Frá 2014 hefur hún auk­ist veru­lega og raunar aldrei verið meiri.

Þótt hrein­orku­bílar og aðrar vist­vænar bif­reiðar hafi verið 46 pró­sent af nýskráðum bif­reiðum fyrstu fimm mán­uði árs­ins 2020 þá eru hins vegar þegar í umferð á Íslandi um 200 þús­und bensín- og dísil­fólks­bílar auk fjölda flutn­inga­bif­reiða, hóp­bif­reiða og ýmissa stærri öku­tækja, sem skýrir af hverju sam­dráttur verður ekki sam­stundis í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vega­sam­göngum.

Til að draga úr losun frá vega­sam­göngum eru þegar komnar til sög­unnar ýmsar aðgerðir og enn aðrar eru í vinnslu. Má þar nefna skattaí­viln­anir á öku­tækjum sem nýta vist­væna orku­gjafa sem og á reið­hjólum og upp­setn­ingu hrað­hleðlu­stöðva.

Ein stærsta aðgerðin er svo efl­ing inn­viða fyrir „virka ferða­máta“ (hjól­reiðar og göngur) sem og almenn­ings­sam­gangna, m.a. með Borg­ar­línu. Framlag rík­is­ins til upp­bygg­ingar Borg­ar­línu, stofn­vega og hjóla- og göngu­stíga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að lág­marki 45 millj­arðar króna frá 2020-2033.

Til að draga úr losun frá vegasamgöngum eru þegar komnar til sögunnar ýmsar aðgerðir og enn aðrar eru í vinnslu. Má þar nefna skattaívilnanir á ökutækjum sem nýta vistvæna orkugjafa sem og á reiðhjólum og uppsetningu hraðhleðlustöðva.
Til að draga úr losun frá vega­sam­göngum eru þegar komnar til sög­unnar ýmsar aðgerðir og enn aðrar eru í vinnslu. Má þar nefna skattaí­viln­anir á öku­tækjum sem nýta vist­væna orku­gjafa sem og á reið­hjólum og upp­setn­ingu hrað­hleðlu­stöðva.

Skip og hafnir: Úr 769 þúsund tonnum í 449

Langstærstur hluti los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá skipum og höfnum er frá fiski­skipum og á sér stað vegna bruna jarð­efna­elds­neytis. Losunin í þessum flokki var 769 þús­und tonn árið 2005 og 596 þús­und tonn árið 2018. Með er aðgerð­unum er áætlað að losun árið 2030 verði komin niður í 449 þús­und tonn CO2-ígilda. Það er 42 pró­sent sam­dráttur.

Í skýrsl­unni kemur fram að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá fiski­skipum og strand­sigl­ingum hafi dreg­ist veru­lega saman frá því að hún náði hámarki árið 1996, eða um 40 pró­sent. Þessi sam­dráttur er sagður skýr­ast af ýmsum þáttum – ekki síst betri sókn­ar­stýr­ingu og að dregið hefur úr veiðum á fjar­lægum miðum. Umrædd losun er enda tæp­lega fimmt­ungur af þeirri losun sem er á beinni ábyrgð Íslands.

Landbúnaður: Úr 605 þúsund tonnum í 575

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði kemur einkum frá búfé og notkun áburðar. Mest er hún í formi met­ans (CH4) og hlát­urgass (N2O) fremur en CO2. Losunin hefur verið nær óbreytt síð­ast­liðna ára­tugi, var 605 þús­und tonn árið 2005 og 635 þús­und tonn árið 2018. Verk­efnið fram undan er að því er fram kemur í skýrsl­unni að hreyfa við þess­ari kyrr­stöðu. Með aðgerðum er áætlað að los­unin verði árið 2030 komin niður í 575 þús­und tonn CO2-ígilda. Samkvæmt los­un­ar­bók­haldi Íslands verður stærsti hluti los­un­ar­innar við iðra­gerjun búfjár, og teng­ist þá sér í lagi sauð­fjár- og naut­gripa­rækt.

Meg­in­þorra þeirrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem kemur frá búfjár­rækt má rekja til gerj­un­ar­innar sem á sér stað í iðrum búfjár. Þegar skepn­urnar jórtra ropa þær upp met­ani sem er öflug gróð­ur­húsa­loft­teg­und, raunar meira en tutt­ugu sinnum öfl­ugri en CO2.

Rann­sóknir erlendis benda til að hægt sé að draga úr fram­leiðslu met­ans í melt­ing­ar­vegi búfjár með ýmsum leiðum, svo sem með því að nota efni úr þör­ungum. Kannað verður hvort hægt sé að draga úr slíkri losun hér á landi og stuðla að rann­sóknum og þróun inn­an­lands.

Aukin inn­lend græn­met­is­fram­leiðsla er sömu­leiðis ný aðgerð sem kynnt er til sög­unnar í upp­færðri aðgerða­á­ætlun. Hún miðar að því að auka fram­leiðslu á íslensku græn­meti um 25 pró­sent á næstu þremur árum, styðja við líf­ræna græn­met­is­fram­leiðslu og stefna að því mark­miði að íslensk garð­yrkja verði kolefn­is­hlut­laus eigi síðar en árið 2040.

Auka á innlenda grænmetisræktun.
Auka á inn­lenda græn­met­is­ræktun.

Úrgangur og sóun

Að urða úrgang er versti kost­ur­inn í úrgangs­málum fyrir lofts­lagið. Við urð­un­ina mynd­ast gróð­ur­húsa­loft­teg­undir, þar á meðal metan, sem losnar út í and­rúms­loftið. Bein losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá með­höndlun úrgangs stafar fyrst og fremst frá urðun hans.

Losun frá með­höndlun úrgangs jókst frá 1990 til árs­ins 2007 þegar hún náði hámarki. Magn úrgangs hefur svo aftur auk­ist síð­ustu ár með auknum efna­hags­vexti. Lofts­lags­á­hrif neyslu og sóunar birt­ast meðal ann­ars í úrgangs­málum – í einnota hlutum sem hent er eftir notkun, mat­vælum sem fleygt er í ruslið og á urð­un­ar­stöðum.

Aðgerðir í þessum flokki eru ýmist komnar vel af stað eða í und­ir­bún­ingi. Unnið er að útfærslu urð­un­ar­skatts og stefnt er að því að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra mæli á haust­þingi 2020 fyrir frum­varpi á Alþingi sem gerir meðal ann­ars ráð fyrir banni við urðun líf­ræns úrgangs, í sam­ræmi við aðgerða­á­ætlun í drögum að nýrri stefnu um með­höndlun úrgangs. Skatt­inum er ætlað að virka sem hvati til að draga úr því mikla magni af úrgangi sem dag­lega er urðað hér á landi.

Kröfur til framleiðenda munu aukast

Þá hefur verið ráð­ist í verk­efni til að draga úr mat­ar­sóun og starfs­hópur sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skip­aði vinnur auk þess að til­lögum um aðgerðir sem geta dregið úr mat­ar­sóun.

„Fram undan er ærið verk­efni þar sem ríki heims verða að hætta að henda hrá­efni og fleygja hlutum – en hugsa hag­kerfið heldur í hring,“ segir í skýrsl­unni. Tilkynnt var árið 2019 um hálfan millj­arð króna auka­lega í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til að efla hringrás­ar­hag­kerfið hér á landi. „Búast má við að kröfur til fram­leið­enda muni aukast, svo sem um nýt­ingu á end­urunnu hrá­efni til fram­leiðslu og að fram­leiða end­ing­ar­góðar vörur með orku­nýtni að leið­ar­ljósi.“

Í fyrstu útgáfu aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum var boðað að urð­un­ar­skatti yrði komið á. Unnið hefur verið að útfærslu skatts­ins og lagt til að upp­hæð hans verði 15 krónur á hvert kíló­gramm af urð­uðum almennum úrgangi, að und­an­skildum óvirkum úrgangi, og 0,5 krónur á hvert kíló­gramm af urð­uðum óvirkum úrgangi. Óvirkur úrgangur er til dæmis jarð­efni, steypa, flísar, ker­amik og gler.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið vinnur nú í sam­vinnu við umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið að frum­varpi til breyt­ingar á lögum um umhverfis- og auð­linda­skatta þar sem inn­heimta urð­un­ar­skatts verður lög­fest. Haft verður sam­ráð við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Tveir milljarðar í urðunarskatt

Að teknu til­liti til þess magns sem hefur verið urðað und­an­farin ár er áætlað að tekjur rík­is­sjóðs af urð­un­ar­skatti gætu numið um 2.000 millj­ónum króna á ári fyrst í stað. Þess er vænst að tekjur af skatt­inum drag­ist síðan saman, enda er honum ætlað að leiða til minni urð­unar.

Ráðist verður í fjölda verk­efna sem miða að því að minnka mat­ar­sóun hér á landi. Annars vegar er um að ræða verk­efni til skemmri tíma og hins vegar aðgerðir til næstu ára. Talið er að um þriðj­ungi mat­væla í heim­inum sé sóað og gróð­ur­húsa­loft- teg­undir mynd­ast við með­höndlun þeirra.

Losun frá stór­iðju hér á landi og flugi fellur sam­kvæmt skil­grein­ingu ekki undir beina ábyrgð Íslands heldur undir við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ilid, ETS-kerfið. Kerfið er helsta stjórn­tæki Evr­ópu­sam­bands­ins til að ná fram sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og á að skila 43 pró­sent sam­drætti í losun á Evr­ópu­vísu til 2030 miðað við 2005. Innan kerf­is­ins er ábyrgðin á sam­drætt­inum færð á um 11.000 fyr­ir­tæki og um 4.000 flug­rekst­ar­að­ila sem þurfa að eiga heim­ildir fyrir allri sinni losun. Hluta þeirra er úthlutað end­ur­gjalds­laust en ef fyr­ir­tækin losa meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en sem því nemur þurfa þau að kaupa heim­ildir vegna þess.

Álverin þrjú sem starfa á Íslandi falla undir ETS-kerfið, sömu­leiðis járn­blendi­verk­smiðja Elkem á Grund­ar­tanga og kís­il­málm­verk­smiðja PCC á Bakka. Losun frá stór­iðju var um 39 pró­sent af heild­ar­losnun Íslands árið 2018.

Í annarri útgáfu aðgerða­á­ætl­un­ar­innar er nýjum aðgerðum sem snúa að losun stór­iðju bætt við, m.a.aðgerð sem felur í sér að kanna hvort stór­iðju­fyr­ir­tæki geti dregið úr losun CO2 frá starf­semi sinni með því að dæla því niður í berg eða nýta það til dæmis til elds­neyt­is­fram­leiðslu. Þar sem nið­ur­dæl­ingin er til­rauna­verk­efni er ekki hægt að segja til um hver mögu­legur sam­dráttur í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda gæti orðið. „Þó er ljóst að gangi verk­efnið vel mun það marka vatna­skil við að draga úr losun frá stór­iðju hér á landi,“ segir í skýrsl­unni.

Fjármögnun áætlunarinnar

Þegar fyrsta útgáfa aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum var kynnt kom fram að henni fylgdu 6,8 millj­arðar króna og var þar miðað við fjár­mála­á­ætlun 2019-2023. Með fjár­mála­á­ætlun 2020-2024 juk­ust enn fram­lög til mála­flokks­ins og í sér­stöku fjár­fest­ing­ar­átaki rík­is­stjórn­ar­innar árið 2020 vegna efna­hags­á­hrifa COVID-19 var síðan gert ráð fyrir 600 millj­ónum króna auka­lega til orku­skipta og grænna lausna. Útfærsla þeirra verk­efna stendur yfir en gert er ráð fyrir 550 millj­ónum króna vegna orku­skipta og kolefn­is­bind­ingar á árinu 2020 og 50 millj­ónum króna auka­lega í nýsköpun í gegnum Lofts­lags­sjóð.

Álverin þrjú sem starfa á Íslandi falla undir ETS-kerfið, sömuleiðis járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga og kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka. Losun frá stóriðju var um 39 prósent af heildarlosnun Íslands árið 2018.
Álverin þrjú sem starfa á Íslandi falla undir ETS-kerfið, sömu­leiðis járn­blendi­verk­smiðja Elkem á Grund­ar­tanga og kís­il­málm­verk­smiðja PCC á Bakka. Losun frá stór­iðju var um 39 pró­sent af heild­ar­losnun Íslands árið 2018.

Fjármagn sem sér­stak­lega er eyrna­merkt lofts­lags­málum rennur til dæmis til upp­bygg­ingar hrað­hleðslu­stöðva vítt og breitt um landið, kolefn­is­bind­ingar, end­ur­heimt vot­lendis og rann­sókna og vökt­unar vegna lofts­lags­breyt­inga. Það fer einnig í aðgerðir gegn mat­ar­sóun, ýmiss konar úttektir og grein­ingar, fræðslu og efl­ingu stjórn­sýslu til að takast á við auknar skuld­bind­ingar í lofts­lags­málum, svo dæmi séu tekin.

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna lofts­lags­mála er einnig í formi skatta­styrkja. Síð­ast­liðin ár hefur rík­is­sjóður gefið eftir hluta af virð­is­auka­skatti vegna kaupa á raf­magns-, vetnis- og tengilt­vinn­bif­reiðum. Bara á árinu 2019 námu slíkir skatta­styrkir tæp­lega 2,7 millj­örðum króna. Íviln­an­irnar hafa nú verið fram­lengdar og útvíkk­aðar og ýmsir skatta­styrkir bæst við, meðal ann­ars vegna vist­vænna hóp­bif­reiða í almenn­ings­akstri, raf­magns­hjóla og reið­hjóla. Áætlað er að með þessu verði skatta­styrkirnir ríf­lega 3,4 millj­arðar króna á árinu 2020.

Gildandi fjár­mála­á­ætlun tekur til áranna 2020-2024. Þegar ein­ungis er miðað við þau ár sést að á fimm ára tíma­bili renna að lág­marki 46 millj­arðar króna til stærstu verk­efna í lofts­lags­málum.

Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum verður til kynn­ingar í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda í þrjá mán­uði frá birt­ingu hennar. Öllum sem vilja gefst kostur á að veita umsögn og koma með ábend­ingar. Frestur til að skila þeim er til 20. sept­em­ber 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár